DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hokey Pokey

Settið samanstendur af: Prjónuðum vettlingum og sokkum prjónuðum frá tá og upp úr DROPS Karisma með norrænu mynstri, lettneskum kaðli og dúski.

DROPS 173-42
DROPS Design: Mynstur nr u-789
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

VETTLINGAR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50 g litur nr 01, natur
50 g litur nr 52, sinnepsgulur
50 g litur nr 78, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 19 - 20 - 21 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100 g litur nr 01, natur
150-150-150 g litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50 g litur nr 78, kórall

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR:

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri).
Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið að nýju uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru á prjóni. Deilið l á 4 st sokkaprjóna nr 3 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í garnendann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LETTNESKUR KAÐALL:
Kaðallinn samanstendur af 3 umf – allar um eru með mynstri og eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1: * prjónið 1 l sl með litnum natur, 1 l sl með litnum kórall *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka yfir á framhlið. Dragið þráðinn með litnum kórall undir þráðinn með litnum natur og síðan yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka að framhlið.
Haldið svona áfram með br til skiptis litinn natur og litinn kórall, en færið alltaf þráðinn undir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umf, en nú er þráðurinn alltaf færður yfir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og prjónað er frá toppi á fingrum og upp að úlnlið.

VINSTRI VETTLINGUR:
Byrjið með litinn sinnepsgulur og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan = 12 l skipt niður á 4 st sokkaprjóna nr 3 – ATH: Ef ekki er óskað eftir að byrja með galdrahring þá eru fitjaðar upp 12 l með litnum sinnepsgulur sem skipt er niður á 4 st sokkaprjóna nr 3 (þegar vettlingurinn hefur verið prjónaður til loka þá er þráðurinn dreginn upp og niður í gegnum l í kringum gatið á toppnum og stykkið dregið saman).
Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 52 l í umf.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjun (þ.e.a.s. á eftir umf merktri með ör í mynsturteikningu) fellið af 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal yfir 3 svörtu rúðurnar í mynsturteikningu (mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd): Í næstu umferð eru fitjaðar upp 13 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 62 lykkjur á prjóni. ATH: Fitjið upp eins og fyrsta umferð í mynsturteikningu A.2: Eða þannig að fitjað er upp með 2 litum. Sjá svarta stjörnu í mynsturteikningu. Haldið áfram með A.2 yfir þessar 13 lykkjur og A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 52 l í umf og A.1 heldur áfram hringinn aftur yfir allar l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með litnum kórall. Allur vettlingurinn mælist ca 24 cm.

ÞUMALL:
Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 13 l sem fitjaðar voru upp fyrir op fyrir þumal og prjónið að auki upp 9 l í kringum opið = 22 l. Skiptið l á sokkaprjóna nr 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3. Fækkið l eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

DÚSKUR:
Gerið 1 lítinn dúsk með litnum kórall ca 3 cm að þvermáli og látið þráðinn sem er hnýtt utan um dúskinn vera ca 20 cm langan í lokin. Notið þræðina og hnýtið hnút á eftir hverjum öðrum þannig að það myndist lítil snúra ca 3 cm. Festið síðan snúruna með dúsknum í hlið á vettlingi (sjá mynd). Það eiga að vera 2 dúskar með snúru í hlið á vettlingi.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur nema spegilmynd, þ.e.a.s. að 3 svörtu rúðurnar fyrir þumal eru prjónaðar í 2.- 3. og 4. l frá vinstri hlið á mynstri.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.4 til A.8 (veljið mynstur fyrir rétta stærð).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 10-10-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 10-10-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 9-9-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 9-9-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 17-17-19 l eru eftir á prjóni.

LETTNESKUR KAÐALL:
Kaðallinn samanstendur af 3 umf – allar um eru með mynstri og eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1: * prjónið 1 l sl með litnum natur, 1 l sl með litnum kórall *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka yfir á framhlið. Dragið þráðinn með litnum kórall undir þráðinn með litnum natur og síðan yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka að framhlið.
Haldið svona áfram með br til skiptis litinn natur og litinn kórall, en færið alltaf þráðinn undir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umf, en nú er þráðurinn alltaf færður yfir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og prjónað er frá tá og upp.

SOKKUR:
Fitjið upp 12 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.4 og aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 48 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.5A. Þegar stykkið mælist 15-17-18 cm frá tá (nú eru eftir ca 7-7-9 cm til loka lengdar á fæti – mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd) setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf og 1 prjónamerki í 25. l í umf (bæði prjónamerki eru staðsett í lykkjur í sinnepsgulur í hlið á sokknum). Aukið nú út um 1 l á undan fyrra prjónamerki og 1 l á eftir seinna prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 6-6-8 sinnum = 60-60-64 l í umf – ATH: Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í rendur undir fæti. Eftir síðustu útaukningu eru geymdar 25 l í umf og haldið áfram með rendur fram og til baka eftir mynstri A.6 yfir þær 35-35-39 l sem eftir eru í 3½-3½-4 cm (sokkurinn mælist nú 22-24-27 cm frá tá). Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan, yfir 35-35-39 l (rendur í A.6 halda áfram eins og áður). Eftir hælúrtöku er prjónuð næsta umf þannig: Prjónið með litnum natur yfir 17-17-19 l á hæl, prjónið upp 8-8-9 l (með natur) meðfram kanti á 3½-3½-4 cm sem prjónaðar voru fram og til baka, haldið áfram með A.5A yfir næstu 25 l og prjónið upp 8-8-9 l meðfram kanti í 3½-3½-4 cm í hinni hliðinni = 58-58-62 l í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.7A yfir fyrstu 33-33-37 l (= aftan á sokk) og fækkið l JAFNFRAMT um 4-4-6 l jafnt yfir þessar l í fyrstu umf þannig að mynstrið nái yfir 29-29-31 l, haldið áfram með A.5A eins og áður yfir næstu 25 l (= framan á sokk) = 54-54-56 l í umf. Þegar A.7A hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er A.7B endurtekið síðan yfir þessar 29-29-31 l (A.5A heldur áfram eins og áður framan á sokk). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l innan við ystu l hvoru megin við A.7B – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 60-60-62 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.7B, en síðustu 1-1-2 l í hvorri hlið eiga alltaf að vera í litnum natur.
Þegar stykkið mælist ca 13-14-15 cm frá prjónamerki – stillið af eftir heilli mynstureiningu í A.5A og endið eins og útskýrt er í síðustu umf í A.5B prjónið 1 umf slétt yfir allar l með litnum natur. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.8. JAFNFRAMT í umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 4-4-6 l jafnt yfir = 64-64-68 l. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með litnum kórall. Sokkurinn mælist ca 19-20-21 cm frá prjónamerki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op framan á tá með lykkjuspori með litnum sinnepsgulur.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.11.2018
Leiðrétting: VINSTRI VETTLINGUR:..ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjun (þ.e.a.s. á eftir umf merktri með ör í mynsturteikningu) fellið af 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal yfir 3 svörtu rúðurnar í mynsturteikningu (mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd): Í næstu umferð eru fitjaðar upp 13 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 62 lykkjur á prjóni. ATH: Fitjið upp eins og fyrsta umferð í mynsturteikningu A.2: Eða þannig að fitjað er upp með 2 litum. Sjá svarta stjörnu í mynsturteikningu. Haldið áfram með A.2 yfir þessar 13 lykkjur og A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Yfirfarið á vefsvæði: 11.03.2019
Leiðrétting á lykkjufjölda í HÆLÚRTÖKU í umferð 3 og 4

Mynstur

symbols = slétt lykkja með litnum natur
symbols = slétt lykkja með litnum sinnepsgulur
symbols = slétt lykkja með litnum kórall
symbols = lykkjur fyrir op fyrir þumal - hoppið yfir þessa rúðu
symbols = brugðin lykkja með litnum kórall
symbols = prjónið LETTNESKUR KAÐALL - sjá útskýringu að ofan, með þráðinn undir þráðinn sem þú prjónaðir síðast með
symbols = prjónið LETTNESKUR KAÐALL - sjá útskýringu að ofan, með þráðinn yfir þráðinn sem þú prjónaðir síðast með
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð (= ekki gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum sinnepsgulur
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum sinnepsgulur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman með litnum sinnepsgulur, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum natur
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum natur
symbols = fitjið upp 13 lykkjur sem ein og þú prjónar þessa umferð í mynsturteikningu (með 2 litum) þannig að mynstrið brotnar ekki
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Hokey Pokey

Uumse, Netherlands

Hokey Pokey

Uumse, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Helle Pia Friis Nielsen wrote:

Mangler en vidio med hvordan man starter op på disse vanter. Har købt masse af garn m.m. Fandt en vidio med strikket magisk cirkel på YouTube. Med kan ikke finde hvordan man følger et diagram hvor der bliver lavet laver udtagning og farveskift. Kan godt strikke vanter op fra og ned. Kan også følge et diagram uden ind og udtagning. Håber på hurtig hjælp, please.

08.08.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Hej Helle, du starter på selve vanten der hvor der står VENSTRE VANTE med at slå 12 masker op på 4 strømpepinde (du behøver ikke starte med magisk cirkel) og så strikker du rundt ifølge diagram A.1 og nu er det bare at følge diagrammet, her er også udtagningerne tegnet ind :)

16.08.2023 - 10:20

country flag Marion Soidriddine wrote:

Bonjour, je me lance pour la première fois dans la confection de moufles et je ne comprends pas comment faire pour tricoter le pouce. J'ai cherché un tuto en vain (celui que j'ai trouvé correspond à la moufle que l'on tricote à partir du bas et non par la pointe). Je ne sais à quel moment tricoter les 13 mailles de A2 et sur quoi relever les 9 mailles supplémentaires. Merci beaucoup Marion

21.02.2023 - 15:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Soidriddine, pour tricoter le pouce, relevez 1 maille dans chacune des 13 mailles montées en faisant la moufle + 9 mailles autour de l'ouverture du pouce (= les 3 mailles rabattues + de chaque côté de ces 3 mailles). Bon tricot!

21.02.2023 - 18:12

country flag Cécile Rousseau wrote:

Mitaines : Dans votre document PDF en français, la Légende diagramme(s) est incomplète. Il faut se référer sur le site en ligne pour avoir la description complète. Mittens: In your PDF document in French, the Legend diagram(s) is incomplete. You must refer to the online site for the complete description.

19.11.2022 - 16:26

country flag Cécile Rousseau wrote:

Mitaine - Pouce Je crois que vous devriez ajouter la phrase suivante au tout début du paragraphe pour le pouce : 'EN PARTANT DE LA PREMIÈRE MAILLE DES 13 MAILLES RELEVÉES AUPARAVANT, relever 1 m dans chacune des 13 m montées pour l'ouverture du pouce et relever en plus 9 m autour de l'ouverture =22 m.

18.11.2022 - 18:40

country flag Ingrid Krohn-Hansen wrote:

Har diagram A-2 falt ut av oppskriften? Jeg har strikket en vott, da lå A-2 inne. Nå finner jeg det ikke.

26.07.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Hej Ingrid, A.2 ligger nedenfor A.1 :)

04.08.2022 - 08:25

country flag Niki wrote:

Det här stämmer inte: \"Nästa v stickas så här: Sticka mönster efter diag A.7A över de första 33-33-37 m (= bak på sockan)\". Jag har redan stickat de första 8 enligt beskrivningen eller menas det att de åtta man plockar upp inte ska stickas innan? Väldigt otydligt. Ska jag sticka runt ett helt varv ifrån var jag är efter de 8 upptagna och sen börja mönstret? Ska jag backa? Skulle jag inte stickat de 8 upptagna maskorna? Eller ska jag börja mitt i mönstret?

17.01.2022 - 22:45

country flag Marijke Veldman wrote:

Wanten - probleem. Geacht team, moeten er na het afkanten van de 3 steken direct 13 steken extra opzetten of moet je eerst een ronde doorbreien en dan pas de 13 steken opzetten? Ik zie graag uw reactie.

19.12.2021 - 12:21

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

Na het afkanten brei je de naald verder in patroon en op de volgende naald zet je 13 nieuwe steken op boven de 3 afgekante steken.

19.12.2021 - 19:03

country flag Marijke Veldman wrote:

Over wanten een vraag die hier al eerder is gesteld maar niet duidelijk werd beantwoord! Als de 3 steken zijn afgekant , wordt er dan eerst doorgewerkt in A 1 en bij de volgende ronde op deze plek de opzet van 13 steken gedaan?

19.12.2021 - 12:10

country flag Sharon wrote:

Dear all. You can finish these socks by making a purl row after the last braid and then continuing with stockinette with smaller needles for some rows before casting off. Fold the stockinette inside the sock and either sew loosely , joining to the lower braid or simply sew/attach down the sides. It makes a lovely and pristine top edge. Better still is to decrease by 2 stitches on the purl row, as well as using a half size smaller needles.

21.07.2021 - 10:09

country flag Su wrote:

Hi! the pattern describes (= recht met koraal ) 'knit with coral' twice. When looking at the english page the second was 'purl with coral', which might need to be corrected :) Also, when doing the last row of the mittens, do you cast off with purl stitches? or knit?

17.02.2021 - 09:11

DROPS Design answered:

Dear Sue, thanks for noticing, diagram text has been now updated in dutch - you can cast off with knit stitches at the end of the mittens - just make sure cast off edge is not too tight. happy knitting!

17.02.2021 - 14:40