Lisbeth Lund skrifaði:
Når jeg læser A1- er det korrekt, at jeg strikker (linje 5)* 2r-slå om- 3r-slå om-3r- slå om- 2r-*og gentag p. ud.\r\nEller er det 2r-*slå om- 3r-slå om - 3r- slå om- *gentag fra *-*og afslut med 2r.?
19.03.2024 - 12:55DROPS Design svaraði:
Hei Lisbeth. Du gjentar hele diagrammet. I str. L-XL-XXL-XXXL strikker du slik: * 2r-slå om- 3r-slå om-3r- slå om- 2r*. mvh DROPS Design
02.04.2024 - 09:33
Ruth skrifaði:
When I follow the directions I have 4 garter stitch ridges at the neckline. The picture seems to have only 2. What could I be doing incorrectly?
17.02.2023 - 22:41DROPS Design svaraði:
Dear Ruth, the instructions are correct, there are 4 garter stitch ridges at the neckline. Happy knitting!
19.02.2023 - 19:41
Kate Sumer skrifaði:
Om jag lägger upp 10 maskor under varje ärm borde antalet maskor bli 188 för fram o bakstycke
02.08.2021 - 23:05
Conceição skrifaði:
Não entendi a explicação do primeiro aumento do encaixe. Pede para aumentar 6 pontos em intervalos regulares mas no gráfico A1 (M), mostra a cada 4.
10.02.2021 - 11:31
Anne Larsen skrifaði:
I laver så mange skønne opskrifter. Forstår bare ikke hvorfor i fravælger størrelse xs når i ellers har op i størrelse XXXL
09.01.2020 - 19:00
Zuzanna skrifaði:
Hello, looking at the picture I suppose that before starting A1 rows we should knit one row and purl the other side im order to have thr gap between gartner stitches. Am I right? Is there a mistake in the description?
07.09.2019 - 13:04DROPS Design svaraði:
Dear Zuzanna, after the cast on you'll work garter stithc for 1½ cm, then knit 1 row from the right side with increases and finally knit 1 row from wrong side. Than you can start with A.1 as explained. Knit 1 row from the wrong side. Change to circular needle size 5.5 mm.
08.09.2019 - 10:51
Blue November Jacket#bluenovemberjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino með hringlaga berustykki og blöðruermum. Stærð S-XXXL.
DROPS 205-32 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-8-8 næstu hnappagötum með ca 8-8-7½-7½-7-7 cm millibili. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkju = 74 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 12. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir neðst á ermi): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 2,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 1. og 2. hverja lykkju og 2. og 3. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Lengdin á ermum er hægt að jafna til eins og útskýrt er í uppskrift, en passið uppá að lengdin á ermum á að vera aðeins lengri en venjulega til að ermin poki aðeins neðst niðri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón niður að þar sem stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 80-84-86-92-94-100 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Big Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í 1½ cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 2-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 82-90-90-98-98-106 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 8 lykkjur) alls 9-10-10-11-11-12 sinnum á breidd og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 217-250-260-296-296-322 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-2-8-0-8-13 lykkjur jafnt yfir = 223-252-268-296-304-335 lykkjur. Prjónið sléttprjón með kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti þar sem stykkið er styst. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki í næstu umferð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 32-35-37-43-45-51 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 62-70-74-84-88-99 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-51-55-58-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 31-35-37-43-45-51 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki)= 151-166-178-200-212-235 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir hvorri ermi (= 2 prjónamerki = 70-78-84-94-100-111 lykkjur á bakstykki). Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar fram- og bakstykki mælist 3 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 4-4½-4-4-3½-4½ cm millibili alls 7-6-7-7-8-6 sinnum = 179-190-206-228-244-259 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-33-34-34-34-34 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið garðaprjón yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 35-35-36-36-36-36 cm frá skiptingu. ERMI: Setjið 44-51-55-58-58-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 52-59-65-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8-8-10-10-12-12 lykkja. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona með 10-3-3-3-5-5 cm millibili alls 2-4-4-4-3-3 sinnum = 48-51-57-60-64-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 22-21-20-19-17-16 cm frá skiptingu, aukið út um 8 lykkjur þannig: Prjónið * 6-6-7-7-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 56-59-65-68-72-76 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Þegar ermin mælist 24-23-22-21-19-18 cm frá skiptingu, aukið út þannig: Prjónið * 7-7-8-8-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum og endið með 0-3-1-4-0-4 lykkjur slétt = 64-67-73-76-80-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-36-34-32-31 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Í næstu umferð er fækkað um 26-29-33-34-36-40 lykkjur jafnt yfir sjá ÚRTAKA-2! Nú eru 38-38-40-42-44-44 lykkjur eftir á ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn í 5 cm – sjá útskýringu að ofan. Ermin mælist 43-42-41-39-37-36 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluenovemberjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.