Denise skrifaði:
Bonjour, J'avance dans mon chandail. J'aimerais savoir comment on fait pour ne pas avoir une démarcation lorsqu'on change de rang. Est ce qu'il existe un tuto pour cette technique Merci beaucoup
19.11.2019 - 19:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Denise, cette démarcation est inévitable aux changements des tours - cf vidéo des brides en rond. Pour qu'elle soit plus douce, veillez à ce que vos 3 mailles en l'air du début des tours soient bien aussi longues qu'une bride. Bon crochet!
20.11.2019 - 08:01
Denise skrifaði:
Merci. Maintenant on dit de faire 26 fois le A2 mais je compte 13 lignes
07.11.2019 - 12:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Denise, en taille L vous avez maintenant 52 mailles serrées + 26 ronds de mailles en l'air. Vous répétez maintenant 26 fois A.2 en largeur - A.2 se crochète au 1er rang au-dessus de (1 ms, 1 rond de mailles en l'air, 1 ms), vous répétez ainsi 26 fois ce diagramme tout le tour. Quand A.2 est terminé, vous avez: 3 brides, 1 rond de mailles en l'air, 3 brides dans chaque A.2. Bon crochet!
07.11.2019 - 13:46
Denise skrifaði:
Le modèle Ést 206-33. Je veux savoir comment on tricote un T penche. Il y a qui sont proches d'un T ordinaire mais il y a pen qui en sont éloigné Merci
06.11.2019 - 20:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Denise, pensez-vous au 3ème symbole de la légende qui, dans A.2 et A.3 est légèrement incliné sur la droite ou sur la gauche? Il s'agit d'une bride qui est simplement penchée pour que celle du rang suivant arrive au bon endroit. Bon crochet!
07.11.2019 - 08:56
Van Den Briele Vera skrifaði:
En Neerlandais svp
10.10.2019 - 17:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Van Den Briele Vera, pour obtenir les explications en néerlandais, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et choisissez "Nederlands". Bon crochet!
11.10.2019 - 09:43
Aida skrifaði:
Me parece extrardinario ! quiero hacerlo pues aprendi a utilizar las agujas circuclares
10.10.2019 - 05:47
Aida skrifaði:
Quisiera saber como hacer para obtener un patron gratuito en español y en pdf muchas gracias!
10.10.2019 - 05:45DROPS Design svaraði:
Hola Aida. Todos los patrones de Drops son gratuitos. Para imprimir un patrón o guardarlo como pdf pulsa el botón IMPRIMIR que está bajo los materiales y sigue las instrucciones.
10.10.2019 - 23:37
Florencia skrifaði:
Hola! Gracias por publicar tantos patrones, y por dar explicaciones tan claras. Los vídeos y los links facilitan tejer. Aún no pude iniciar el proyecto, pero lo haré apenas pueda. Saludos desde Buenos Aires!
07.10.2019 - 03:40
Charlene skrifaði:
Is this in British or American crochet terms?
03.10.2019 - 19:12DROPS Design svaraði:
Hi Charlene, You can access both British and American patterns if you choose your language under the photograph. Happy knitting!
04.10.2019 - 07:15
Tammy skrifaði:
How long will it take to recieve my pattern A
25.09.2019 - 06:12
Tammy skrifaði:
Love all of your patterns your work is wonderful. Anytime you have patterns to be tested. Iwould love to test it for you. I sit home all day.
25.09.2019 - 06:10
Blushing Embers#blushingemberssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með lykkjuköðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-33 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja í byrjun á umferð (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju). Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkju hringi): Þegar heklaðir eru 8 loftlykkjur í A.1, A.2 og A.3, er mikilvægt að heklfestan haldist, ef ekki þá kemur mynstrið ekki til með að passa á hæðina, 8 loftlykkjur eiga að mælast 6 cm á lengd (án þess að toga í stykkið). Ef þessar 8 loftlykkjur mælast ekki 6 cm, er hægt að heklað eins margar loftlykkjur og þarf til að ná 6 cm með loftlykkjum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 200 lykkjur – loftlykkjuhringir teljast sem 1 lykkja) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 14,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 44. hvern stuðul, en heklið 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju í loftlykkjuhring ef auka þarf út í loftlykkjuhring. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Lykkjukaðlar (áferðin) á berustykkinu er gerð úr loftlykkjuhringjum sem heklaðir eru saman þegar næstum allt berustykkið hefur verið heklað til loka. BERUSTYKKI: Heklið 63-66-69-71-73-78 loftlykkjur með Air með heklunál 5,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð – sjá LOFTLYKKJA! Fyrsta umferð er hekluð eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S, M, L, XXL: Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1a yfir fyrstu 52-52-52-65 lykkjurnar (= 4-4-4-5 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-6 lykkjurnar (= 2-2-2-2 sinnum á breidd), A.1c yfir næstu 2-2-2-2 lykkjurnar (= 1-1-1-1 sinnum á breidd) og síðan A.1b yfir næstu 3-6-9-0 lykkjurnar (= 1-2-3-0 sinnum á breidd). Stærð XL og XXXL: Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1a yfir fyrstu 65-78 lykkjur (= 5-6 sinnum á breidd) og síðan A.1b yfir næstu 6-0 lykkjur (= 2-0 sinnum á breidd). Nú eru 48-50-52-54-56-60 fastalykkjur (+ 24-25-26-27-28-30 loftlykkjuhringi) í umferð. Nú er mynstur A.2 heklað alls 24-25-26-27-28-30 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.2 hefur verið heklað til loka eru 168-175-182-189-196-210 lykkjur í umferð (loftlykkjuhringir eru taldir eins og 1 lykkja). Stykkið mælist ca 16 cm. Heklið nú áfram með A.3 yfir hverja mynstureiningu A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Þegar síðasta umferð í A.3 hefur verið hekluð til loka eru 192-200-208-243-252-270 lykkjur í umferð (loftlykkjuhringir eru taldir sem 1 lykkja). Stykkið mælist ca 19-19-19-27-27-27 cm. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur án þess að auka út að réttri stærð. Heklið nú loftlykkjuhring á berustykki lóðrétt saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrsta loftlykkjuhringinn efst við háls frá réttu, dragið 2. loftlykkjuhringinn í gegnum fyrsta loftlykkjuhringinn, stingið heklunálinni í 2. loftlykkjuhringinn og dragið 3. loftlykkjuhringinn í gegnum annan loftlykkjuhringinn. Haldið svona áfram þar til allir loftlykkjuhringirnir hafa verið heklaðir saman. Heklið síðustu umferð í A.3, jafnframt er aukið út um 0-14-20-1-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING = 192-214-228-244-258-278 lykkjur. Nú eru allir loftlykkjuhringirnir fastir þannig að þeir rakna ekki upp. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju þar til berustykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 28-31-33-36-39-43 stuðlana (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 39-44-48-50-51-53 stuðlana fyrir ermi, heklið 5-5-7-7-9-9 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 57-63-66-72-78-86 stuðlana (= framstykki), hoppið yfir næstu 39-44-48-50-51-53 stuðla fyrir ermi, heklið 5-5-7-7-9-9 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 29-32-33-36-39-43 stuðlum sem eftir eru (= hálft bakstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja af 5-5-7-7-9-9 loftlykkjum undir ermi = 124-136-146-158-174-190 stuðlar í umferð. Haldið síðan áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Heklið 1 umferð þar sem fækkað er um 1-1-2-2-0-1 stuðla = 123-135-144-156-174-189 stuðlar. Heklið nú kant þannig: Heklið A.4 hringinn í umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar kanturinn mælist 3 cm, klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl og niður. ERMI: Byrjið mitt undir ermi og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 3.-3.-4.-4.-5.-5. loftlykkju undir ermi, heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, haldið síðan áfram með 1 stuðul í hverja loftlykkju og 1 stuðul í hvern stuðul = 44-49-55-57-60-62 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri – annarri hverri – annarri hverri – annarri hverri – hverri - hverri umferð alls 6-8-10-10-11-11 sinnum = 32-33-35-37-38-40 lykkjur. Haldið áfram með stuðla þar til stykkið mælist 39-38-36-35-33-31 cm frá skiptingu. Heklið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-6-5-7-5-7 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 27-27-30-30-33-33 stuðlar. Heklið nú kant þannig: Heklið A.4 umferðina hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar kanturinn mælist 3 cm, klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-34 cm frá skiptingu. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem var hekluð í byrjun á stykki. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blushingemberssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.