Shari skrifaði:
It seems that pages 8 and 11 are not printing. All the other pages printed out, but I couldn’t get those two to print.
16.07.2019 - 18:06DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Shari, just check that your printers settings didn't saved previous settings, so that all pages will be printed. Happy knitting!
17.07.2019 - 11:18
Precious Moments#preciousmomentsjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð fyrirburar til 3/4 ára.
DROPS Baby 33-11 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. lLEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Byrjið frá réttu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í síðustu umferð á undan kanti í hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift). 0 MÁNAÐA: 2, 5, 8, 11, 15 og 18 cm 0/1 MÁNAÐA: 2, 6, 10 ,14, 18 og 22 cm 1/3 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 22 og 26 cm 6/9 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 22 og 27 cm 12/18 MÁNAÐA: 2, 6, 10, 14, 18, 23 og 28 cm 2 ÁRA: 2, 6, 11, 16, 21, 26, 30 og 35 cm 3/4 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22, 27, 32 og 37 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru fram- og bakstykki og ermar sett saman og haldið er áfram fram og til baka á hringprjón til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (81) 99-111-117-129 (135-147) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= (12) 15-17-18-20 (21-23) mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1A og A.1B. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í umferð merktri með ör-1 í A.1A (ranga) er fækkað um (3) 1-1-3-3 (1-1) lykkjur jafnt yfir – ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan = (78) 98-110-114-126 (134-146) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= (17) 22-25-26-29 (31-34) mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.B (= 2 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.1A er aukið út um (3) 1-1-3-3 (1-1) lykkjur jafnt yfir = (81) 99-111-117-129 (135-147) lykkjur í umferð og mynstrið heldur áfram eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca (12)15-18-18-18 (24-24) cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, (17) 21-24-24-28 (29-32) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (0) 0-1-1-1 (0-1) lykkju = (21) 25-29-29-33 (33-37) (= framstykki) fellið af (4) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur fyrir handveg, prjónið (31) 41-47-49-53 (57-63) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (2) 0-2-0-0 (0-2) lykkjur jafnt yfir = (33) 41-49-49-53 (57-65) lykkjur (= bakstykki), fellið af (4) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur fyrir handveg og prjónið (17) 21-24-24-28 (29-32) lykkjur brugðið, JAFNFRAMT er aukið út um (0) 0-1-1-1 (0-1) lykkju, endið með 4 lykkjur garðaprjón = (21) 25-29-29-33 (33-37) (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið nú ermar. ERMI: Fitjið upp (30) 30-30-36-36 (36-42) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.2 hringinn (= (5) 5-5-6-6 (6-7) mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3A prjónað hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til (28) 32-32-36-36 (36-40) lykkjur (nú er pláss fyrir (7) 8-8-9-9 (9-10) mynstureiningar með 4 lykkjum) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna í umferð (= mitt undir ermi) og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með (2½) 3-2½-3-2½ (2-2 ½) cm millibili alls (3) 3-5-5-7 (9-10) sinnum = (34) 38-42-46-50 (54-60) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca (12) 15-18-19-22 (25-29) cm, en endið eftir 3. eða 8. umferð í A.3A. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af (2) 2-2-3-3 (3-3) lykkjur fyrir handveg, prjónið (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjur slétt, fellið síðan af þær (2) 2-2-3-3-(3-3) lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = (135) 159-183-187-207 (219-247) lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þegar A.3 er prjónað (bæði á fram-/bakstykki og ermum) er mikilvægt að halda áfram í mynsturteikningu þar sem mynsturteikning endaði á ermum): Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3A yfir næstu (16) 20-24-24-28 (28-32) lykkjur (= (4) 5-6-6-7 (7-8) mynstureiningar með 4 lykkjum), A.3 B (= 1 lykkja), setjið 1 prjónamerki (= framstykki), haldið áfram með A.3A yfir næstu (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjurnar, setjið 1 prjónamerki (= ermi), prjónið A.3A yfir næstu (32) 40-48-48-52 (56-64) lykkjur (= (8) 10-12-12-13 (14-16) mynstureiningar með 4 lykkjum), A.3B (= 1 lykkja) setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), haldið áfram með A.3A yfir næstu (30) 34-38-40-44 (48-54) lykkjur, setjið 1 prjónamerki (= ermi), prjónið A.3A yfir næstu (16) 20-24-24-28 (28-32) lykkjur, A.3 B og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= framstykki). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls (8 ) 10-11-12-14 (15-17) sinnum. Eftir síðustu úrtöku fyrir laskalínu eru (71) 79-95-91-95 (99-111) lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um (13) 17-29-19-19 (19-27) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, að aukið eru felldar af síðustu lykkjur fyrir hnappagötum í þessari umferð = (58) 62-66-72-76 (80-84) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca (22) 26-30-31-32 (39-41) cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman opið undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #preciousmomentsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.