Spring Melt |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-41 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 158 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 29,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 30. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir kanti með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-8-7-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. PEYSA: BERUSTYKKI: Fitjið upp 153-158-163-171-178-183 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan 2 umferðir slétt með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er aukið út um 0-5-0-2-5-10 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) og mundið eftir HNAPPAGAT = 153-163-163-173-183-193 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 12 lykkjur), A.2 (= 10 lykkjur) alls 13-14-14-15-16-17 sinnum, A.3 (= 1 lykkja), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka eru 321-343-343-365-387-409 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 14 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú mynstur í mismunandi stærðum þannig: Stærð S, XL og XXXL: Prjónið næstu umferð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.5 yfir næstu 22 lykkjur, A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.4B (= 11 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.4, prjónið A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd). Prjónið A.4B (= 11 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið síðustu 11 lykkjur í A.4, prjónið A.4 yfir næstu 88-110-132 lykkjur (= 4-5-6 mynstureiningar á breidd), A.5 yfir næstu 22 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað yfir hverja mynstureiningu A.5. Þ.e.a.s. prjónuð er ein mynstureining A.6 hvoru megin við kant að framan (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og prjónaðar eru 3 mynstureiningar A.6 mitt aftan á baki. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 341-441-511 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, A.6 (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 15-21-25 cm. Stærð M, L og XXL: Prjónið næstu umferð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.5 yfir næstu 22 lykkjur, A.4 yfir næstu 110-110-132 lykkjur (= 5-5-6 mynstureiningar á breidd), prjónið A.5 yfir næstu 66 lykkjur (= 3 mynstureiningar), prjónið A.4 yfir næstu 110-110-132 lykkjur (= 5-5-6 mynstureiningar á breidd), A.5 yfri næstu 22 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað yfir hverja mynstureiningu A.5. Þ.e.a.s. prjónuð er ein mynstureining A.6 hvoru megin við kant að framan (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og prjónaðar eru 3 mynstureiningar A.6 mitt aftan á baki. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 373-413-469 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, A.6 (+ 1 eða 2 lykkjur sléttprjón) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 17-19-23 cm. Allar stærðir: Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 31 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-120-140-154-168-189 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-5-5-5-11-13 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 72 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-120-140-154-168-189 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-5-5-5-11-13 lykkjur jafnt yfir, prjónið mynstur eins og áður yfir þær 30 lykkjur sem eftir eru = 351-383-423-451-491-537 lykkjur. Snúið og prjónið síðustu umferð í berustykki þannig (frá röngu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 54-59-64-69-75-82 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 99-107-117-127-139-153 lykkjur, setjið næstu 72-79-89-93-101-110 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið mynstur eins og áður yfir 54-59-64-69-75-82 lykkjur sem eftir eru. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 223-241-265-285-313-341 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka með A.6, sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. ATH: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón á milli fyrstu 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og A.6 í byrjun á umferð (séð frá réttu) og prjónuð er 1 lykkja sléttprjón á milli A.6 og síðustu 5 kantlykkjur að framan í lok umferðar (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 5 sinnum = 203-221-245-265-293-321 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu A.6 á hæðina (nú eru eftir ca 6 cm til loka), prjónið í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22 cm er skipt yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og eigin lykkja. ERMI: Setjið til baka 72-79-89-93-101-110 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 3 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 80-87-99-103-113-122 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm. Fækkið nú um lykkjur mitt ofan á ermi þannig: Prjónið fyrstu 30-33-35-37-41-45 lykkjur, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir næstu 20-20-28-28-30-32 lykkjur (= 10-10-14-14-15-16 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 30-34-36-38-42-45 lykkjur = 70-77-85-89-98-106 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (45)
Karin wrote:
Hej! Jag undrar om man ska maska av ärmarna på samma sätt som nederkanten? Står inget specifikt om det. Karin
23.05.2024 - 11:46DROPS Design answered:
Hej Karin, nej det behøver du ikke, men sørg for at du ikke lukker af for stramt :)
23.05.2024 - 14:25Karin wrote:
Tack för svar, men jag har förstått att jag ska sticka A6 över A5, men dom andra maskorna? Är det vanlig slätstickning eller? Jag stickar storlek S.
22.03.2024 - 13:25DROPS Design answered:
Hej Karin, de andre masker fortsætter som tidligere :)
03.04.2024 - 13:59Karin wrote:
Hej! Undrar när jag ska få svar på min fråga om mönstret. Ställde min fråga för fyra dagar sedan och vad jag kan se så har andra fått svar efter 1-2 dagar. Hoppas på snabbt svar.
22.03.2024 - 08:58Karin wrote:
Hej! Hur många A4 efter första A6 innan de 3 A6 mitt bak? Är det så här: 5 kantm 2 släta, A6x1, A4x4, A6x3? Hur är det sedan efter A6x3?
18.03.2024 - 12:04DROPS Design answered:
Hej Karin. Vilken storlek stickar du? Du stickar A.6 över varje rapport av A.5 efter att A.5 har stickats klart. Sätt gärna ut markörer mellan rapporterna för att göra det enklare att se. Mvh DROPS Design
22.03.2024 - 10:06Lamaletie wrote:
Bonjour, un peu perdue!! Pour l’empiècement on a 163 mailles ,on tricote ensuite si j’ai bien compris 12 deA1, 14foisles 10 de A2 1deA3 sans oublier les 10 pour obtenir les 342 mailles en tailleL comment doit on procéder ?mon amietrès bonne tricoteuse ne comprend pas Merci
04.11.2023 - 15:39DROPS Design answered:
Bonjour Lamaletie, tricotez les diagrammes comme indiqués, vous allez ainsi augmenter progressivement dans A.1 et A.2 (cf ovales noirs = 3ème symbole de la légende; lorsque les diagrammes seront terminés vous aurez: 5m de bordure devant, 24 m dans A.1, 22 m dans chaque A.2 soit ( 22x 14= 308m), 1 m de A.3 et 5 m de bordure devant = 343 mailles au total. Bon tricot!
06.11.2023 - 08:16Chantale wrote:
Au début des explications c est inscrit ,que tous les rangs du points de fantaisie sont vue sur l endroit alors moi je comprend que le diagramme ne montre que les rangs endroits ,quand vous avez répondue à ma question précédente vous avez inscrit que je doit suivre le diagramme de gauche à droite pour les rangs envers ,désolé pour mon incompréhension je suis débutante merci
16.08.2023 - 23:59DROPS Design answered:
Bonjour Chantale, retrouvez dans cette leçon comment on doit lire des diagrammes tricot, cela pourra fort probablement vous aider. Bon tricot!
17.08.2023 - 09:45Chantale wrote:
Bonjour vous dite de lire le diagramme de gauche à droite pour l envers?au début des explications c est inscrit,tous les diagrammes montres tous les rangs du point de fantaisie vus sur l endroit ,alors pour moi je comprend que ce ne sont que les rangs endroits qu il y as sur le diagramme .Veuillez excusez mes incompréhensions je ne fait pas du tricot depuis très très longtemps .merci
16.08.2023 - 23:55DROPS Design answered:
Bonjour Chantale, effectivement, les diagrammes montrent tous les rangs, vus sur l'endroit, autrement dit, les rangs sur l'endroit et les rangs sur l'envers, ainsi, 1 case blanche se tricote en jersey endroit (cf 1er symbole) : à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers, dans ces diagrammes, vous tricoterez tous les rangs à l'envers sur l'envers (tricotez certains des jetés torse à l'envers - cf 3ème symbole). Bon tricot!
17.08.2023 - 09:44Chantale wrote:
Bonjour ,très beau model merci de le partagé gratuitement .Je ne comprend pas trop je vous dirais ,je fait la grandeur large ,je ne dois pas faire a1 et a2 et a3 en même temps,avec un motif qui se répètes 14x dans mes mailles je n arrivé pas bref je suis mêle, merci pour votre aide
14.08.2023 - 19:32DROPS Design answered:
Bonjour Chantale, en taille L, vous avez 163 mailles que vous allez tricoter ainsi, sur l'endroit: 5 m de bordure devant au point mousse, puis vous allez tricoter les 12 mailles de A.1, puis vous répétez 14 fois les 10 mailles de A.2, vous tricotez la maille de A.3 (pour que le motif soit symétrique), et vous terminez par 5 m de bordure devant au point mousse; autrement dit: 5+12+140+1+5= 163. Sur l'envers, tricotez ainsi en lisant les diagrammes de gauche à droite: 5 m point mousse, A.3, répétez 14 fois A.2, A.1 et 5 m point mousse. Bon tricot!
15.08.2023 - 09:04Copla wrote:
Bonjour, je ne comprends pas pourquoi les boutonnières se font en fin de rang alors que le devant droit se tricote au début du tricot à droite. On devrait ouvrir ces boutonnières en début de rang ?
07.06.2023 - 17:48DROPS Design answered:
Bonjour Mme Copla, quand on tricote de haut en bas, on commence (sur l'endroit) par le devant gauche et on termine par le devant droit, on va ainsi ouvrir les boutonnières en fin de rang sur l'endroit. Bon tricot!
08.06.2023 - 09:21Maureen wrote:
DROPS 19941 Can you tell me whether the A6 pattern is carried (repeat three times) right down the back of the cardigan or does it finish after the first sixteen rows Thanks Love your patterns this is my fifth design I’ve knitted
31.07.2022 - 18:13DROPS Design answered:
Dear Maureen, you should continue working A.6. Happy knitting!
31.07.2022 - 19:01