DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 194-26
DROPS Design: Mynstur z-836
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

Mál:
Hæð mæld meðfram miðju lykkju: ca 62 cm
Lengd mæld meðfram efri hlið: ca 210 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 3800, bleikfjólublár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 05, bleikfjólublár

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 29 umferðir á hæð með garðaprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

AFFELLING:
Til að kanturinn á sjalinu verði ekki stífur neðst niðri er hægt að fella af með grófari prjónum. ATH! Ef kanturinn er áfram stífur er hægt að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja, jafnt yfir meðfram affellingarkanti.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Uppslátturinn er prjónaður slétt svo að það verði gat þegar aukið er út.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk á hringprjón 6. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 9 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju, merkið á að fylgja með í stykkinu og merkir miðjulykkju. Miðjulykkjan er prjónuð í sléttprjóni annars eru allar lykkjur prjónaðar slétt (= garðaprjón).

UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 2 lykkjur hafa verið auknar út og það eru 11 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram þar til eftir er 1 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 4 lykkjur fleiri.

UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðulykkju, prjónið miðju lykkjuna brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 2 lykkjur fleiri.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Endurtakið síðan UMFERÐ 2 og 3 þar til 311 lykkjur eru í umferð.

Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1-A.6 frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 144 lykkjur (= alls 8 sinnum), A.3 yfir 4 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), prjónið A.4 yfir 4 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 144 lykkjur (= alls 8 sinnum) og prjónið A.6 yfir 7 lykkjur.
Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina = 395 lykkjur í umferð. Lesið AFFELLING að ofan og fellið laust af í næstu umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.10.2018
Leiðrétting: Fitjið upp 5 lykkjur með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk á hringprjón 6.
Yfirfarið á vefsvæði: 11.12.2018
Leiðrétting: Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina = 395 lykkjur í umferð. Lesið AFFELLING að ofan og fellið laust af í næstu umferð frá réttu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð (= það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Lisbeth wrote:

Hej. Kan man strikke dobelt, altså 622 masker i alt og så 16 gange rapport i a2 og a5. Mvh Lisbeth

26.07.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Så lenge du har det maskeantallet for å fortsette med A.2 og A.5 kan du strikke det dobbelt, men siden vi ikke har strikket det med det maskeantallet kan vi ikke garantere resultatet. mvh DROPS Design

28.07.2023 - 11:26

country flag Karin wrote:

Hej, jag undrar över era garngrupper och huruvida man kan byta ut tvåtrådigt till en tråd. I det här mönstret står det A + A eller C vilket kan tolkas som A+A eller A+C. Man kan även tolka det som en tråd i garngrupp C men då borde det stått A+A=C vilket anges på er sida angående hur man konverterar garn. Hur ska man tolka detta?

18.11.2022 - 15:30

DROPS Design answered:

Hei Karin. I oppskriften står det A+A eller C. Det betyr at man må enten bruke 2 tråder fra garngruppe A eller 1 tråd fra garngruppe C. To tråder fra garngruppe A gir samme tykkelse som garn fra garngruppe C. Du kan lese mer om garngrupper her: DROPS Garngrupper mvh DROPS Design

21.11.2022 - 10:25

country flag Senni wrote:

Hey! Is it possible to knit the pattern with only one yarn? If so, what would be the best yarn and how much of it would I need?

08.04.2022 - 12:47

DROPS Design answered:

Dear Senni, you should then use a yarn Group C - read more about alternatives and calculate how many yarn you then need here. Happy knitting!

08.04.2022 - 13:51

country flag Elisabetta Valenti wrote:

Salve, mi chiedevo se questo modello si può realizzare coi ferri dritti, visto che non riesco a lavorare coi ferri circolari... Grazie.

04.01.2022 - 22:31

DROPS Design answered:

Buongiorno Elisabetta, questo modello è lavorato in piano: i ferri circolari servono per l'elevato numero di maglie, ma può utilizzare anche i ferri dritti, se preferisce. Buon lavoro!

05.01.2022 - 10:36

country flag Kristín wrote:

My bad. The amount of Kid silk is not underestimated. I thought each skein was 50 gr but turns out it\'s 25 gr. I bought too little :(

26.12.2021 - 17:29

country flag Kristín wrote:

The amount of the Kid silk yarn is underestimated. I just finished the 4th row of the pattern (A.1-A.6) and my Kid silk has run out. I still have a full (50gr) skein + 17 gr of the working skein of the alpaca left. I'm guessing I need at least another 50 gr of Kid silk to finish the shawl :(

26.12.2021 - 05:07

country flag Susanne wrote:

Huch - wo sind die Diagramme?? Das ist bei anderen Anleitungen dasselbe!

14.10.2021 - 18:24

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, Wir hatten einige Probleme mit der Anzeige der Bilder, aber jetzt ist alles behoben. Vielen Dank für Ihre Geduld, viel Spaß beim stricken!

15.10.2021 - 07:47

country flag Yvette Cross wrote:

Hej På bilden ser du ut att vara ett hålmönster runt mittmaskan men när man läser mönstret finns ingen sådan beskrivning. Det står bara omslag och ökning i slutet av varje varv. Läser jag fel?

18.04.2021 - 07:35

DROPS Design answered:

Hei Yvette. Strikk 2.PINNE (= retten) slik: Strikk 1 maske rett, 1 kast, strikk rett frem til maske-markøren, 1 KAST, 1 maske rett (= midtmasken), 1 KAST, strikk rett frem til det gjenstår 1 maske, 1 kast og strikk 1 maske rett = 4 masker økt. Når du strikker 3. pinne strikker KASTENE før og etter midtmasken rett slik at det blir hull. Gjenta 2. og 3. pinne til du har 311 masker på pinnen = hullmønster før og etter midtmasken hele veien opp. Når du skal strikke A.3 og A.4 før/etter midtmasken slutter alltid A.3 med 1 kast og A.4 starter med 1 kast (på hver rad fra retten). Slik blir det et hullmønster før og etter midtmasken hele veien. mvh DROPS design

19.04.2021 - 10:41

country flag Josette wrote:

Bonjour, j’ai fait les calculs des 6 chartes avant de débuter mon tricot. Je voudrais vérifier si mes données sont ok. Dans la charte no. 1, où on augmente d’une maille à chaque rang, au 26e et 27 e rangs, j’aurais 33 mailles dans chacun et au 28e 35. Et idem dans la A6. Dans la A3et la A4, au 27e rang, j’ai 19 mailles et 18 au 28 e rang. Est-ce juste car on augmente d’une maille par rang et ça s’inverse dans mes 2 derniers rangs. Merci pour votre temps

26.02.2021 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Josette, au dernier rang de A.1 vous devez avoir 35 mailles et au dernier rang de A.3 vous devez avoir 18 mailles. En revanche, vous aurez toujours 18 m dans A.2, lorsque les mailles sont à cheval entre les diagrammes, c'est à cause des jetés/diminutions = le jeté au début de A.2 = dernière maille de A.1 et le jeté au début de A.3 = dernière maille de A.3. Bon tricot!

26.02.2021 - 16:13

country flag Isabelle GLORIANT wrote:

Bonjour . J'ai fini le châle et en arrêtant les mailles je me suis rendue compte que le centre du châle est plus long que les côtés !!! Quelle est la solution car j'avoue c'est la première fois que ça m'arrive et je tricote depuis 50ans !!! Merci pour votre retour en vous remerciant par avance .

01.10.2020 - 16:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gloriant, je ne suis pas sûre de comprendre - le châle se tricote de haut en bas en augmentant sur les côtés et au milieu - si vous avez bien le nombre de mailles et bien augmenté comme indiqué, votre châle devrait avoir la forme souhaitée = un triangle d'environ 62 cm le long de la maille centrale et environ 210 cm d'envergure (le long des côtés du châle). Si vous avez un doute, montrez votre châle à votre magasin (même par mail), on pourra plus facilement vous aider. Bon tricot!

01.10.2020 - 16:20