Elisabeth skrifaði:
Mellom to masker strikkes ett kast: når mønsteret da starter med kast, så starter jeg egentlig med to sammen? Linje fem i mønster
03.01.2022 - 19:36DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth. Nej, då startar du med ett kast och sedan 2 sammen. Mvh DROPS Design
04.01.2022 - 11:05
Anni skrifaði:
A.1 ruutupiirroksen viides rivi (alhaalta päin luettuna) on mielestäni vaikea ymmärtää. Mitä tässä kohtaa tulisi tehdä? Vasemmalta oikealle alaspäin kulkeva viiva on selitysten mukaan 2 silmukkaa oikein yhteen, mutta tällöin silmukat vähenisivät tässä kohtaa puoleen, mitä en näe järkevänä tässä kohtaa työtä.
04.11.2019 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hei, kyseisellä rivillä tehdään aluksi 1 langankierto ja sitten neulotaan 2 silmukkaa oikein yhteen, tätä toistetaan koko kerroksen ajan, jolloin silmukkaluku pysyy samana.
18.12.2019 - 17:19
Manja skrifaði:
Wenn man das Muster strickt, strickt man ja immer mit zwei Farben in einer Runde. Was mache ich, wenn dann die eine Farbe nicht mehr gebraucht wird, sondern erst 6 Runden später? Webe ich die zweite Farbe dann in allen Runden mit ein oder lasse ich den Faden hängen und nehme ihn dann erst wieder im Gestrick mit auf, wenn er benötigt wird, vorausgesetzt der Spannfaden wird dann nicht zu lang? Vielen Dank für die Rückmeldung.
19.04.2019 - 17:08DROPS Design svaraði:
Liebe Manja, ich würde lieber den Faden abschneiden, so vermeidet man auch, daß dieser Faden die Arbeit etwas zusammenzieht. Viel Spaß beim stricken!
23.04.2019 - 12:20
Claudia skrifaði:
In der Auswahl gab es zu diesen Socken passend einen Pulli rundgestrickt mit Passe und ausgestellten 3/4 Ärmeln. Wird es dazu noch die Anleitung geben?
09.03.2019 - 14:48DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, Wir veröffentlichen die neuen Anleitungen weiterhin kontinuierlich bis zum Sommer! Kommen Sie bald zurück! Viel Spaß beim stricken!
11.03.2019 - 12:02
Anneli skrifaði:
Ilusad sokid!
14.12.2018 - 12:00
Relaxing in Reykjavik Socks#relaxinginreykjaviksocks |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Flora eða DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 - 41.
DROPS 198-17 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 12. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælin er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan í og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 72-76-76 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 66-72-72 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 11-12-12 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1 er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 60-66-66 lykkjur (nú er pláss fyrir 10-11-11 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 6-6-0 lykkjur jafnt yfir = 54-60-66 lykkjur (nú er pláss fyrir 9-10-11 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur þar sem fækkað er um 0-2-4 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. Afgangur af sokk er prjónaður með litnum natur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjunum í umferð fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (= mitt á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur á prjóni. Lesið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið á að nota síðar til að mæla lengd á fæti. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 hællykkjurnar, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttar lykkjur yfir 28-30-32 lykkjur frá þræði á fæti og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 68-72-80 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur mitt á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm til loka, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #relaxinginreykjaviksocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 198-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.