Marianne skrifaði:
Jeg har brug for uddybning af hækleinformation 2 i forhold til ærmet. Hvor mange luftmasker tager man i begyndelsen af en dobbelt stangmaskerække og hvor mange luftmasker tager man i begyndelsen af en tre dobbelt stangmaske række? På forhånd tak.
20.07.2020 - 11:29DROPS Design svaraði:
Hej Marianne, du erstatter begge med 3 luftmasker. God fornøjelse!
31.07.2020 - 09:49
Helena Reinikainen skrifaði:
Mitä tarkoittaa ohjeessa 199-50 tähti kerros on jo virkattu, Aloita seuraavalta kerrokselta???????
06.07.2020 - 17:41DROPS Design svaraði:
Tämä kerros virkataan ennen kuin aloitetaan piirrosten mallivirkkaus ohjeen mukaisesti. Eli jätät tämän kerroksen piirroksesta väliin ja virkkaat seuraavan kerroksen mukaisesti.
13.07.2020 - 14:30
Zaida skrifaði:
Al llegar a la disminución de sisas dice que se debe cortar el hilo, por qué hay que cortarlo? Además, en las instrucciones de disminución habla de hacer una hebra, qué quiere decir con eso? No se entienden las instrucciones: hay que cortar el hilo por cada pilar que se haga?
24.05.2020 - 01:03DROPS Design svaraði:
Hola Zaida, como para las disminuciones de la manga hay que saltar 2-6-10... puntos para la sisa, se corta el hilo para que el hilo no quede colgando y se asegura el hilo en el 1º punto a trabajar para continuar la labor.
20.11.2020 - 20:24
Emma skrifaði:
Jag tror att det står fel under "framstycket, nedre delen". Det står att man ska virka A.13 och sedan gå över till A.12 och sedan A.15. Men det borde väl vara A.14 och inte A.12? Och sedan står det att man ska virka A.11-A.13 på höjden, det borde väl vara A.13-A.15? Annars kommer man ju inte att få det mönstret som ses på modellbilden?
11.06.2019 - 16:56DROPS Design svaraði:
Hei Emma. Ja det har du rett her var det en feil. Dette er nå rettet - du hekler altså A.13, A.14 x antall ganger og A.15 til alutt. Takk for beskjed og god fornøyelse
12.06.2019 - 14:29
Gunvor Madsen skrifaði:
Ser rigtig flot ud og lidt af en udfordring. Ville jeg gerne forsøge mig med når mønstret kommer.
14.02.2019 - 08:48
Debbie Hayward skrifaði:
Beautiful, practical design, well done! Sea Foam??
25.01.2019 - 18:02
Ani skrifaði:
Sehr hübsch
08.01.2019 - 15:37
Sylke skrifaði:
Elegant
05.01.2019 - 18:41
Beti skrifaði:
Dieses Modell ist traumhaft, würde es gern nacharbeiten.
20.12.2018 - 13:23
Summer Lace#summerlacetop |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað neðan frá og upp og ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-50 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.17. ÚRTAKA: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚTAUKNING: Heklið 2 stuðla í sömu lykkju (= 1 stuðull fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: Stykkið er heklað fram og til baka í hlutum og saumað saman í lokin. Heklað er frá mitti, neðan frá og upp. Síðan er heklað frá mitt og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. FRAMSTYKKI (efri hluti): Stykkið er heklað neðan frá og upp. Heklið 90-98-108-121-131-144 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Light. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2-4-2-3-1-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 14-15-17-19-21-23 sinnum = 74-81-89-100-108-119 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1 yfir 8-10-14-18-22-26 lykkjur (= 4-5-7-9-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum), heklið A.2 yfir 17 lykkjur, A.3 yfir næsta stuðul, heklið A.4 yfir 18-21-21-24-24-27 lykkjur (= 6-7-7-8-8-9 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.5 yfir 3 lykkjur, heklið A.6 yfir 17 lykkjur, heklið A.7 yfir 8-10-14-18-22-26 lykkjur (= 4-5-7-9-11-13 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með 1 stuðli í síðustu lykkju. Þegar öll mynsturteikning A.1 til A.7 hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar áfram. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. klippið frá (á ekki við um stærð S). Heklið næstu umferð þannig (frá réttu): Hoppið yfir 0-2-6-10-14-18 lykkjur fyrir handveg, festið þráðinn með 1 keðjulykkju (á ekki við um stærð S) og heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) í næstu lykkju, heklið A.8 yfir 6 lykkjur, heklið A.1 yfir 2 lykkjur, haldið áfram með mynstur A.2 til A.6 eins og áður, heklið A.7 yfir 2 lykkjur, heklið A.9 yfir 6 lykkjur og endið með 1 stuðul í næstu lykkju. Nú eru eftir 0-2-6-10-14-18 lykkjur í umferð fyrir handveg. Þegar A.8 og A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur verið fækkað um alls 3-4-6-8-10-12 mynstureiningar (með 2 lykkjum) af A.1 og A.7 í hvorri hlið á stykki. Heklið áfram eins og áður, þ.e.a.s. heklið þannig: 1 stuðull í fyrstu lykkju, þ.e.a.s. heklið þannig: 1 stuðull í fyrstu lykkju, heklið A.1 yfir 2 lykkjur, haldið áfram með mynstur A.2 til A.6 eins og áður (jafngildir yfir 56-59-59-62-62 lykkjur), heklið A.7 yfir 2 lykkjur og 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 21-23-25-25-27-29 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið nú vinstri öxl þannig: Heklið 1 stuðul, A.1 og A.2 eins og áður, síðan er heklað A.10. Þegar A.10 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað með 1 stuðul, A.1, A.2 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir miðju 3-4-4-5-5-6 loftlykkjubogana (= hálsmál): Byrjið frá réttu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.11 (= yfir 2 loftlykkjuboga), heklið A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður. Þegar A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir vinstri öxl. Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI (neðri hluti): Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið 1 stuðul í hverja og eina af sömu loftlykkjum og efri hluti á framstykki (= þ.e.a.s. í 74-81-89-100-108-119 loftlykkjur) – JAFNFRAMT er fækkað um 4-3-5-6-4-3 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 70-78-84-94-104-116 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, endurtakið A.12 (= 2 lykkjur) þar til eftir er 1 lykkja, endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram þar til A.12 hefur verið heklað til loka á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4-10-4-8-12-14 stuðla jafnt yfir – sjá útaukning = 74-88-88-102-116-130 stuðlar. Heklið nú þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, heklið A.13 yfir 7 lykkjur, heklið A.14 yfir næstu 56-70-70-84-98-98 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 mynstureiningar yfir 14 lykkjur), heklið A.15 yfir 9 lykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Haldið áfram þar til A.13 til A.15 hefur verið heklað til loka á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til með því að fækka/auka lykkjum jafnt yfir til 81-90-96-105-117-129 stuðlar. Heklið síðan þannig: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, A.3 yfir 1 lykkju, endurtakið A.4 þar til 4 lykkjur eru eftir (= 25-28-30-33-37-40 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.5 yfir 3 lykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu lykkju. Þegar öll mynsturteikning A.3 til A.5 hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar áfram. Þegar neðri hluti á framstykki mælist ca 24 cm í öllum stærðum (= ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl), endið eftir síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI (efri hluti): Stykkið er heklað neðan frá og upp. Heklið alveg eins og framstykki þar til lykkjum hefur verið fækkað fyrir handveg. Heklið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið nú hægri öxl þannig: Heklið 1 stuðul, A.1 og A.2 eins og áður, síðan er A.10 heklað. Þegar A.10 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.1, A.2 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir framstykki. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir miðju 3-4-4-5-5-6 loftlykkjuboga (= hálsmál). Byrjið frá réttu og heklið vinstri öxl þannig: Heklið A.11 (= yfir 2 loftlykkjuboga), heklið A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður. Þegar A.11 hefur verið heklað til loka á hæðina er heklað áfram með 1 stuðul, A.6, A.7 og 1 stuðul eins og áður þar til stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm – stillið af eftir vinstri öxl. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI (neðri hluti): Heklið á sama hátt og framstykki (neðri hluti). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka. Byrjið í hlið undir ermi og heklið jafnt yfir í umferð í kringum allan handveg (ATH: ekki hekla yfir 0-4-12-20-28-36 lykkjur mitt undir ermi á berustykki, það á að sauma ermina að þessum lykkjum í lokin) þannig: Heklið * 1 stuðul um ystu umferð, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* alls 33-33-36-39-39-44 sinnum, hringinn allan handveginn og endið með 1 stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2 = 67-67-73-79-79-85 lykkjur. Heklið síðan þannig: Heklið A.16 þar til 1 lykkja er eftir (= 11-11-12-13-13-14 mynstureiningar yfir 6 lykkjur) og endið með A.17 yfir síðustu lykkju. Endurtakið A.16 og A.17 á hæðina þar til ermin mælist ca 24-24-24-28-28-28 cm – endið eftir síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hvora hlið á ermi að fram- og bakstykki og saumið síðan sauma undir ermi – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið á annarri öxlinni og heklið * 1 fastalykkja um ysta stuðul/umferð, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram öllum hálsinum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerlacetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.