DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Alberta Autumn

Heklað sjal úr DROPS Delight. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri og sólfjöðrum.

DROPS 197-30
DROPS Design: Mynstur de-185
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: ca 148 cm. Lengd fyrir miðju: ca 59 cm.

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300 g litur 18, haustskógur

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 12 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.
A.5a og A.6a sýna hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu jafnvel þó að heklað sé til skiptis í hægri og vinstri hlið á sjali og ekki yfir hverja aðra.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður.

Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Delight og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Byrjið á umferð með stjörnu og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka, heklið áfram þannig: A.2a, A.2b og A.2c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð.
Stykkið mælist ca 8 cm frá fyrsta loftlykkjuhring og niður mitt í sjali.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú mynstur frá réttu þannig: Heklið A.3a um fyrsta loftlykkjubogann, A.3b um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3c um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjubogi á sjali), A.3b um hvern og einn af næstu 7 loftlykkjubogum, A.3d um síðasta loftlykkjubogann. Þegar A.3a til A.3d hefur verið heklað til loka á hæðina eru síðustu 4 umferðirnar í mynsturteikningu endurteknar 3 sinnum til viðbótar á hæðina. Stykkið mælist ca 37 cm frá byrjun og niður mitt í sjali.
Nú er hekluð ein umferð með loftlykkjubogum frá röngu þannig: Heklið A.4a yfir A.3a, A.4b yfir A.3b, A.4c yfir A.3c, A.4d yfir A.3d. Nú eru 84 loftlykkjubogar í umferð.
Setjið nú 12 prjónamerki í stykkið. Þetta er gert til að það verði einfaldara að auka út lykkjur jafnt yfir. Setjið prjónamerkin í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið í stuðul á eftir 4 loftlykkjubogum, * hoppið yfir 7 loftlykkjuboga og setjið næsta prjónamerki í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, nú eru eftir 3 loftlykkjubogar í umferð.
Heklið síðan með mynstri A.5b (A.5a sýnir hvernig umferðin byrjar og er hekluð sem viðbót við lykkjur í A.5b), JAFNFRAMT í umferð með ör er aukið út um lykkjur jafnt yfir þannig:
ÖR-1: Aukið út um 2 fastalykkjur hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka fastalykkju um hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir prjónamerki (= 48 lykkjur fleiri) = 300 fastalykkjur.
ÖR-2: Aukið út um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 2 fastalykkjur í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 324 fastalykkjur.
ÖR-3: Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju (= 24 lykkjur fleiri) = 348 stuðlar.
ÖR-4: Aukið út um 2 stuðla hvoru megin við prjónamerki með því að hekla 1 auka stuðul um hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir prjónamerki (= 48 lykkjur fleiri) = 396 stuðlar.
Heklið síðan þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu.
Stykkið mælist ca 51 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Nú eru 66 sólfjaðrir (= 33 mynstureiningar A.5b) í umferð.
Brjótið niður síðustu umferð í A.5a/A.5b þannig að réttan liggi að réttu og heklið frá röngu um umferð með svörtum ferning í A.5b (= umferð með: 1 hálfur stuðull, 3 loftlykkjur o.s.frv.) þannig: Heklið fyrstu umferð í A.6b þannig (A.6a sýnir hvernig umferðin byrjar og er hekluð sem viðbót við A.6b): 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta hálfa stuðulinn, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta hálfa stuðul), heklið sona meðfram öllu sjalinu, JAFNFRAMT er aukið út um 2 loftlykkjuboga hvoru megin við prjónamerkin með því að hekla 1 auka loftlykkjuboga í hvern og einn af 2 loftlykkjubogum á undan og á eftir hverju prjónamerki (= 48 loftlykkjubogar fleiri) = 180 loftlykkjubogar.
Haldið áfram fram og til baka með A.6a og A.6b þar til öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina og endið með 1 stuðul í ystu lykkju frá fyrri umferð. Þegar allt A.6a og A.6b hefur verið heklað til loka á hæðina eru 90 sólfjaðrir í umferð. Sjalið mælist ca 60 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 5 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur er byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga/loftlykkju
symbols = frá réttu: 1 fastalykkja í aftari lykkjuboga. Frá röngu: 1 fastalykkja í fremri lykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = frá réttu: 1 stuðull í aftari lykkjuboga. Frá röngu: 1 stuðull í fremri lykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið eina kúlu um loftlykkjubogann þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum og einum af stuðlunum, heklið 1 stuðul í sama loftlykkjuboga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = um þennan loftlykkjuboga er aukið út um 1 loftlykkjuboga með því að hekla 2 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í mynsturteikningu
symbols = byrjið í þessari umferð (fyrri umferð hefur nú þegar verið hekluð – á við um A.3 og A.5)
symbols = í umferð með ör er aukið út hvoru megin við prjónamerki – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 stuðli í síðustu lykkju
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja. Endið umferð með 1 fastalykkju í síðustu lykkjur
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 4 loftlykkjur. Endið umferð með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu lykkju
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 2 loftlykkjur
symbols = heklið um þessa umferð þegar A.6a og A.6b er heklað – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Eveline wrote:

Bonjour, je veux faire le châle 197-30, mais la laine delight est en rupture. Quand en recevrez vous ? Sinon, par quelle laine je peux la remplacer, et en quelle quantité avec quel crochet ? Merci pour votre réponse.

02.04.2024 - 09:33

DROPS Design answered:

Bonjour Eveline, DROPS Delight n'est plus disponible, mais vous pouvez la remplacer par une autre laine du groupe de fils A, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et les quantités correspondantes. Votre magasin pourra également vous conseiller, même par mail ou téléphone si besoin. Bon crochet!

03.04.2024 - 08:09

country flag Melanie wrote:

Hallo, ich habe soeben 5b finalisiert und stelle fest, dass ich viel zu viele Fächer habe. Leider finde ich aber meinen Fehler nicht. Könnten Sie bitte konkretisieren, wie viele Maschen/Bogen/Noppen in den Reihen nach Pfeil 4 vorgesehen sind? Ich persönlich würde mich generell darüber freuen, wenn ihr das häufiger in eure Anleitungen schreibt. Ich kann mich dann deutlich besser orientieren. Besten Dank!

17.11.2023 - 15:55

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, bei der Reihe mit dem Pfeil -4 sollen Sie insgesamt 396 Stäbchen: 348 Stäbchen hatten Sie nach Pfeil -3, dann haben Sie 116 Mal (1 Stäbchen, 2 Luftmaschen, ie A5b wird 29 Mal wiederholt; und bei dem Pfeil-3 haben Sie 116 Mal 3 Stäbchen + 48 Zunahmen = 396 Stäbchen. Viel Spaß beim häkeln!

20.11.2023 - 09:05

country flag Cecile wrote:

Bonjour. J en suis au diagramme A6. A6a nous dit comment commencer chaque rang et comment le finir. Mais dans les explications il est écrit que chaque rang doit se terminer par une bride dans la maille du bord du rang précédent. Du coup à la fin du rang on termine comme sur la legende du diagramme ou par une bride quoiqu'il arrive? Merci.

27.03.2021 - 16:22

DROPS Design answered:

Bonjour Cecile, les memes techniques sont utilisee dans le chal Magic Summer, regarde le video ici Bon crochet!

30.03.2021 - 16:11

country flag Cécile wrote:

Bonjour. Je reviens vers vous au sujet du passage des 4 fois A3 vers le rang A4. J avais fait mon échantillon. J ai du prendre un crochet 2,5 . J hésite entre deux choix. Je refais les 4 derniers rangs A3 afin d avoir les dimensions. Mais je n aurai plus du tout le bon nombre d arceaux, j\'ai peur de me perdre ensuite. Ou je continue comme si il ne me manquait pas de cm. Et j ajoute des rangs à la fin. Qu en pensez vous ? Merciprvosreponses

05.03.2021 - 12:14

DROPS Design answered:

Bonjour Cécile, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande - une autre version de ce châle avait été faite en version DROPS Along, Magic Summer, cela pourra peut-être vous inspirer. Bon crochet!

05.03.2021 - 13:17

country flag Cecile wrote:

Bonjour. Je viens de finir la partie A3. J ai fait une première fois les diagrammes puis encore 3 fois en hauteur les 4 derniers rangs. J'ai bien l équivalent des 84 futurs arceaux qui seront créés avec A4. Par contre je n'ai pas du tout les 37 cm entre l anneau de départ du chale et le milieu du dernier rang. Il me manque bien 6cm. Que faire.? Continuer le chale ou ajouter une autre fois les 4 derniers rangs de A3 ? En vous remerciant.

04.03.2021 - 17:01

DROPS Design answered:

Bonjour Cécile, si vous n'avez pas les 12 rangs de brides = 10 cm de hauteur de l'échantillon, essayez de bloquer votre échantillon pour voir combien de centimètres vous pouvez étirer, sinon l'idéal est d'utiliser un crochet plus gros pour avoir l'échantillon et donc les bonnes mesures. Retrouvez plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon crochet!

05.03.2021 - 06:57

country flag Cécile wrote:

Bonjour. Je souhaiterais faire ce châle mais un peu plus long. Auriez-vous une idée afin de garder l effet du dernier rang qui fait des "vaguelettes". Merci

01.02.2021 - 18:59

DROPS Design answered:

Bonjour Cécile, une version similaire de ce châle a été réalisé lors d'un DROPS A-long "Magic Summer - vous y trouverez peut être l'inspiration. Bon crochet!

02.02.2021 - 09:48

country flag Denise wrote:

Bonjour, J'ai fini l'ouvrage crocheté dans la laine et la couleur d'origine. Le mélange de points est très joli. Mais ce modèle se pose juste sur les épaules. Donc pour qu'un châle couvre bien et se rejoigne au milieu de la poitrine il faut choisir un modèle en 3/4 de cercle! Il me reste plus d'une pelote de laine, je vais augmenter avec deux ou trois rangées! Merci des conseils reçus au cours de la confection.!

25.12.2020 - 10:56

country flag Gabriella wrote:

Buongiorno, bisogna ripetere i diagrammi A5 e A6 più volte per avere la grandezza desiderata? Li ho fatti tutti e due una volta, lo scialle dovrebbe essere finito ma è largo solo ca100cm invece di 148cm? La prova delle maglie 22 maglie alte in larghezza e 12 righe in verticale = 10 x 10cm è corretta. Grazie in anticipo

17.12.2020 - 12:43

DROPS Design answered:

Buongiorno Gabriella, la lunghezza dello scialle è corretta? Probabilmente ha cambiato la tensione durante la lavorazione. Ha provato a bloccare lo scialle dopo la lavorazione? Buon lavoro!

17.12.2020 - 13:19

country flag Denise wrote:

Bonjour, J'en suis à la partie A.5b et au début du rang "maille serrée - 3 mailles en l'air - maille serrée" qui suit le rang de la 4ème augmentation: j'ai bien mes 396 mailles. Mais est-ce que je ne vais pas perdre 48 mailles si je ne dois faire que 3 mailles en l'air au dessus des groupes de 5 brides qui correspondent aux augmentations du rang précédent) ? L'ouvrage prend forme et je voudrais le terminer, merci d'avance!

09.12.2020 - 13:11

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, quand vous crochetez le rang juste après la flèche 4 (et les augmentations), vous devez sauter 2 mailles pour chaque arceau de 3 mailles en l'air et entre chaque maille serrée, ainsi vous conservez bien les augmentations et votre nombre de mailles "aquis". Bon crochet!

09.12.2020 - 16:10

country flag Denise wrote:

Bonjour, j'en suis à l'étape des 84 arceaux. Pour placer le premier fil marqueur, après les 4 premiers arceaux , je suis sur une maille serrée pas sur une bride. Pourquoi? Ou est-ce que je me suis trompée?

27.11.2020 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, il semble effectivement que vous pouvez voir votre marqueur soit dans une maille serrée soit dans une bride, mais ce qui compte ici c'est de bien avoir le bon nombre d'arceaux entre chaque marqueur. Bon crochet!

30.11.2020 - 07:49