Irene O skrifaði:
Takk for nydelig mønster, flott oppskrift. Alle som så meg strikke sokkene (3. par nå) beundret mønsteret!
14.09.2019 - 12:27
Bittelina skrifaði:
Jeg har nå gjort hælfellinga som det står i mønstret med utgangspunkt i de 27 maskene på den største størrelsen. Da gjenstår det på pinnen 15 masker og ikke 11, som det står i mønstret. Hva er feil denne gangen?
09.12.2018 - 13:24
Bittelina skrifaði:
Når jeg på siste omgang feller ei maske i hver A4 og skal sette A2+A4+A2 på en tråd får jeg 36 masker og ikke 37 som mønstret sier. Da har jeg igjen 26 masker og ikke 25 masker til hælen som mønstret sier. Hvor er feilen?
09.12.2018 - 12:04DROPS Design svaraði:
Hei Bittelina. De maskene som settes på en tråd er A.2 (=5 masker) +A.3(=27 masker) +A.2(=5 masker). 5+27+5 = 37 masker på en tråd. Det gjenstår nå 25 masker på pinnen. Når du skal strikke hælfelling strikker du til det gjenstår 7 masker på pinnenen, feller, snur og strikker tiol det gjenstår 7 masker på pinnen i den andre siden. Du fortsetter å felle i hver side til du har felt alle de 7 maskene i hver side. Du har da felt totalt 14 masker og har 11 masker igjen på pinnen. God fornøyelse
10.12.2018 - 07:57
A Möller skrifaði:
Tolle Anleitungen! Aber stehten die Diagramme hier nicht auf dem Kopf? LG
07.12.2018 - 12:18DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Möller, die Diagramme werden immer von unten nach oben gelesen, und die Socken werden von oben nach unten gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
07.12.2018 - 14:25
Lora Huey skrifaði:
I love these socks , getting ready to cast them on my needles. I really enjoy your Christmas calendar . Looking forward to opening the next door.
06.12.2018 - 16:45
Tip Toe Santa#tiptoesantasocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1433 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Finndu þína stærð í mynsturteikningu (á við um A.3 og A.4). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-76 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 13-11-11 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur í A.2 þannig: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum milligrár, prjónið 3 miðjulykkjur í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum milligrár (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR. Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum rauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan umferð með götum (= uppábrot) þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Skiptið yfir í litinn milligrár og prjónið A.1 hringinn (= 14-15-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 6 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2 (= 5 lykkjur), A.3 (= 23-25-27 lykkjur), A.2 (= 5 lykkjur) og A.4 (= 23-25-27 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar næst síðasta umferð í A.4 er eftir, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir 23-25-27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 54-58-62 lykkjur og stykkið mælist ca 15 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33-35-37 lykkjur á fæti á þráð). Nú eru 21-23-25 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð með litnum milligrár, prjónið A.5a yfir fyrstu 20-22-24 lykkjur á hæl, prjónið A.5b (= 1 lykkja) og fitjið upp 1 nýja lykkju í loki umferðar með litnum milligrár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum milligrár. Haldið áfram með A.5a/A.5b fram og til baka yfir 23-25-27 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur er sett 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur áfram jafnframt sem úrtaka byrjar fyrir hæl). Eftir hælúrtöku er fyrsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-11-11 hællykkjur eins og áður, prjónið upp 11-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir 33-35-37 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 11-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 68-72-76 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur A.5 undir fæti, A.3 á fæti og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31-33-35 miðjulykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31-33-35 miðjulykkjum á fæti slétt saman með litnum milligrár og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31-33-35 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnummilligrár. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinum = 56-60-64 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið síðan svona til loka: Haldið áfram með mynstur A.5a/A.5b eins og áður yfir lykkjur undir fæti, haldið áfram með A.1 í hlið, prjónið A.5 yfir næstu 22-24-26 lykkjur undir fæti, prjónið A.5b (= 1 lykkja), haldið áfram með A.2 í hlið og A.5a yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti. Þegar stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við 3 miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10-11-12 sinnum = 16 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kantinn efst á sokknum að röngu og saumið fallega niður með litlu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tiptoesantasocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1433
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.