Costa del Sol |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferð, gatamynstri og A-formi. Stærð S-XXXL.
DROPS 200-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 115 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 35. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 35. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út/fækkað lykkjum yfir kanta að framan. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi 34. og 35. hver lykkja prjónuð saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaðir hafa verið ca 1½-2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-9 cm millibili. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 115-119-123-129-133-141 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-6-14-2-4-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 119-125-137-131-137-149 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú mynstur þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 18-19-21-20-21-23 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 245-258-284-311-326-356 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-13-13-13 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2, kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni eins og áður. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 317-334-368-391-410-448 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan, í fyrstu umferð eftir A.3 og A.4 er lykkjufjöldinn jafnaður til 314-346-366-394-418-450 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 47-51-55-60-65-71 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 68-76-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-92-100-110-120-132 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 68-76-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 47-51-55-60-65-71 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-230-250-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út. Prjónið sléttprjón, kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 9 sinnum = 230-246-266-286-310-334 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður) þar sem aukið er út um 37-39-43-45-49-53 lykkjur jafnt yfir = 267-285-309-331-359-387 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-76-78-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að aukið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-2.-2.-2.-1.-1. hverri umferð alls 11-15-14-16-15-17 sinnum = 54-54-60-60-66-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-16-15-13-12-10 cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 9-9-10-10-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Í næstu umferð eru allir uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndist göt og síðan er prjónað þannig: Prjónið * 9-9-10-10-11-11 lykkjur slétt, 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 30-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið A.5 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Prjónið stroff svona í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Ermin mælist ca 32-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Will wrote:
De telpatronen laten alle naalden in patroon aan de goede kant zien. wil dat zeggen dat een regel 2nld zijn.
05.09.2019 - 17:59DROPS Design answered:
Dag Will,
Nee, zowel de heengaande als de teruggaande naald is te zien in het telpatroon.
De eerste naald en alle andere oneven naaalden in het telpatroon zijn aan de goede kant. Alle even naalden in het telpatroon zijn aan de verkeerde kant.
08.09.2019 - 17:33Ina wrote:
U schrijft, patronen zijn enkel aan de goede kant te zien. Betekent het dan dat 1 tegel patroon 2 naalden zijn? In dat geval wordt het patroon veel te groot in lente.
11.06.2019 - 14:34Claire wrote:
Magnifique . sûr je me le ferai
22.12.2018 - 18:13Erika wrote:
Aan de onderkant van de mouw hetzelfde motief , verkleind .
13.12.2018 - 13:12Hanne Staun wrote:
Ananas
12.12.2018 - 10:16