Julia skrifaði:
The pattern is great, but I have a size issue. Which size is on the model on photo? Cause I’m almost finished the main part and it doesn’t look like sweater on the photo at all. Thanks!
23.02.2020 - 18:41DROPS Design svaraði:
Dear Julia. The model in the picture is approx. 170 cm and is size S or M.
23.02.2020 - 23:41
Thérèse skrifaði:
Bonjour, Je commence le tricot et j'ai pris des aiguilles 6. Il me semble que je pourrais prendre du 5,5. Vous pensez que c'est souhaitable,?
12.01.2020 - 10:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Thérèse, avez-vous fait votre échantillon? Si votre tension est juste avec les aiguilles 7, vous pouvez alors utiliser les aiguilles 6 - plus d'infos ici. Bon tricot!
13.01.2020 - 09:45
Charlotte78 skrifaði:
Bonjour que signifie le petit logo "montre" sur la page de présentation ? Modèle rapide à réaliser ? Ou modèle long à réaliser ?
12.10.2019 - 20:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Charlotte78, ce logo indique simplement que c'est un modèle qui a été ajouté récemment. Bon tricot!
14.10.2019 - 09:59
Yneke skrifaði:
Wanneer komt dit leuke vest als patroon beschikbaar. het lijkt of er geen patronen bijkomen
27.09.2019 - 17:25
Inge skrifaði:
Glæder mig til opskriften ligger klar. Er totalt faldet for den.
04.09.2019 - 19:55
Veronique skrifaði:
Superbe veste
26.07.2019 - 20:49
Nancy skrifaði:
Superbe !!! ces manches chauve souris
12.07.2019 - 14:26
Inge Lingen, Van skrifaði:
Zou fijn zijn als hier een haakpatroon van komt! ziet er erg comfortabel uit.
11.07.2019 - 08:28
LilyMély skrifaði:
Très élégant , j’adore !!!!
23.06.2019 - 20:45
Mirjam skrifaði:
Praktisk og elegant.
22.06.2019 - 19:35
Winter Cocoon#wintercocoonjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og stroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-32 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 - veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 2-3-3 sinnum í stykki með 15-16-17 lykkjur í hverri skiptingu. Fyrsta útaukning: Prjónið fram að fyrstu einingu með 4 lykkjum brugðið, prjónið 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur brugðið (= 1 lykkja fleiri). Endurtakið í hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. Prjónið fram að fyrstu einingu með 4 lykkjum brugðið, prjónið 3 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið. Endurtakið í hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. Útaukning í stærð S/M er nú lokið. Í stærð L/XL og XXL/XXXL aukið út 1 sinni til viðbótar þannig: Þriðja útaukning: Prjónið fram að fyrstu einingu með 5 lykkjum brugðið, prjónið 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur brugðið (= 1 lykkja fleiri). Endurtakið í hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 153 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 4,47. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í hliðum. Að lokum er stroffi prjónað í hring á hringprjón. BOLERO: Fitjið upp 122-130-138 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Lima + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 1 lykkja er eftir (= 15-16-17 mynstureiningar), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-19-21 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki (= prjónmerki merkir byrjun á handveg). Haldið síðan áfram með mynstur A.1 þar til stykkið mælist ca 43-43-43 cm frá prjónamerki sem sett var í hvora hlið – stillið af að það sé jafn fjöldi ferninga á hæðina (1 ferningur = 4 umferðir í mynstri A.1 á hæðina). ATH: Þetta er mikilvægt svo að mynstrið verði fallegt í frágangi seinna í stykkinu. Setjið eitt nýtt prjónamerki í hvora hlið í stykkið. Þessir 43 cm á milli 2 prjónamerkja í hvorri hlið er handvegurinn. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-1 (= 15-16-17 lykkjur fleiri) = 137-146-155 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, en nú eru prjónaðar 4 lykkjur slétt og 5 lykkjur brugðið. Þegar byrjað er næst á nýjum ferningi (með brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur og sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), aukið út uppá nýtt í hverri einingu sem prjónuð er brugðið – munið eftir ÚTAUKNING-1 (= 15-16-17 lykkjur fleiri) = 152-162-172 lykkjur. Nú er útaukning í stærð S/M lokið. Í stærð L/XL og XXL/XXXL er aukið út alveg eins í hverri brugðinni einingu þegar byrjað er á nýjum ferningi á hæðina = 152-178-189 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónaðar eru 4 umferðir á hæðina með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, áður en skipt er yfir í brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur eins og útskýrt er í A.2 – sjá mynsturteikningu í þinni stærð. Þegar stykkið mælist ca 16-19-21 cm frá síðasta prjónamerki – stillið af að það séu prjónaðir jafn margir ferningar á hæðina eins og í byrjun á stykki áður en fyrsta prjónamerkið var sett fyrir handveg, er stykkið tilbúið. Stykkið mælist alls ca 75-81-85 cm. Haldið eftir 152-178-189 lykkjur á prjóni. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stykkið í miðju þannig að uppfitjunarkanturinn liggi meðfram 152-178-189 lykkjum á prjóni/lykkjur á lykkjuhaldara. Þau 2 prjónamerkin sem voru sett sem merking fyrir handveg eiga nú að liggja yfir hvoru öðru. Saumið hliðarsauma í hvora hlið, þ.e.a.s. saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá uppfitjunarkanti/affellingarkanti og upp að 2 prjónamerkjum í annarri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í KRINGUM OPIÐ: Prjónið nú kant hringinn í stroffprjóni þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) með byrjun frá réttu: Prjónið 1 umferð slétt yfir 152-178-189 lykkjur á prjóni og aukið jafnframt út um 34-38-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2, (= 186-216-230 lykkjur), prjónið upp 146-156-166 lykkjur jafnt yfir uppfitjunarkantinn = 332-372-396 lykkjur í umferð. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í kringum allt opið á stykkinu. Þegar stroffið mælist 7-9-11 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Prjónið upp frá réttu 76-76-76 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum handveg á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði Lima + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið stroff á hinni erminni á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintercocoonjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.