Stéphanie skrifaði:
Bonjour, C’est mon premier pull en jacquard. Je ne comprends pas comment faire l’échantillon : faut-il prendre 1 fil ou 2 fils ? Combien de rangs mousse et combien en jacquard ? Quel motif faire dans l’échantillon (A.2 uniquement ?) ? Et enfin quelle taille d’aiguille prendre ? Merci par avance ! ☺️
27.01.2024 - 14:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Stéphanie, l'échantillon doit être tricoté dans le même motif que le pull, autrement dit, alternativement avec l'une et l'autre couleur, cette vidéo pourra peut-être vous aider. Tricotez cet échantillon avec les aiguilles 3,5. Bon tricot!
29.01.2024 - 11:46
Daniela skrifaði:
Hallo! Bei der Zunahme steht, dass die Maschen kraus rechts in das Muster eingearbeitet werden sollen. Bezieht sich das auf den Mustersatz A.2 oder A.3? Vielen Dank!
23.08.2021 - 12:37DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, stricken Sie die Zunahmen in A.2 (lesen Sie ein neues Rapport links nach rechts am Anfang der Reihe und rechts nach links am Ende der Reihe, aber nach A.3). Viel Spaß beim stricken!
23.08.2021 - 14:35
Ilse skrifaði:
Mooi design
13.07.2019 - 10:29
City Chic#citychicsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með pepita mynstri úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og rúðumynstri með löngum lykkjum. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á bakstykki, framstykki og ermar). Aukið út innan við ystu lykkju í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni og prjónið jafnóðum inn í mynstur AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með tvöföldum þræði. Eða hægt er að fella ef með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjón hvert fyrir sig. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman áður en kantur í hálsmáli er prjónaður. BAKSTYKKI: Notið 2 þræði svartur og fitjið upp 95-105-115-125-140-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, í ca 2 til 2½ cm með 2 þráðum í litnum svartur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn og prjónið áfram með einum þræði. Nú byrjar pepita mynstrið, þ.e.a.s. prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 105-115-125-135-150-165 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-6-8-8-11 sinnum í hvorri hlið = 85-95-95-95-100-105 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 41-41-41-41-46-51 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 20-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til eftir er ca ½ cm þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, en endið eftir annað hvort heila rönd með litnum svartur eða heila rönd í litnum hindber. Skiptið yfir á hringprjón 3. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum svartur. Felllið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 95-105-115-125-140-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón fram og til baka í ca 2 til 2½ cm með 2 þráðum í litnum svartur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Takið frá annan þráðinn og prjónið áfram einungis með einum þræði. Prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-5-5-6-6-6 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 105-115-125-135-150-165 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 3-3-6-8-8-11 sinnum í hvorri hlið = 85-95-95-95-100-105 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, setjið miðju 33-33-33-33-36-41 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 20-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til eftir er ca ½ cm þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, en endið á sama stað og á bakstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3. Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með litnum svartur. Felllið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Notið 2 þræði í litnum svartur og fitjið upp 58-58-62-62-66-66 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3. Allt stroffið er prjónað með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-8-7-7-6-6 lykkjur jafnt yfir = 50-50-55-55-60-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan einungis með 1 þræði. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 2 lykkjur, endurtakið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.3 yfir 1 lykkju og endið með A.1 yfir 2 síðustu lykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-7-8-6-9 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-17-18-21-22-24 sinnum = 80-84-91-97-104-108 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-51-51-50-49-47 cm (nú eru eftir ca 8-8-9-11-12-14 cm þar til ermakúpan hefur náð réttu máli, en athugið að það á að brjóta uppá 3 neðstu cm). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Prjónið nú ermakúpu, þ.e.a.s. fellið lykkjur af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorir hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 12-12-14-17-20-24 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 58-58-59-60-60-60 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 59-59-60-61-61-61 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Brjótið uppá neðstu 3 cm á ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið 2 þræði svartur og stuttan hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu ca 106 til 128 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 124-124-128-132-140-148 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citychicsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.