DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 191-7
DROPS Design: Mynstur ai-117
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: ca 208 cm.
Hæð mælt við miðju: ca 104 cm.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 18, ljós grágrænn
150 g litur 15, fjólublá þoka
100 g litur 01, natur
100 g litur 10, þoka

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
ATH: Vegna lykkjufjöldans er gott að skipta lykkjum yfir á nokkra hringprjóna nr 5,5 (við notuðum 3 stykki af hringprjónum 5,5 sem eru 80 cm).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um þegar aukið er út jafnt yfir):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður frá miðju að aftan. Vegna lykkjufjöldans er prjónað fram og til baka á hringprjóna, en til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar er gott að skipta lykkjunum yfir á nokkra hringprjóna eins og útskýrt er undir DROPS HRINGPRJÓNAR.

SJAL:
Fitjið upp 9 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum ljós grágrænn.
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðj lykkju í sléttprjóni (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 13 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

Prjónið síðan mynstur eins og útskýrt er að neðan með 2 kantlykkjur í garðaprjóni hvoru megin við miðjulykkju í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið A.1 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1A (= 1 lykkja), A.1B (= 2 lykkjur), A.1C (= 1 lykkja), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.1A (= 1 lykkja), A.1B (= 2 lykkjur), A.1C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
JAFNFRAMT í 25. umferð í A.1 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju þannig að það verða áfram jafn margar lykkjur hvoru megin við miðjulykkju – lesið ÚTAUKNING-2).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 73 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur.

Prjónið A.2 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A (= 1 lykkja), endurtakið A.2B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 16 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.2C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.2A (= 1 lykkja), endurtakið A.2B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.2C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
JAFNFRAMT í 11. umferð í A.2 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 3 lykkjur á undan miðjulykkju og 3 lykkjur á eftir miðjulykkju þannig að það verða áfram jafn margar lykkjur hvoru megin við miðjulykkju).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 107 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21 cm mælt meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn þoka.

Prjónið A.3 með litnum þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3A (= 7 lykkjur), endurtakið A.3B þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3C (= 8 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.3A (= 7 lykkjur), endurtakið A.3B þar til 10 lykkjur eru eftir á prjóni (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3C (= 8 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í 25. umferð í A.3 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju).
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 169 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.

Prjónið A.2 aftur alveg eins og útskýrt er að ofan, en með litnum ljós grágrænn (nú er pláss fyrir 40 mynstureiningar með A.2B hvoru megin við miðju).
JAFNFRAMT í 11. umferð í A.2 er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 3 lykkjur á undan miðjulykkju og 3 lykkjur á eftir miðjulykkju).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 203 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn fjólublá þoka.

Prjónið A.4 með litnum fjólublá þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4A (= 1 lykkja), endurtakið A.4B þar til 2 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4C (= 2 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), A.4A (= 1 lykkja), endurtakið A.4B þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni (= 8 lykkjur með 12 lykkjur), A.4C (= 2 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í 13. umferð í A.4 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 237 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 49 cm mælt meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn natur.

Prjónið A.5 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5A (= 1 lykkja), endurtakið A.5B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 57 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.5C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.5A (= 1 lykkja), endurtakið A.5B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 57 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.5C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í 5. umferð í A.5 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju).
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 251 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.

Prjónið A.6 með litnum ljós grágrænn þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.6A (= 7 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 8 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.6C (= 8 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.6A (= 7 lykkjur), endurtakið A.6B þar til 10 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.6C (= 8 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í 37. umferð í A.6 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á undan miðjulykkju og 1 lykkju á eftir miðjulykkju).
Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 333 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 78 cm meðfram miðjulykkju. Skiptið yfir í litinn natur.

Prjónið A.7 með litnum natur þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7A (= 1 lykkja), endurtakið A.7B þar til 1 lykkja er eftir á undan miðjulykkju (= 81 mynstureiningar með 2 lykkjum), A.7C (= 1 lykkja), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.7A (= 1 lykkja), endurtakið A.7B þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (= 81 mynstureining með 2 lykkjum), A.7C (= 1 lykkja) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í 7. umferð í A.7 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 2 lykkjur á undan miðjulykkju og 2 lykkjur á eftir miðjulykkju).
Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 357 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn þoka.

Prjónið A.8 þannig með litnum þoka: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.8A (= 16 lykkjur), endurtakið A.8B þar til 16 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 9 mynstureiningar með 16 lykkjum), A.8C (= 16 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.8A (= 16 lykkjur), endurtakið A.8B þar til 18 lykkjur eru eftir á prjóni (= 9 mynstureiningar með 16 lykkjum), A.8C (= 16 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka eru 385 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn.

Prjónið A.5 aftur alveg eins og útskýrt var áður í uppskrift, en með litnum ljós grágrænn (nú er pláss fyrir 94 mynstureiningar með A.5B hvoru megin við miðju).
JAFNFRAMT í 5. umferð í A.5 (síðasta umferð frá réttu) er aukið út um 14 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 7 lykkjur á undan miðjulykkju og 7 lykkjur á eftir miðjulykkju).
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 411 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn fjólublá þoka.

Prjónið A.9 með litnum fjólublá þoka þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.9A (= 11 lykkjur), endurtakið A.9B þar til 12 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 15 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.9C (= 12 lykkjur), 1 lykkja í sléttprjóni (= miðjulykkja), A.9A (= 11 lykkjur), endurtakið A.9B þar til 14 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.9C (= 12 lykkjur) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 104 cm meðfram miðjulykkju.
Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2019
Leiðrétting:..Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka eru 523 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 104 cm meðfram miðju lykkju. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður (= gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Grace wrote:

Hi! So, I've gotten to the beginning of the diagram for this lovely shawl, but I am confused. How have I cast on 9 stitches, increased to 13, and then supposed to follow the diagram if it starts with 4 stitches? Or do the spaces not represent one stitch? Thanks!

27.08.2023 - 01:54

DROPS Design answered:

Dear Grace, the first row indicates how the charts are divided in the stitches: 2 edge stitches in garter stitch, A.1A (= 1 stitch), A.1B (= 2 stitches), A.1C (= 1 stitch), 1 stitch stocking stitch (=middle stitch), A.1A (= 1 stitch), A.1B (= 2 stitches), A.1C (= 1 stitch) and 2 edge stitches in garter stitch = 13 stitches. Later on, as you increase on the charts you will also increase the number of stitches on each chart. Remember that you are working charts A.1A, A.1B and A.1C and that you read the charts from bottom to top. You can read more on knitting charts here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:54

country flag Rebekah wrote:

I am very confused about how to do this pattern. I'm a relatively new knitter when it comes to lacey things. How do I read the diagrams? Do they go across like the first row of A1A then A1B then A1C? I would really love some help with this, please!

24.08.2023 - 04:52

DROPS Design answered:

Hi Rebekah, The diagrams are read from bottom up and from right to left from the right side and left to right on the wrong side. In this pattern, you work the diagrams in the order described in the text; the first row in A.1A (after 2 edge stitches and working from right to left), then the first row in A.1B, then A.1C and so on. Working back from the wrong side on row 2 (from left to right) you work the series in reverse; begin with A.1C, then A.1B, A.1A, etc. Hope this helps and happy knitting!

24.08.2023 - 06:43

country flag Natalia wrote:

Czy w tym wzorze na schemacie są same podwójne narzuty?

27.06.2023 - 21:50

DROPS Design answered:

Witaj Natalio, tak, tutaj są tylko podwójne narzuty. Włóczka Air jest dosyć puchata, 1 narzut nie byłby zbyt dobrze widoczny. Pozdrawiamy!

28.06.2023 - 09:02

country flag Deni wrote:

Hi,can you please explain how to make this"AT THE SAME TIME on row 11 in A.2 (the last row from the right side) increase 6 stitches evenly spaced (increase 3 stitches before the middle stitch and 3 stitches after the middle stitch so that there still are the same number of stitches on each side of the middle stitch)". Thank you.

04.05.2023 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Deni, in this lesson we explain how to decrease evenly on a row - make sure to decrease 3 sts on each side of the middle stitch to make the number of stitches matching. Happy knitting!

05.05.2023 - 07:53

country flag Sandra wrote:

Hallo, ganz am Anfang heißt es die Mittelmasche glatt rechts und die 2 Maschen beidseitig der Mittelmasche weiter kraus rechts. Dann soll A1 laut Muster gestrickt werden. Hier wären laut Muster A1a und A1c die Maschen beidseitig der Mittelmasche in der Rückreihe aber links und nicht rechts gestrickt werden. Was ist nin korrekt? Vielen Dank

17.03.2023 - 13:18

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, also die Maschen von A.1 werden ja links bei den Rückreihen gestrickt, aber es sind 2 krausrechte Maschen am Anfang + am Anfang jeder Reihe gestrickt, und die Mittelmasche wird glattrechts gestrickt, dh: 2 krausrechte Maschen, A.1A, A.1B, A.1C, 1 mittel-Masche glatt rechts, A.1A, A.1B, A.1C, 2 krausrechte Maschen; bei Rückreihen stricken Sie 2 rechts, dann links bis die 2 letzten Maschen und 2 M rechts. Viel Spaß beim stricken!

17.03.2023 - 15:02

country flag Bodil wrote:

A. 2A slutter med 8 masker, men A. 3A starter med 7 masker.? Hvordan passer det. Ved begyndelse af 3. farve.

31.12.2022 - 15:42

DROPS Design answered:

Hei Bodil. Designet på sjalet er tegnet slik at de ulike diagrammene skal ikke "stemme" med hverandre i høyden (kun i bredden). Om du ser på nærbildet, ser du at mellom hver farge er det rader kun strikket med rettmasker og rader med kun vrangmasker. mvh DROPS Design

06.01.2023 - 07:47

country flag Melanie wrote:

Bonjour est il possible de faire une vidéo sur le début du diagramme car j’ai du mal à comprendre à partir du rang 4 diagramme A1?

15.10.2022 - 10:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, les diagrammes se lisent de bas en haut, sur l'endroit lisez de droite à gauche (A.1A, puis A.1B et terminez par A.1C) et sur l'endroit, lisez les de gauche à droite (A.1C, puis A.1B et terminez par A.1A); le 4ème rang (et tous les rangs sur l'envers avec un point noir se tricotent à l'endroit), tricotez les rangs sur l'envers en cases blanches à l'endroit sur l'endroit ou bien à l'envers sur l'envers. Retrouvez ici plus d'infos sur les diagrammes. Bon tricot!

17.10.2022 - 09:08

country flag Melanie wrote:

Bonjour je souhaiterais faire ce modèle de châle , j’aimerais savoir comment on tricote la maille centrale en jersey? Est ce qu’il faut la tricoter à l’envers sur l’endroit et à l’endroit sur l’envers ou la tricoter à l’endroit sur l’endroit et à l’envers sur l’envers? Merci d’avance

15.10.2022 - 08:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, la maille centrale en jersey se tricote à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers. Bon tricot!

17.10.2022 - 09:03

country flag Nathalie Langlais wrote:

Il aurait été bien d'indiquer les nombres de mailles au bout de chaque rangs . Dans la grille A2. On doit arriver à combien de maille au rang no 7?

26.08.2022 - 21:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Langlais, vous augmentez 1 maille tous les 2 rangs (tous les rangs sur l'endroit) dans les diagrammes A.2A et A.2C autrement dit, vous aurez 5 mailles dans A.2A (= 1 jeté, 2 m end, 2 m ens à l'end, 1 jeté) et dans A.2C (2 m ens à l'end, 1 jeté, 2 m end, 1 jeté). Bon tricot!

29.08.2022 - 08:23

country flag Lise wrote:

Hei. I begynnelsen av mönsteret, og i ökn.tips 1, står det at det skal väre 1 omslag, men i diagrammet står det at det skal väre 2 omslag. Så jeg undrer skal det väre 2 omslag hele tiden, eller 1 omslag på ökn. maskene og 2 i selve mönsteret.....tross at det står 2 omslag hele veien der.

07.01.2022 - 13:01

DROPS Design answered:

Hej Lise, ja det stemmer når du laver omslagene i diagrammet følger du diagramforklaringen, laver 2 omslag (det enea stickas och det andra släpps ned) Lycka till :)

17.01.2022 - 10:26