Jenny skrifaði:
Hej! Är helt ny på virkning och vet inte om jag läst konverteraren rätt- kan jag byta rakt av nepalgarnet till denna toffla och använda paris istället? Om jag vill anvönda alpaca ska jag då använda 2 trådar då? Tack på förhand 😊Mvh jenny
14.08.2023 - 10:06DROPS Design svaraði:
Hej Jenny, ja du förstår konverteraren helt rätt :)
16.08.2023 - 11:58
Sus Leth skrifaði:
I would like to know when this pattern was published?
20.06.2020 - 17:08
Michelle skrifaði:
Cute and easy to fallow making for Christmas thanks for this awesome pattern
14.08.2019 - 02:08
Laura skrifaði:
Podrías hacer video de pantuflas? pars que sea más fácil de realizar
17.06.2019 - 16:06DROPS Design svaraði:
Hola Laura. Cada día publicamos nuevos vídeos. Síguenos en las redes sociales para poder ver qué vídeos se publican. Enviaremos tu sugerencia al departamento de vídeos.
20.06.2019 - 23:09
Marie Josee Giangreco skrifaði:
Merci pour ses beaux modèles et vos vidéos bien expliquées
04.06.2019 - 17:00
Marina skrifaði:
ORIGINALI BABBUCCE CON I QUADRATI GRANNY
12.12.2018 - 16:21
Himalayan Rose#himalayanroseslippers |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með blómum í ferningum og röndum úr DROPS Nepal. Stærð 35 - 43.
DROPS 198-19 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLAÐUR FERNINGUR: Sjá heklaður ferningur mynsturteikning A.1 og lesið LITASKIPTI í útskýringu að neðan. Uppfitjunarhringur og 1. umferð er heklað með litnum millibleikur. UMFERÐ 2: Heklið með litnum kirsuber. UMFERÐ 3: Heklið með litnum gulur. UMFERÐ 4: Heklið með litum ljós beige. UMFERÐ 5: Heklið með litnum gulur – og þessi umferð byrjar í horni á ferningi við ör og er bara hekluð í 3 af hliðunum. RENDUR-TÁ: Hversu margar rendur eru heklaðar í hverjum lit er valfrjálst. T.d: UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur UMFERÐ 2: Heklið með litnum gulur eða millibleikur. UMFERÐ 3: Heklið með litnum millibleikur eða ljós beige. UMFERÐ 4: Heklið með litnum ljós beige eða kirsuber. Heklið til loka með kirsuberjarauður. RENDUR-NEÐRI HLUTI: UMFERÐ 1: Heklið með litnum gulur. UMFERÐ 2: Heklið með litnum millibleikur. UMFERÐ 3: Heklið með litnum ljós beige. UMFERÐ 4 og áfram: Heklið til loka með gulur. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð er hekluð keðjulykkja í lok fyrri umferðar með nýja litnum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: HEKLIÐ 2 HÁLFA STUÐLA SAMAN Í 1 LYKKJU = 1 LYKKJA FÆRRI: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 36 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 4. Í þessu dæmi þá eru heklaðar 3. og 4. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er ferningur A.1 heklaður, síðan er neðri hlutinn heklaður á tvær gagnstæðar hliðar á ferningi, síðan er táin hekluð og að lokum hælstykkið. TÁTILJA: Byrjið á að heklað ferning mitt á fæti – sjá mynsturteikningu A.1 og lesið HEKLAÐUR FERNINGUR að ofan. Tilbúinn ferningur mælist ca 10 x 10 cm. NEÐRI HLUTI: Neðri hlutinn samanstendur af 2 alveg eins stykkjum, sem eru bæði hekluð fram og til baka á viðkomandi hlið-B og hlið-D, þessar hliðar eru saumaðar saman undir fæti í lokin. Fyrri hlutinn er heklaður á fernings hlið-B, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá lit sjá RENDUR-NEÐRI HLUTI í útskýringu að ofan. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju = alls 17 hálfir stuðlar. Heklið hálfa stuðla fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-6-7 cm (snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum). Klippið frá og festið enda. Saumið síðan saman þessi stykki mitt undir fæti – saumið í ystu lykkjubogana á síðustu umferð á lykkjum svo að saumurinn verði ekki þykkur og verði óþægilegur þegar tátiljurnar eru notaðar. TÁ: Táin er hekluð í hring meðfram hlið-E, sjá mynsturteikningu A.1. Til að sjá liti sjá RENDUR-TÁ í útskýringu að ofan, lesið LITASKIPTI í útskýringu að ofan. Heklið 1 hálfan stuðul í hverja lykkju meðfram hlið-E (= 17 hálfir stuðlar), síðan eru heklaðir 19-21-23 hálfir stuðlar í kringum neðri hluta á fæti = alls 36-38-40 hálfir stuðlar. Endið hverja umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð og heklið 2 loftlykkjur. Haldið áfram hringinn með hálfa stuðla í alls 4-4-5 umferðir. Heklið síðan 3-4-5 umferðir þar sem fækkað er um 9-7-6 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 9-10-10 lykkjur. Klippið frá og þræðið þræðinum upp og niður í kringum toppinn, dragið saman og festið vel. HÆLSTYKKI: Heklið með litnum gulur. Um loftlykkjuboga í horni á hlið-C eru heklaðir 3 hálfir stuðlar og síðan eru heklaðir upp 22-24-26 hálfir stuðlar meðfram neðri hluta á fæti, að lokum eru heklaðir 3 hálfir stuðlar um loftlykkjuboga í horni á fernings hlið-C = 28-30-32 lykkjur. Heklið nú hæl áfram með hálfum stuðlum með litnum millibleikur. Snúið hverri umferð með 2 loftlykkjum. JAFNFRAMT í 2. umferð er aukið út um 1 hálfan stuðul í lok umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lok hverrar umferðar með því að hekla 2 lykkjur í síðustu lykkju. Endurtakið þessa útaukningu í lokin á hverri umferð alls 6 sinnum (þ.e.a.s. 3 sinnum í hvorri hlið) = 34-36-38 lykkjur. Haldið áfram þar til öll tátiljan mælist ca 22-24-27 cm. Heklið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman kant í kant mitt aftan á hæl. Að lokum er hekluð 1 umferð með hálfum stuðlum í litnum gulur í kringum opið á tátiljunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #himalayanroseslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.