Anna skrifaði:
I do not undrstand show to do yarn over at the beginning of the raw? It can not be first stitch.
25.10.2018 - 20:36DROPS Design svaraði:
Dear Anna, just make the yarn over (pass the yarn over the right needle) before knitting first stitch on the row. On next row, work YO into front loop so that it creates a hole. Happy knitting!
26.10.2018 - 08:59
Anxeles skrifaði:
Me encanta el patrón. Soy principiante y estoy llegando al borde de picot aunque no lo tengo muy claro. Hay algún vídeo que lo explique más gráfico? Gracias
14.09.2018 - 17:12DROPS Design svaraði:
Hola Anxeles. Aquí tienes el video:
17.09.2018 - 20:42
Elżbieta skrifaði:
Świetny zestaw kolorystyczny
20.07.2018 - 20:21
Marianne skrifaði:
Jeg glæder mig til den opskrift kommer, jeg vil gerne lave det lækre sjal.
10.07.2018 - 16:37
Yvonne Lin-van Der Veen skrifaði:
Prachtige zachte kleurencombinatie.
13.06.2018 - 13:27
Delphine Vergnes skrifaði:
Love this shawl, the soft pastel colors, it seems so soft and delicate
05.06.2018 - 20:21
Mabelle#mabelleshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal í garðaprjóni, röndum og affellingu með picot. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS 194-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjón í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Uppslátturinn er prjónaður slétt þannig að það myndist gat þegar aukið er út. SJAL: Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1-2 alls 5 sinnum = 29 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 3 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 10 lykkjur fleiri) = 39 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 41 lykkjur í umferð. Prjónið UMFERÐ 1-2 alls 10 sinnum = 81 lykkjur í umferð. UMFERÐ 5 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 25 sinnum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 27 lykkjur fleiri), 108 lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 110 lykkjur í umferð. Prjónið UMFERÐ 1-2 alls 15 sinnum = 170 lykkjur í umferð. UMFERÐ 7 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 55 sinnum og prjónið 3 lykkjur slétt (= 57 lykkjur fleiri), 227 lykkjur í umferð. UMFERÐ 8 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 229 lykkjur í umferð. Nú eru rendur prjónaðar til skiptis 2 umferðir garðaprjón með ljós bleikfjólublár og 2 umferðir garðaprjón með ljós grár. Til að þræðirnir fylgi áfram með í stykkinu verður að prjóna með báðum þráðunum í byrjun á umferð. Byrjið með litinn ljós bleikfjólublár og prjónið þannig: UMFERÐ 9 (= rétta): Notið báða litina: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt með báðum litum. Takið frá litinn sem ekki á að nota, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 10 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). * Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið UMFERÐ 9-10. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið UMFERÐ 9-10 *. Prjónið frá *-* alls 10 sinnum = alls eru 22 umferðir garðaprjón með litnum ljós bleikfjólublár og 20 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár. Nú eru 313 lykkjur í umferð, hægt er að klippa ljós bleikfjólubláa þráðinn frá og festa. Prjónið síðan með litnum ljós grár. UMFERÐ 11 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 102 sinnum og prjónið 4 lykkjur slétt (= 104 lykkjur fleiri), 417 lykkjur í umferð. UMFERÐ 12 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri) = 419 lykkjur í umferð. Prjónið nú rendur með til skiptis 2 umferðir garðaprjón með litnum grár og 2 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár. Til að þræðirnir fylgi áfram með í stykkinu verður að prjóna með báðum þráðunum í byrjun á umferð. Byrjið með litinn grár og prjónið þannig: UMFERÐ 13 (= rétta): Notið báða litina: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt með báðum litum. Takið frá litinn sem ekki á að nota, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 14 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið afgang af lykkjum slétt (= 2 lykkjur fleiri). * Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið UMFERÐ 13-14. Skiptið yfir í litinn grár og prjónið UMFERÐ 13-14 *. Prjónið frá *-* alls 5 sinnum = alls eru 12 umferðir garðaprjón með litnum grár og 10 umferðir garðaprjón með litnum ljós grár. Nú eru 463 lykkjur í umferð, hægt er að klippa ljós gráa þráðinn frá og festa. Haldið áfram með litinn grár og prjónið UMFERÐ 1-2 alls 25 sinnum til viðbótar = 50 umferðir með garðaprjóni með litnum grár. Nú eru 563 lykkjur í umferð, hægt er að klippa gráa þráðinn frá og festa. AFFELLING MEÐ PICOT. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og fellið laust af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í bilið á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn á milli lykkja og setjið uppsláttinn yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýjar lykkjur á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið af næstu 6 lykkjur 1 og 1 (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir og 2 lykkjur á vinstri prjóni). Haldið nú áfram með að prjóna frá *-* + fellið af 6 lykkjur alveg eins meðfram öllum affellingarkanti þar til ekki eru nægileg margar lykkjur eftir til að gera nýjan picot og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mabelleshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.