Mirtha skrifaði:
Precioso diseño. Ya hice uno color rosa , y ahora empiezo uno blanco. Muchas gracias 🥳🎉🎈😘
18.03.2019 - 18:59
Mirtha skrifaði:
Muchas gracias 😅
12.03.2019 - 00:00
Mirtha skrifaði:
Ya me he enterado. Problema solucionado. Ya no necesito mas explicaciones. 😅
11.03.2019 - 23:56
Mirtha skrifaði:
No entiendo como se hacen 4 lazadas seguidas; alguien me lo puede decir ?. He llegado a ese punto y no he podido seguir🤔🙏🏼🙏🏼
11.03.2019 - 15:38DROPS Design svaraði:
Hola Mirtha. En el centro del diagrama no tienes 4 lazadas seguidas, son 1 lazada 1 derecho, 1 lazada, 1 derecho, 1 lazada, 1 derecho, 1 lazada.
11.03.2019 - 23:31
Eby skrifaði:
There are no diagrams A.3A and A.3B for knitting sleeves.
11.03.2019 - 11:04DROPS Design svaraði:
Dear Eby, you are right, we will check sleeves pattern and update diagram or pattern. Thank you. Happy knitting!
11.03.2019 - 14:50
Lacombe Claudine skrifaði:
Très féminin, je vais essayé de le faire
09.03.2019 - 11:06
Bommer Monika skrifaði:
Ist es möglich, Ihre Anleitungen als PDF zu downloaden, damit ich mir diese ausdrucken kann? Danke und freundliche Grüsse, Monika Bommer
09.03.2019 - 09:10
Rombos En Primavera skrifaði:
Elegante y sofisticado , espero el patrón para hacerlo y lucirlo!
21.02.2019 - 20:39
Catharina skrifaði:
Magnifique et printanier
23.01.2019 - 18:21
Laura skrifaði:
This is so elegant that I can't resist to try it!
13.12.2018 - 11:11
Spring Symmetry#springsymmetrysweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 200-26 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (athugaðu vel að í hluta á umferð í mynsturteikningu er mynstur prjónað í hverri umferð). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Muskat. Prjónið A.1 hringinn. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-36-38-40-40-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 144-148-154-160-164 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 30-44-50-58-60-62 lykkjur jafnt yfir = 174-192-204-218-224-232 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10-11 cm frá uppfitjunarkanti, er aukið út um 26-38-46-52-56-58 lykkjur jafnt yfir = 200-230-250-270-280-290 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 20-23-25-27-28-29 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með ör í A.2, færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri, þ.e.a.s. lyftið 2 fyrstu lykkjum yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, prjónið síðan A.2 hringinn. Þær 2 lykkjur sem lyftar voru yfir á hægri prjón koma til með að vera prjónaðar í endurtekningu með A.2. Næsta umferð byrjar eins og venjulega. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 240-276-300-324-336-348 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT er aukið út eins og útskýrt er að neðan. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-20-21 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 20-20-22-24-28-30 lykkjur jafnt yfir = 260-296-322-348-364-378 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 10-14-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir = 270-310-342-370-390-406 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanrti við miðju að framan. Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-46-50-55-59-63 lykkjur fyrir sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-92-100-110-118-126 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-63-71-75-77-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-46-50-55-59-63 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-200-220-240-260-280 lykkjur. Byrjið umferð í annarri hlið á stykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjum undir ermi. Prjónið A.3 hringinn (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en í umferð merktri með ör í A.3 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri alveg eins og í A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 190-210-230-250-270-290 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14-14-14-14-16-16 cm frá skiptingu = 200-220-240-260-280-300 lykkjur. Prjónið nú aftur A.3 hringinn (= 20-22-24-26-28-30 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 64-74-78-88-92-96 lykkjur jafnt yfir = 264-294-318-348-372-396 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 53-63-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 61-71-81-85-89-91 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4A (= 10 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 40-50-60-60-60-70 lykkjur (= 4-5-6-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 11 lykkjur) og endið með 0-0-0-2-4-0 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 5-9-13-13-14-14 sinnum = 51-53-55-59-61-63 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til ermin mælist 29-27-26-24-23-21 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-1-5-1-5-3 lykkjur jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 33-31-30-28-27-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsymmetrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.