Deligne skrifaði:
Bonjour je reviens vers vous. Tout d abord merci pour vous 1iere explications qui m ont étaient d une grande aide J en suis aux emmenchures j ai rabattu mes mailles mais je ne comprends pas comment je dois les remonter dois je prendre une autre pelotes ou y a t il une technique merci d avance
28.06.2018 - 06:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Deligne, vous montez les mailles au-dessus des mailles rabattues pour la 1ère emmanchure au rang suivant - cf vidéo ci-dessous, puis tricotez les mailles suivantes jusqu'à la 2ème emmanchure et terminez le tour. Bon tricot!
28.06.2018 - 08:56
Deligne skrifaði:
Je me lance c'est la 1ere fois que je fais un de vos modèles (superbe ) j'ai un problème avec le diagramme : je monte 2 mailles par aiguille. 1er rang je fais un jeté donc =3 mailles et sur le diagramme 2ieme ligne je ne retrouve que 2 mailles pouvez vous me donner une explication car je voudrais vraiment réaliser cette magnifique veste merci d avance
14.06.2018 - 23:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Deligne, on monte 8 mailles et on répète 8 fois A.1 tout le tour, c'est-à-dire que vous allez répéter 8 fois: (1 jeté, 1 m env) au 1er tour = vous aurez ainsi 16 m et 2 m par motif de A.1, n'hésitez pas à ajouter un marqueur entre chaque A.1 pour bien repérer le nombre de mailles de chaque motif à chaque tour. Bon tricot!
15.06.2018 - 08:32
Martine skrifaði:
Très beau et original Je recherche ce type de modèle pour l’hiver tricoté en Népal avec pièce dos et empiècement autour en rangs raccourcis avec motifs (losanges, torsades...) J'essaye de le faire sans modèle mais je galère... Pour le prochain catalogue d'hiver ? peut-être
08.01.2018 - 19:41
Dehorter skrifaði:
Superbe
05.01.2018 - 14:58
Jessica Baughman skrifaði:
Northern Star Shawl
12.12.2017 - 19:59
Seaside Dreamer#seasidedreamerjacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð hringpeysa með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 191-6 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju á stykkinu (bak), síðan fram og til baka á hvorri hlið. Ermar eru prjónaðar hvor fyrir sig og saumaðar í stykkið í lokin. HRINGPEYSA: Fitjið upp 8 lykkjur með BabyAlpaca Silk og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 3. Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 í umferð). Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið til og með umferð á undan ör í A.1 = 128 lykkjur í umferð. Frá umferð með ör er prjónað A.2 eftir hvert A.1 þannig: Prjónið * A.1 yfir fyrstu/næstu 15 lykkjurnar eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Lykkjur í A.1 eru prjónaðar inn í A.2 jafnframt sem aukið er út hvoru megin við A.2 (útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu). Prjónið til og með umferð með stjörnu í A.1. Nú hafa allar lykkjur í A.1, nema miðju 5 lykkjur verið prjónaðar inn í A.2. Klippið frá og færið byrjun á umferð 5 lykkjur til vinstri, þannig að fyrsta lykkjan í A.2 er byrjun á umferð. Haldið áfram með A.1 og A.2, þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a endurtekið til loka. Skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 34-36-38 cm að þvermáli, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með útaukningu. Nú er gerður handvegur þannig (það eru ca 256-272-288 lykkjur í umferð): Aukið út eins og áður, þ.e.a.s. þegar felldar eru af lykkjur fyrir handveg, haldið áfram að auka út yfir þessar lykkjur, þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn og uppslátturinn felldur af fyrir handveg (meðtaldar útaukningar), þ.e.a.s. teljið lykkjur sem felldar eru af. Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 37-39-42 lykkjur, fellið af næstu 44-48-52 lykkjur fyrir handveg (án útaukninga, þ.e.a.s. útaukningar koma sem viðbót við þessar lykkjur), prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 81-87-94 lykkjur, fellið af næstu 44-48-52 lykkjur fyrir handveg (nema útaukningar, þ.e.a.s. útaukningar sem koma sem viðbót við þessar lykkjur), prjónið mynstur yfir síðustu 37-39-42 lykkjurnar. Í næstu umferð eru fitjaðar upp jafn margar lykkjur og þær sem felldar voru af fyrir handveg (þ.e.a.s. 44-48-52 lykkjur + útaukningar sem koma sem viðbót við þessar lykkjur) yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (nú eru 352 lykkjur í umferð), haldið áfram með A.3 yfir A.2 (A.1a heldur áfram eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru endurteknar efstu 12 umferðirnar í A.3, aukið út eins og áður í 4. hverri umferð og prjónið gataumferð og garðaprjón. Haldið áfram með A.3 og A.1a þar til stykkið mælist 96-100-104 cm, nú eru ca 672-696-720 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið í framstykki þannig: Fellið af fyrstu 54-56-58 lykkjur, prjónið yfir næstu 162-168-174 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af lykkjur þar til eftir eru 216-224-232 lykkjur, prjónið yfir næstu 162-168-174 lykkjur (= hægra framstykki), setjið þær síðan á þráð, fellið af síðustu 54-56-58 lykkjur. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir 162-168-174 lykkjur, stillið af að 1. umferð þannig að affellingarlykkjur séu prjónaðar slétt frá röngu. JAFNFRAMT því sem fyrstu 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð eru felldar af (= 2 lykkjur felldar af í hverri umferð). Haldið áfram með mynstur og fellið svona af þar til stykkið mælist alls 63-66-69 cm frá miðju á hring (þ.e.a.s. framstykkið mælist ca 15-16-17 cm). Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Fitjið upp 48-56-64 lykkjur á sokkaprjón 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er prjónað A.4 yfir allar lykkjur (= 6-7-8 mynstureiningar á breidd). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 18-19-20 sinnum = 84-94-104 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-43-42 cm fellið af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerkið, stykkið er síðan prjónað fram og til baka á hringprjón = 76-86-96 lykkjur. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 7-7-8 sinnum, 1 lykkja 5-7-9 sinnum og 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-58 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Dragið saman 8 lykkjur í byrjun á stykkinu. Saumið ermar í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasidedreamerjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.