Saskia skrifaði:
Ik zie geen ingevuld telpatroon???
31.12.2024 - 16:19DROPS Design svaraði:
Dag Saskia,
Het telpatroon staat (een beetje verstopt) rechts onder de maattekening.
01.01.2025 - 15:48
Kath skrifaði:
Hoe kan ik een gevallen halve patentsteek oprapen?
12.02.2023 - 20:03
Savalle skrifaði:
Bonjour une petite questions je comprends pas votre cote anglaise avec des jetés. Pour moi les côtes anglaises c est le point a l endroit en piquant toutes les deux mailles dans le centre de la maille . Merci pour votre reponse
21.02.2022 - 10:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Savalle, il existe différentes techniques pour tricoter des côtes anglaises (cf cette leçon; ici, on va tricoter des côtes anglaises avec jeté, en suivant la technique montrée ici en vidéo. N'hésitez pas à vous entraîner auparavant sur un petit échantillon, ce sera ainsi plus simple après. Bon tricot!
21.02.2022 - 10:31
Datur skrifaði:
Es sobre el patrón . Con lana más delgada cuántos puntos tengo que poner de mas
30.01.2020 - 10:47DROPS Design svaraði:
Hola Datur. Para calcular los puntos hay que hacer una muestra con la lana elegida y la aguja adecuada a la lana, comparar con la tensión del patrón, y hacer los cálculos necesarios.
23.02.2020 - 23:20
Cristina skrifaði:
Cómo sería patron en 2 agujas rectas?
27.12.2019 - 14:35DROPS Design svaraði:
Hola Cristina . Lee nuestra lección aquí de cómo convertir una prenda trabajada con agujas circulares para trabajarla con agujas rectas https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=9017&cid=23#question18
29.12.2019 - 00:08
Catharina skrifaði:
Varför är beskrivningen så jävla omständig??? Kan vara en fördel att skriva hur varven ska stickas!!!
18.04.2019 - 19:44
Anita skrifaði:
Knallfin lang genser. Lurer på om garnet klør ?
21.02.2019 - 17:17DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Eskimo er 100% ull. Det er litt individuelt hvor "sensitiv" man er for kløe i ullgarn, men i utgangspunktet er ikke Eskimo et stikkete garn. Om du likevel vil strikke i noe annet kan du vurdere Andes, som har samme strikkefasthet. Dette garnet inneholder 35% Alpakka, som har tynnere fibre enn saueull (og derfor klør mindre). Vær obs på at Andes har en noe annet tekstur enn Eskimo. God fornøyelse
25.02.2019 - 14:53
Tone Finsådal skrifaði:
Kan jeg strikke denne genseren med big merino?? Så ikke det klør
18.02.2019 - 10:41DROPS Design svaraði:
hei Tone. Det som er viktig ved bytte av garn er at strikkefastheten din blir den samme som den som står i oppskriften. Du kan nok bruke Big Merino til denne, men da må du strikke med 2 tråder for å få tilsvarende strikkefasthet som i Eskimo. Lag deg en prøvelapp så du er sikker. God fornøyelse
18.02.2019 - 13:41
Lilly Blush#lillyblushtunic |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með fölsku klukkuprjóni úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), sláið 1 sinni uppá prjóninn og endið með 1 kantlykkju með garðaprjóni (= alls 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 78-84-90-96-108-114 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 9 með Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 53-57-61-65-73-77 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til eftir er 1 lykkja og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þ.e.a.s. mynstur byrjar og endar með 1 lykkju slétt í klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm (nú eru eftir ca 4 cm), fellið af miðju 19-19-19-23-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og uppslátturinn og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (1 uppsláttur og 1 lykkja slétt = 1 lykkja) = 17-19-21-21-25-27 lykkjur á hvorri öxl. Lykkjan næst hálsi á hvorri öxl á nú að vera brugðin lykkja frá réttu. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni næst hálsi þar til stykkið mælist alls 76-78-80-82-84-86 cm. Fellið af í næstu umferð frá réttu. Uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman og felld af og brugðin lykkja er felld af brugðið. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 66-68-68-70-70-72 cm (nú eru eftir ca 10-10-12-12-14-14 cm). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 11-11-11-15-15-15 lykkjurnar fyrir hálsmáli með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og uppslátturinn og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 1 lykkja) = 21-23-25-25-29-31 lykkjur á hvorri öxl. Lykkjan næst hálsi á hvorri öxl á nú að vera brugðin lykkja frá réttu. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Í næstu umferð frá hálsmáli (= frá réttu) er prjónað þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, takið uppslátt og 1 lykkju slétt af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja brugðið, steypið uppslætti og óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 17-19-21-21-25-27 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 76-78-80-82-84-86 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af. Uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman og fellt af og brugðna lykkjan er felld af brugðið. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir (uppslátturinn er ekki talin sem lykkja), prjónið brugðnu lykkju, uppsláttur og slétta lykkju slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. ERMI: Fitjið upp 35-35-38-38-41-41 lykkjur á hringprjón 9 með Snow. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 10 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju og 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-11 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 45-44-43-42-38-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Fitjið upp 20 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 9 með Snow. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar vasinn mælist 15 cm er aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu = 25 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Prjónið í næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 18 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið annan vasa á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í (= ca 19-20-21-22-23-24 cm niður frá axlasaumum) og saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar til eftir eru ca 17 cm (= klauf). Saumið vasana ca 17 cm upp frá neðri kanti og ca 2 cm inn frá hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Takið upp ca 44 til 56 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli (passið uppá að kanturinn verði ekki stífur, takið e.t.v. upp fleiri lykkjur), stillið af að lykkjurnar séu deilanlegar með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið alls 2 umferðir, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lillyblushtunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.