DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Squared Plum

Hekluð tunika úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað í ferning frá miðju og út. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-31
DROPS Design: Mynstur de-189
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 g litur 18, haustskógur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 16, dökk fjólublár

HEKLFESTA:
4 mynstureiningar A.3b á breidd og 8 umferðir á hæð með 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju framstykki/bakstykki og út í ferning. Síðan eru ermarnar heklaðar og neðsti hluti á fram- og bakstykki fram og til baka. Ermar eru heklaðar í hring ofan frá og niður. Allt stykkið er heklað með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).

FRAMSTYKKI:
Heklið ferning:
Byrjið með heklunál 5,5 með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2b alls 4 sinnum í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.2a/A.2b hefur verið heklað til loka á hæðina eru endurteknar 2 síðustu umferðirnar. Þ.e.a.s. í hvert skipti sem 2 síðustu umferðirnar eru heklaðar er pláss fyrir 2 stuðla hópa fleiri í hverri útaukningu í hverju af 4 hornum í ferningi.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 55-60-65-65-65-65 x 55-60-65-65-65-65 cm – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé eins og næst síðasta umferð í A.2a/A.2b.
Heklið nú áfram í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S, M OG L:
Heklið nú fram og til baka meðfram neðri kanti á framstykki þannig: Festið enda með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni og heklið síðan frá röngu þannig:
Heklið A.3a, A.3b fram að næsta horni, A.3d um loftlykkjuboga í horni. Snúið og haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 6-4-4 raðir. Klippið frá og festið enda. Nú eru axlirnar heklaðar og hálsinn á gagnstæðri hlið á ferning þannig: Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 8-8-8 stuðlahópa í umferð (= hálsinn). Þ.e.a.s. setjið prjónamerkin um loftlykkju á ystu hlið á þessum 8-8-8 stuðlahópum.
Byrjið frá röngu við stjörnu – sjá teikningu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.3a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b fram að loftlykkju með fyrsta prjónamerki, heklið A.3c um loftlykkju með prjónamerki. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning). Klippið frá og festið enda.
Hoppið yfir 8-8-8 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannig:
Heklið A.3e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.3b fram að horni, heklið A.2d um loftlykkjuboga í horni. Haldið áfram fram og til bak svona þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykki er nú lokið, heklið síðan áfram frá bakstykki.

STÆRÐ XL, XXL OG XXXL:
Heklið nú út að hvorri hlið þannig:
Festið enda með 1 fastalykkju í einu horni og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið
A.3a, A.3b fram að næsta horni, A.3d um loftlykkjuboga í horni. Snúið og haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 2-4-6 umferðir frá ferningi. Klippið frá og festið enda, heklið alveg eins á gagnstæðri hlið á ferningi. ATH: Passið uppá að byrjað sé frá röngu þannig að umferð með 4 loftlykkjum og 1 stuðli er heklað frá röngu og umferð með 3 stuðlum og 1 loftlykkju er hekluð frá réttu.
Heklið nú meðfram neðri kanti á framstykki þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju um síðustu umferð í horni neðst á neðri kanti á framstykki og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.3e í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem hekluð var út í hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að hinni hliðinni, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem hekluð var út í hlið og endið með A.3c í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni). Haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 6-6-8 umferðir frá ferningi. Klippið frá og festið enda. Heklið nú axlir og hálsmáli á gagnstæðri hlið á ferningi þannig:

Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 8-10-10 stuðlahópa í umferð (= hálsmál). Þ.e.a.s. setjið prjónamerki um loftlykkju á ytri hlið við þessa 8-10-10 stuðlahópa.
Byrjið frá röngu við stjörnu – sjá teikningu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.3e í hornið (ATH: heklið eins og um síðustu umferð í horni), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð út að hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að loftlykkju með fyrsta prjónamerki, heklið A.3c um loftlykkju. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning). Klippið frá og festið enda.
Hoppið yfir 8-10-10 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannigl Heklið A.3e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.3b fram að horni á ferning, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð í hlið, endið með A.3c í horni (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni). Haldið áfram fram og til baka svona þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferning) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykkið er nú lokið, heklið síðan áfram frá bakstykki.

BAKSTYKKI:
Heklið alveg eins og framstykki, en þegar hekla á axlir og hálsmál, heklið fyrst 2 umferðir yfir allan heklaða ferninginn + yfir umferð sem var hekluð út á við á hvorri hlið (á við um stærð XL, XXL og XXXL) í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S, M, og L:
Byrjið í horni frá röngu og heklið A.3a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.3b fram að næsta horni, heklið A.3d um hornið. Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir).
Setjið síðan 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 8-8-8 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferð fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferning). Klippið frá og festið enda.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Byrjið í horni frá röngu og heklið A.3e í hornið (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni og stykkið lítur ekki út eins og fyrsta umferð í A.3e), heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð út í hlið, haldið síðan áfram með A.3b fram að horni á ferning, heklið 1-2-3 mynstureiningar A.3b um 2-4-6 umferð sem var hekluð í hlið, endið með A.3c í hornið (ATH: Heklið um síðustu umferð í horni og stykkið lítur ekki út eins og fyrsta umferð í A.3c). Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir). Setjið síðan 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 8-10-10 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferningi). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma – saumið í ystu lykkjubogana frá röngu með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið eitt prjónamerki um loftlykkju eftir 6-6-7-7-8-9 hópa með stuðlum (3 stuðlar) niður frá axlasaumi hvoru megin við handveg = ca 15-15-18-18-20-25 cm frá axlasaumi og niður á framstykki í hvorri hlið (merkir handveg). Endurtakið á bakstykki.
Heklið hliðarsaum saman í gegnum bæði lögin og frá röngu með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Byrjið við prjónamerkin sem merkja annan handveginn og heklið 1 fastalykkju um loftlykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* niður að hluta sem var heklaður fram og til baka neðst á tunikunni (= ca 8-5-5-8-8-10 cm klauf). Endurtakið í hinni hliðinni.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring frá handveg og niður.
Byrjið mitt undir handveg við prjónamerki og heklið í hring frá umferð með ör með 1 þræðir Delight og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) þannig: Heklið A.4, heklið 4-4-5-5-6-9 mynstureiningar A.5b upp að axlasaumi, heklið fyrsta stuðul í A.5b mitt í axlasaum og haldið síðan áfram þar til heklaðar hafa verið 4-4-5-5-6-9 mynstureiningar A.5b frá axlasaumi og það eru 2 stuðlahópar eftir á undan prjónamerki undir ermi, heklið A.6. Haldið svona áfram hringinn þar til A.4, A.5b og A.6 hefur verið heklað til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 2 stuðlahópa undir ermi = 10-10-12-12-14-16 stuðlahópar undir ermi. Nú er heklað áfram í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S og M:
Heklið A.5a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), síðan er heklað A.5b alls 10-10 sinnum hringinn í umferð, heklið A.5c. Haldið svona áfram þar til ermin mælist alls 44-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er síðasta umferð í A.5b. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins.

STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram hringinn frá umferð með ör í mynsturteikningu A.4, A.5b og A.6 eins og áður þar til mynsturteikning hefur verið hekluð 1-1-2-2 sinnum til viðbótar (alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina frá handveg) = 10-10-10-12 stuðlahópa fyrir ermi.
Heklið nú áfram þannig: Heklið A.5a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), síðan er heklað A.5b 10-10-10-12 sinnum hringinn á ermi, heklið A.5c. Þegar ermin mælist 41-39-38-36 cm frá handveg (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er síðasta umferð í A.5b, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið með 1 þræði Delight og 1 þræði Kid-Silk og festið enda með 1 fastalykkju í saum á öxl og heklið fyrst á framstykki, síðan á bakstykki þannig:
UMFERÐ 1: Hoppið yfir fyrstu umferð, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli (= 4 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferning í hálsmáli (= 8-8-8-8-10-10 lofltykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaum, (= 4 loftlykkjubogar), hoppið yfir fyrstu umferð á öxl/hálsmál á bakstykki, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli (= 3 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferning í hálsmáli (= 8-8-8-8-10-10 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaum (= 3 loftlykkjubogar) = 30-30-30-30-34-34 loftlykkjubogar í kringum hálsmál.
Haldið síðan áfram hringinn með A.7b hringinn í umferð (A.7a sýnir hvernig umferð byrjar og endar).
Þegar allt A.7a/A.7b hefur verið heklað til loka á hæðina er klippt frá og endi festur.

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = í byrjun á umferð er skipt út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð og heklið 1 keðjulykkju í hverja lykkju fram að fyrsta loftlykkjuboga í umferð
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið í þessari umferð, fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga/millibilið á milli 2 stuðla
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag MARIA CRISTINA RUCCI wrote:

Buona sera, sto facendo il modello 197-31 , sono arrivata al bordo dello scollo. Non capisco che significa nel giro 1: Saltare la prima riga. Grazie

19.02.2024 - 17:44

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Cristina, deve affiancare il lavoro nella cucitura delle spalla e lavorare sul davanti, saltando la prima riga che incontra. Buon lavoro!

21.02.2024 - 08:54

country flag MARIA CRISTINA RUCCI wrote:

Grazie mille per l'aiuto che mi avete dato. Mi scuso per avervi richiesto nuovamente la risposta, ero molto ansiosa di andare avanti con il lavoro e la vostra è arrivata quasi contemporaneamente alla mia richiesta . Di nuovo grazie e se avrò ancora bisogno, mi permetterò di scrivervi. Buona serata

03.02.2024 - 19:46

country flag MARIA CRISTINA RUCCI wrote:

Come mai non avete risposto alle mie domande? Non riesco ad andare avanti con il lavoro

03.02.2024 - 08:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Cristina, abbiamo risposto alle sue domande. Come riportato nelle pagine dei modelli solitamente i commenti vengono evasi in 5-10 gg lavorativi. Buon lavoro!

03.02.2024 - 10:41

country flag MARIA CRISTINA RUCCI wrote:

Non so se vi è arrivato tutto il messaggio, non lo vedo più. Qual è il penultimo giro dello schema A.2a/A.2b? Come mai il 1^ giro in fondo dello schema A.3a inizia lo stesso con i gruppi di 3m.alte e come deve finire il giro? Grazie

29.01.2024 - 11:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Cristina, il penultimo giro di A,2a/A.2b è quello con le 3 maglie alte attorno alla catenella/arco di catenelle. Per il diagramma A.3a abbiamo risposto nell'altra richiesta. Buon lavoro!

03.02.2024 - 10:39

country flag MARIA CRISTINA RUCCI wrote:

A.3a e come deve finire il giro ? Grazie

29.01.2024 - 11:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Cristina, A.3a rappresenta l'inizio del giro, poi prosegue con A.3b e finisce con A.3c. Buon lavoro!

03.02.2024 - 10:37

country flag Darlene Huber wrote:

Hi, I love Drops patterns, but, while the front and back of this one is easy to understand, the sleeves make no sense at all. Why are you jumping around between charts? Wouldn’t it make more sense to use one chart that is simplified? I am re-writing the sleeves for myself so it is understandable and still decreases the same number of double crochet groups, but I shouldn’t have to. The pattern should have been written in an easier formto begin with.

31.10.2023 - 04:04

country flag Linda Wheeler wrote:

I already wrote my comment, but I will restate it here. I love Drops, but the current patterns are undecipherable. If you want to trade yarn for my willingness to help you, please let me know at my email address. Best, Linda

17.06.2023 - 15:11

country flag Linda Wheeler wrote:

I am a long time user of your patterns. I see some critical and distressed comments above. If you need help getting back on track, I will make a mock-up that anyone could follow, and send it to you in exchange for yarn.. Please know that I love Drops, and want to help your company, AND your customers. You may respond to me at my email, below. Sincerely, Linda

17.06.2023 - 15:07

country flag Milja wrote:

Hello Drops! How is it possible that every single one of your patterns is written in such a confusing way? Also the drawn pattern pieces are a nightmare. I wouldn't recommend these to anyone. Consider yourself intelligent and lucky if you can decipher these pieces at all.

18.07.2022 - 16:11

country flag Marilù wrote:

Buona sera, sto facendo questo modello e non vedo la spiegazione di quando e dove iniziare ad unire gli 2 quadretti (non vedo ne anche la voce che indica 2 quadretti! Mi potrebbe aiutare per favore? Grazie!

03.11.2021 - 18:37

DROPS Design answered:

Buonasera Marilù, sotto il paragrafo "confezione" è spiegato come procedere. Buon lavoro!

03.11.2021 - 19:03