DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7656.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Night Butterfly

Prjónað sjal úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað fram og til baka í röndum og stuttum umferðum.

DROPS 194-25
DROPS Design: Mynstur fa-414
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Mál: Lengd fyrir miðju: 60 cm. Breidd efst: ca 152 cm

DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 914, strönd
100 g litur 604, yfir hafið
100 g litur 912, súkkulaði
50 g litur 910, þokumistur
50 g litur 677, grænn/turkos
50 g litur 340, bláa lónið
50 g litur 651, sandfok
50 g litur 623, bleik þoka
50 g litur 655, rósarrunni

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 41 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7656.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu. Fækkið lykkjum í fyrstu umferð þegar prjónaðar eru stuttar umferðir og fækkið lykkjum áfram í 12. hverri umferð alls 5 sinnum í hverri og einni af fyrstu 5 mynstureiningum á sjali.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu. Aukið svona út í 12. hverri umferð alls 5 sinnum í hverri og einni af síðustu 5 mynstureiningum á sjali. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stórt gat myndist í stykkinu þegar snúið er við í stuttum umferðum er hert á þræðinum áður en prjónað er áfram.

RENDUR:
ATH: Skipt er um þráð í byrjun á umferð frá réttu (= í neðri kanti á sjali). Passið uppá að herða ekki á þræðinum þegar skipt er um þráð!
RÖND 1: 2 umferðir garðaprjón grænn/turkos, 2 umferðir garðaprjón strönd *, prjónið frá *-*.
RÖND 2: 2 umferðir garðaprjón bláa lónið, 2 umferðir garðaprjón strönd *, prjónið frá *-*.
RÖND 3: 2 umferðir garðaprjón yfir hafið, 2 umferðir garðaprjón strönd *, prjónið frá *-*.
RÖND 4: 2 umferðir garðaprjón þokumistur, 2 umferðir garðaprjón strönd *, prjónið frá *-*.
RÖND 5: Prjónið eins og rönd 4.
RÖND 6: 2 umferðir garðaprjón þokumistur, 2 umferðir garðaprjón súkkulaði *, prjónið frá *-*.
RÖND 7: 2 umferðir garðaprjón súkkulaði, 2 umferðir garðaprjón sandfok *, prjónið frá *-*.
RÖND 8: 2 umferðir garðaprjón súkkulaði, 2 umferðir garðaprjón yfir hafið *, prjónið frá *-*.
RÖND 9: 2 umferðir garðaprjón bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón sandfok *, prjónið frá *-*.
RÖND 10: Prjónið eins og rönd 9.
RÖND 11: 2 umferðir garðaprjón rósarrunni, 2 umferðir garðaprjón súkkulaði *, prjónið frá *-*.
RÖND 12: Prjónið eins og rönd 11.
RÖND 13: 2 umferðir garðaprjón yfir hafið, 2 umferðir garðaprjón rósarrunni *, prjónið frá *-*.
RÖND 14: 2 umferðir garðaprjón yfir hafið, 2 umferðir garðaprjón bleikþoka *, prjónið frá *-*.
RÖND 15: 2 umferðir garðaprjón bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón súkkulaði *, prjónið frá *-*.
RÖND 16: 2 umferðir garðaprjón strönd, 2 umferðir garðaprjón yfir hafið *, prjónið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Allt sjalið samanstendur af 16 mynstureiningum og 16 mismunandi röndum. Allar umferðirnar eru prjónaðar slétt, þ.e.a.s. allt sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 151 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum grænn/turkos. Prjónið 2 umferðir slétt (= 2 umferðir garðaprjón). Nú er prjónað áfram þannig:

MYNSTUREINING 1:
Prjónið RÖND 1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð – lesið ÚRTAKA!
Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið – sjá LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 21 sinnum til viðbótar (= alls 23 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 5 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og fækkað hefur um 5 lykkjur = 146 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 2:
Prjónið RÖND 2 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 16 sinnum til viðbótar (= alls 18 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 10 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og fækkað hefur um 5 lykkjur = 141 lykkja í umferð.

MYNSTUREINING 3:
Prjónið RÖND 3 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 11 sinnum til viðbótar (= alls 13 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 15 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og fækkað hefur um 5 lykkjur = 136 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 4:
Prjónið RÖND 4 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 6 sinnum til viðbótar (= alls 8 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 20 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og fækkað hefur um 5 lykkjur = 131 lykkja í umferð.

MYNSTUREINING 5:
Prjónið RÖND 5 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚRTAKA! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 1 sinni til viðbótar (= alls 3 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 25 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og fækkað hefur um 5 lykkjur = 126 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 6:
Prjónið RÖND 6 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og fækkað er um 1 lykkju í 12. hverri umferð! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 1 sinni til viðbótar (= alls 3 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 25 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og það eru 126 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 7, 8, 9, 10 og 11:
Prjónið stuttar umferðir alveg eins og í mynstureiningu 6, en prjónuð er RÖND 7 í 7. mynstureiningu, RÖND 8 í 8. mynstureiningu, RÖND 9 í 9. mynstureiningu o.s.frv. Lykkjufjöldinn er sá sami.

MYNSTUREINING 12:
Prjónið RÖND 12 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og aukið er út um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 1 sinni til viðbótar (= alls 3 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 25 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og aukið hefur út um 5 lykkjur = 131 lykkja í umferð.

MYNSTUREINING 13:
Prjónið RÖND 13 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og aukið er út um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 6 sinnum til viðbótar (= alls 8 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 20 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og aukið hefur út um 5 lykkjur = 136 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 14:
Prjónið RÖND 14 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og aukið er út um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 11 sinnum til viðbótar (= alls 13 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 15 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og aukið hefur út um 5 lykkjur = 141 lykkja í umferð.

MYNSTUREINING 15:
Prjónið RÖND 15 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og aukið er út um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 16 sinnum til viðbótar (= alls 18 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 10 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og aukið hefur út um 5 lykkjur = 146 lykkjur í umferð.

MYNSTUREINING 16:
Prjónið RÖND 16 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan og aukið er út um 1 lykkju í 12. hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING! Prjónið stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu, snúið.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur til baka.
Haldið svona áfram og prjónið þar til 5 lykkjur eru fleiri en frá fyrri umferð frá réttu 21 sinnum til viðbótar (= alls 23 sinnum), síðan er prjónað þar til 4 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð alls 5 sinnum. Þegar allar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar hafa verið prjónaðar 60 umferðir garðaprjón og aukið hefur út um 5 lykkjur = 151 lykkja í umferð.

Prjónið 2 umferðir í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Fellið af þannig: * fellið af fyrstu 4 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.02.2019
ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð frá réttu. Fækkið lykkjum í fyrstu umferð þegar prjónaðar eru stuttar umferðir og fækkið lykkjum áfram í 12. hverri umferð alls 5 sinnum í hverri og einni af fyrstu 5 mynstureiningum á sjali.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Gaby Wiedemann wrote:

Bei diesem Modell wird die Farbe 651 Sand angegeben. Diese ist aber nicht mehr erhältlich. Welche Farbe würden Sie stattdessen empfehlen? Denn die Farbe „soft chocolate“ ist ja schon vorgesehen.

18.03.2024 - 04:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wiedemann, Ihr DROPS Händler wird damit Ihnen helfen, die besten passenden Farben zu finden, auch per E-Mail oder per Telefon. Viel Spaß beim Stricken!

18.03.2024 - 09:38

country flag Marilyn Van Hook wrote:

I am almost finished with Night Butterfly DROPS 194-25. After the 16th Repetition, it says "Work 1 ridge over all stitches." Can you confirm that "all" just refers to the stitches on the needle and NOT making a ridge around the entire perimeter of the shawl? Thank you.

31.10.2023 - 16:19

DROPS Design answered:

Hi Marilyn, Yes, just the stitches on the needle. Happy knitting!

01.11.2023 - 07:03

country flag Marilyn V wrote:

Are there supposed to be holes from yarn overs in the shawl pattern? I did watch the video with the twisted stitch done on the following row to make the hole smaller. Is there an advantage to using the yo for the increase rather than an M1 or other increase that makes a smaller hole? Thank you!

12.01.2023 - 21:13

DROPS Design answered:

Hi Marilyn, The yarn overs are knitted twisted on the next row to avoid holes. You can use other methods of increasing if you feel happier with them, but working YOs twisted should not leave a hole. Happy knitting!

13.01.2023 - 07:47

country flag Marilyn V wrote:

On the Stripes Tutorial, I understand wrapping the old yarn around the new yarn. I'm confuse where you knit back on the wrong side, and the last two stitches before the edge (where you are carrying the old yarn), are done in some twisted stitch? What is the purpose of this? Is this the same twisted stitch used on the yarn over video to make the hole smaller when knitting the next row?

12.01.2023 - 21:07

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, in the video showing how to knit stripes the purl stitches are worked with the Norwegian method (see this video) - this means they are just purled all the row, the yarns are crossed at the beginning of the row from RS and row from WS is just worked as usual. Happy knitting!

13.01.2023 - 08:37

country flag Marilyn Van Hook wrote:

I am hoping to night this Night Butterfly project and contacted your USA distributor, Wool Warehouse. They had all the required yarns except 651 - Sand, and tell me it has been discontinued. Is there an alternative Fabel yarn you would recommend? Thank you.

09.12.2022 - 20:34

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, you could check in other Internet stores if they have the 651 shade still available, even if it's no longer produced; sometimes stores have some yarns left over. The most similar shade right now is 912 (which is also used in the pattern) or, if you want a lighter tone for the shawl, you could use a unicolor shade, like 101 - beige. Happy knitting!

11.12.2022 - 22:34

country flag Marilyn Van Hook wrote:

I love the Night Butterfly pattern and was excited to start it. I contacted Wool Warehouse, your US distributor, to order your yarns for this project. They had everything but 651 - Sand and tell me it has been discontinued. Do you have a yarn you would recommend as a replacement for this? Thank you!

09.12.2022 - 20:32

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, you could check in other Internet stores if they have the 651 shade still available, even if it's no longer produced; sometimes stores have some yarns left over. The most similar shade right now is 912 (which is also used in the pattern) or, if you want a lighter tone for the shawl, you could use a unicolor shade, like 101 - beige. Happy knitting!

11.12.2022 - 22:34

country flag Gonny Van De Straat wrote:

Ik ben deze sjaal aan het breien maar kan niet verder; ik begrijp de instructies van herhaling 7, 8, 9, 10 en 11 niet goed. Wat wordt bedoeld met "work STRIPE 7 on 7th repetition, STRIPE 8 on 8th repetition, STRIPE 9 on 9th repetition etc"? (Sorry, ik volg de Engelse versie.) Gaat het hier om de kleurbepaling? Of moet ik bij de 7e, 8e, etc ribbel beginnen, zodat de hele herhaling smaller wordt?

07.11.2022 - 04:20

DROPS Design answered:

Dag Gonny,

Je gaat verder zoals de instructies bij streep 6, maar je breit STREEP 7 op herhaling 7. Met 'STREEP 7' wordt bedoeld de kleuren zoals aangegeven bovenaan bij de paragraaf onder 'STREPEN'. Dit geldt dus ook voor 8, 9 enzovoort.

08.11.2022 - 19:47

country flag Beverley Folland wrote:

I am looking for a different colour variation of the Night Butterfly pattern. I would like to use some of your purple shades - lavender, berry dreams. Is there an alternative colour scheme available? Thank you!

12.05.2021 - 22:11

country flag Inez Michielsen wrote:

Er staat een wijziging in het patroon: minder de 1e en de 12 naald 1 steek. Betekent dit dat je per herhaling 10 steken mindert?

07.02.2021 - 21:41

DROPS Design answered:

Dag Inez,

Ja, dat klopt. 5 keer in totaal in elk van de eerste 5 herhalingen. 5 x 2 steken (1 steek in de eerste naald en 1 steek in de 12e naald)= 10 steken.

12.02.2021 - 13:36

country flag Anna-Lise Steenbeek wrote:

De sjaal is prachtig en ik wil hem voor mij moeder breien. Hoe veel bollen wol heb ik nodig als ik het in twee kleuren wilt breien? Vr.gr. Anna-Lise Steenbeek

07.01.2021 - 13:22

DROPS Design answered:

Dag Anna-Lise,

Het is niet bekend hoeveel er dan specifiek voor deze omslagdoek nodig is, maar als ik vergelijk met vergelijkbare omslagdoeken, dan kom ik op ongeveer 450 a 500 gram. Je kan je verkooppunt vragen welke regelingen er zijn voor het terugsturen van overgebleven bollen, zodat je evt. wat extra kunt bestellen

09.01.2021 - 09:26