Marie skrifaði:
Super joli et dimensions PARFAITES. Ne rien changer !
06.06.2019 - 23:32
Emi skrifaði:
Elegante y versátil pues también vale como diseño para el verano
06.06.2019 - 16:47
Ann Cave skrifaði:
Like pattern but bit short, looks cut off.
06.06.2019 - 10:54
Marianne skrifaði:
Would be nice as a tunic
06.06.2019 - 09:15
Mimi Routh skrifaði:
Nice proportions. I would make it a bit roomier. Sweet detail!
06.06.2019 - 00:17
Cisca skrifaði:
Sunny warmth
05.06.2019 - 21:01
Trixi skrifaði:
Der hat einen wunderschönen kragen. ich würde mich freuen, wenn der ins programm kommt.
05.06.2019 - 20:18
Anna skrifaði:
Velmi elegantní svetřík.
05.06.2019 - 18:40
Harvest Gold#harvestgoldsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað með v-hálsmáli og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-7 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 240 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 40) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 240-260-285-310-335-365 lykkjur á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 40-44-49-54-55-61 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 200-216-236-256-280-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki (= 100-108-118-128-140-152 lykkjur á framstykki og bakstykki). Byrjið umferð við annað prjónamerkið (= í hlið). Prjónið nú sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 6-7-8-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 4 sinnum = 184-200-220-240-264-288 lykkjur (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á milli 2 prjónamerkja fyrir framstykki og bakstykki). Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er mynstur A.1 prjónað yfir miðju 22 lykkjur á framstykki. Lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður (= 35-39-44-49-55-61 lykkjur í sléttprjóni hvoru megin við A.1 á framstykki). Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af 2-3-4-5-7-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4-6-8-10-14-18 lykkjur hafa verið felldar af fyrir handveg í hvorri hlið). Nú eru 88-94-102-110-118-126 lykkjur á bakstykki. Hversu margar lykkjur eru eftir á framstykki kemur til með að fara eftir prjónfestunni og hversu margar umferðir í mynstri A.1 hafa verið prjónaðar á hæðina. Prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.1, sléttprjóni og prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi og v-hálsmáli þannig: Handvegur: Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-0-1-2-3-5 sinnum og 1 lykkja 3-4-5-6-7-6 sinnum (= alls 5-7-11-15-20-25 lykkjur felldar af í hvorri hlið meðtaldar fyrstu 2-3-4-5-7-9 lykkjurnar sem felldar voru af hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið). V-hálsmál: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina skiptist framstykkið fyrir miðju fyrir hægri og vinstri öxl. Nú eiga að vera jafn margar lykkjur fyrir hægri og vinstri öxl og stykkið er skipt mitt í mynsturteikningu A.1. Setjið lykkjur fyrir vinstri öxl á þráð og prjónið hægri öxl þannig: Hægri öxl: Byrjið frá réttu og prjónið mynstur frá v-hálsmáli þannig: A.2 yfir fyrstu 12 lykkjur, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona fram og til baka (affelling fyrir handveg heldur áfram ef henni er ekki lokið) og í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8-7-7-6-6-5 sinnum og í 4. hverri umferð 5-6-7-8-9-10 sinnum (alls 13-13-14-14-15-15 lykkjur færri) = 33-35-35-36-36-36 lykkjur. Prjónið síðan með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 12 lykkjur (= kantur í hálsi), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 21-23-23-24-24-24 lykkur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-4 lykkjur jafnt yfir = 16-18-18-19-19-20 lykkjur + 12 lykkjur fyrir kant í hálsi! Snúið og fellið af 16-18-18-19-19-20 lykkjur fyrir öxl. Prjónið nú fram og til baka yfir 12 lykkjur (= kantur í hálsmáli) þannig: Prjónið A.2 fram og til baka yfir 12 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl, prjónið stuttar umferðir í mynstri eins og áður með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið og prjónið yfir fyrstu 3 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* 2 sinnum (þetta er gert til að kanturinn í hálsmáli falli betur í hnakka – hliðin sem er lengst frá hnakka verður aðeins lengri en hlið sem er næst hnakka). Haldið síðan áfram með A.2 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14-14-15-15-15-15 cm meðfram lengri hlið frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vinstri öxl: Byrjið frá réttu og prjónið mynstur frá handveg þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni, A.3 yfir síðustu 12 lykkjur (= að v-hálsmáli). Haldið svona áfram fram og til baka, jafnframt heldur úrtaka áfram fyrir handvegi og í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 8-7-7-6-6-5 sinnum og í 4. hverri umferð 5-6-7-8-9-10 sinnum (alls 13-13-14-14-15-15 lykkjur færri) = 33-35-35-36-36-36 lykkjur. Prjónið síðan með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm). Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 21-23-23-24-24-24 lykkjur og fækkið jafnframt um 5-5-5-5-5-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðan A.3 yfir þær 12 lykkjur sem eftir eru (= kantur í hálsmáli) = 16-18-18-19-19-20 lykkjur + 12 lykkjur í A.3. Snúið og prjónið yfir fyrstu 12 lykkjur, fellið síðan af 16-18-18-19-19-20 lykkjur fyrir öxl. Klippið frá. Byrjið frá réttu og prjónið A.3 fram og til baka yfir 12 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl, prjónið stuttar umferðir í mynstri eins og áður með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur, snúið og prjónið til baka, snúið og prjónið yfir fyrstu 3 lykkjur, snúið og prjónið til baka, prjónið yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* 2 sinnum (þetta er gert til að kanturinn í hálsi falli betur í hnakka – hliðin sem er lengst frá hnakka verður aðeins lengri en hlið sem er næst hnakka). Haldið síðan áfram með A.3 þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14-14-15-15-15-15 cm meðfram lengri hlið frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: Nú eru 88-94-102-110-118-126 lykkjur á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg alveg eins og á framstykki (= alls 5-7-11-15-20-25 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 82-86-88-90-92-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm fellið af miðju 42-42-44-44-46-46 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-18-18-19-19-20 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (handvegurinn mælist 19-20-21-22-23-24 cm). Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 50-55-55-60-60-65 lykkjur á sokkaprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt síðan er prjónað stroff (= 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11-9-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 43-44-46-48-50-53 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-11-12-11-11-9 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7-6-5-5-4-4. hverri umferð alls 14-16-18-19-21-22 sinnum = 71-76-82-86-92-97 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-47-46-44-42 cm. Fellið af miðju 4-6-8-10-14-14 lykkjur undir ermi fyrir handveg (= 2-3-4-5-7-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka með sléttprjóni, JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-4-3-3-2-2 sinnum, 1 lykkju 0-0-5-7-12-16 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-2-2-1 sinni og 3 lykkjur 2-2-2-2-1-1 sinni = 23-26-28-30-32-33 lykkjur til baka. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist alls 55-55-56-56-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið báða kantana í hálsi saman innan við affellingarkantinn. Saumið síðan kant í hálsi við hnakka aftan á bakstykkið. Saumið innan við 1 kantlykkju garðaprjón í kant í hálsmáli og innan við affellingarkant á bakstykki. Saumið ermar við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harvestgoldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.