Marit Louise Jordhøy skrifaði:
Hvilken lengde pa rundpinne bor jeg bruke pa dette skjerfet?
19.08.2019 - 09:47DROPS Design svaraði:
Hej Marit Louise! DROPS RUNDPINNE NR 10, lengde på 60 cm! God fornøjelse!
08.10.2019 - 21:31
Isabelle Tonetti skrifaði:
Magnifique
30.07.2019 - 18:33
Regina skrifaði:
Sehr wirkungsvoll. Geht das auch mehrfarbig?
12.06.2019 - 22:26
Murielle Le Laurent skrifaði:
Magnifique écharpe, bien travaillé, bien large!!!
10.06.2019 - 02:02
Astrid skrifaði:
Deze set wil iedereen wel voor de winter😍😍
08.06.2019 - 23:56
Beatrice DELEPINE skrifaði:
Belle echarpe, beau design, super.
08.06.2019 - 12:55
Ellis skrifaði:
This is a very very quick knit for a not to expensive present. again large needles and easy cablepattern
06.06.2019 - 18:04
Anna skrifaði:
Velmi pěkná souprava na zimu
05.06.2019 - 18:35
Caroline skrifaði:
Speelse en moderne kabel, erg leuk.
05.06.2019 - 17:41
Morgana skrifaði:
Bellissimo completo sciarpa e berretto ed un bellissimo colore che stacca dal solito marrone classico
05.06.2019 - 17:28
Autumn Twist#autumntwistset |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsklútur úr DROPS Snow eða DROPS Wish með áferðamynstri og köðlum.
DROPS 204-10 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsklútur: Sjá mynsturteikningu A.2. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 43 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 6 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 5,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 56-60 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með Snow eða Wish. Prjónið storffprjón hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 14-15 mynstureiningar með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-25 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar úrtaka og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT eru klukkuprjóns lykkjurnar prjónaðar eins og venjulega slétt í hverri umferð. Í fyrstu umferð með úrtöku, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu = 42-45 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Í næstu umferð er 2 lykkjur brugðið fækkað í 1 lykkja brugðið = 28-30 lykkjur. Prjónið 2 umferðir með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir með sléttum lykkjum þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðum = 7-8 lykkjur eftir. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 29-30 cm ofan frá og niður. Brjótið uppá neðstu 6 cm á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 43 lykkjur á prjón 10 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffprjón þar til prjónaðar hafa verið 3 umferðir stroffprjón. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) – JAFNFRAMT er aukið út um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 50 lykkjur. Prjónið síðan A.2 fram og til baka yfir allar 50 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til hálsklúturinn mælist ca 167 cm, en endið þegar prjónaðar hafa verið ca 3 eða 5 umferðir eftir kaðla (síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7 lykkjur jafnt yfir = 43 lykkjur. Næst umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram í stroffprjóni þar til prjónaðar hafa verið 3 umferðir stroffprjón. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Hálsklúturinn mælist ca 170 cm. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumntwistset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.