Moonlight Reflection |
|
|
|
Prjónuð motta úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með 3 þráðum, röndum, garðaprjóni og stuttum umferðum.
DROPS 198-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá ca miðju á mottu og í hring í hlutum. Fyrst er prjónaður hringur, síðan eru stykkin prjónuð í stuttum umferðum, garðaprjóni og röndum. MOTTA: Fitjið upp 8 lykkjur á hringprjón 7 með 3 þráðum ljós fjólublár. Prjónið 1 umferð slétt (= frá röngu). Stykkið er síðan prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð byrjar útaukning þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til eftir er 1 lykkja, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju = 16 lykkjur. UMFERÐ 2 OG ALLAR UMFERÐIR FRÁ RÖNGU: Prjónið slétt, uppslættirnir eru prjónaðir snúnir, það eiga ekki að myndast göt. UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 24 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið * 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 7: Prjónið * 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 40 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Saumið hringinn saman í ystu lykkjubogana. Prjónið nú stykkið áfram í hlutum þannig: HLUTI 1: Prjónið síðan með 3 þráðum natur. Prjónið nú stuttar umferðir fram og til baka í garðaprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 38 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 36 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 34 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 32 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 30 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 28 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið 2 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 4 lykkjurnar frá röngu (= 18 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið nú hringinn með 3 þráðum sinnep þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttu umferðunum)* prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 20 lykkjur fleiri) = 60 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjurnar (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HLUTI 2: Færið prjónamerkið um 30 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist nú til um 30 lykkjur, hluti 2 er nú prjónaður með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með 3 þráðum ljós fjólublár þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar = 90 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið nú hluta 2 með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 87 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 84 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 81 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 78 lykkjur), snúið, herðið á bandi. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 75 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 72 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 3 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 6 lykkjurnar frá röngu (= 28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið nú hringinn með 3 þráðum sinnep þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttum umferðum) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 30 lykkjur fleiri) = 120 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjurnar (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). HLUTI 3: Færið prjónamerkið um 60 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist til um 60 lykkjur, hluti 3 er nú prjónaður með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með 3 þráðum natur þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar = 150 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið nú hluta 3 með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 145 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 140 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 135 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 130 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 125 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 120 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10 lykkjurnar frá röngu (= 28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið nú hringinn með 3 þráðum sinnep þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttum umferðum) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 30 lykkjur fleiri) = 180 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjurnar (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). HLUTI 4: Færið prjónamerkið um 90 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist til um 90 lykkjur, hluti 4 er nú prjónaður með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með 3 þráðum ljós fjólublár þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar = 210 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið nú hluta 4 með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 203 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 196 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 189 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 182 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkja er eftir á undan prjónamerki (= 175 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 21 lykkja er eftir á undan prjónamerki (= 168 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10 lykkjurnar frá röngu (= 28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14 lykkjurnar frá röngu (= 28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið nú hringinn með 3 þráðum sinnep þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttum umferðum) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 30 lykkjur fleiri) = 240 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjurnar (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). HLUTI 5: Færið prjónamerkið um 120 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist til um 120 lykkjur, hluti 5 er nú prjónaður með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með 3 þráðum natur þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar = 270 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið nú hluta 5 með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 261 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 252 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 243 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 234 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 27 lykkjur er eftir á undan prjónamerki (= 225 lykkjur), snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 27 lykkjur er eftir á undan prjónamerki (= 216 lykkjur), snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18 lykkjurnar frá röngu (= 28 umferðir garðaprjón). Klippið frá. Prjónið nú hringinn með 3 þráðum sinnep þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem snúið var við í stuttum umferðum) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 30 lykkjur fleiri) = 300 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið yfir allar lykkjurnar (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). HLUTI 6: Færið prjónamerkið um 150 lykkjur (þ.e.a.s. byrjun á umferð færist til um 150 lykkjur, hluti 6 er nú prjónaður með byrjun frá prjónamerki). Prjónið með 3 þráðum ljós fjólublár þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjurnar = 330 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Rena skrifaði:
Wie kommt man denn bei einer Verbrauchsangabe von 24 Knäueln auf einen Preis von 14,28€? Wurde evtl. nicht berücksichtigt, dass das Garn 3-fach verstrickt werden soll?
24.08.2020 - 09:03DROPS Design svaraði:
Liebe Rena, danke für den Hinweis, die Garnmenge wird korrigiert so daß Preise stimmt (Garnmenge in der Anleitung stimmt). Viel Spaß beim stricken!
24.08.2020 - 09:11Anne skrifaði:
Hallo! Ein total schöner Teppich. Ich würde ihn gerne größer machen, vielleicht 1,50 m im Durchmesser. Kann ich die Anleitung dafür einfach sozusagen fortsetzen? Wäre ich damit erfolgreich oder muss ich noch etwas beachten?
03.02.2020 - 12:16DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, wahrscheinlich können Sie den Teppich größer stricken, aber leider können wir Ihnen nicht umrechnen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man sicher gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!
03.02.2020 - 13:43Kandice skrifaði:
Can a bulky yarn or thicker replace the 3 strands of Aran?
05.05.2019 - 18:47DROPS Design svaraði:
Dear Kandice, you will read more about alternatives here. Happy knitting!
06.05.2019 - 10:14Maribel skrifaði:
Preciosa alfombra.
10.02.2019 - 00:38Andrea skrifaði:
Ich mag eure Designs und dieses hat mich überrascht, wie hübsch.
06.02.2019 - 10:55Martina skrifaði:
The Eye
25.01.2019 - 10:27Babs skrifaði:
"Coolio"
23.01.2019 - 17:14Steffi skrifaði:
Circles and lines
17.01.2019 - 09:11Elaine skrifaði:
All of the moons
16.01.2019 - 01:03Marianne Larsen skrifaði:
Super flot
14.01.2019 - 14:55