Mary skrifaði:
Hallo, helaas zijn de plaatjes van de telpatroontjes niet zichtbaar.. daar staat nu een vraagteken. zowel op de pc als op de iPad niet te zien. kunnen jullie dit herstellen? dan ga ik enthousiast aan de slag! :)
24.04.2018 - 13:47DROPS Design svaraði:
Hallo Mary, Vaak heeft dit te maken met een (tijdelijke) internetstoring of verbindingsproblemen. De plaatjes zijn wel aanwezig op de site. De pagina herladen of later weren even proberen is de oplossing.
28.04.2018 - 18:17
Claudia Daniel skrifaði:
Supersüsse Söckchen, möcht ich gerne nachstricken
15.12.2017 - 19:56
Nadia skrifaði:
These are so lovely, I think they'd make the cutest outfit together with the w-695 sweater 🍀💕
11.12.2017 - 15:15
Frosted Top Socks#frostedtopsocks |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með kanti með öldumynstri úr DROPS Flora. Stærð 35/37 - 41/43.
DROPS 189-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið MYNSTUR A.1 (= 18-18-20 lykkjur – veldu mynstur fyrir þína stærð) 4 sinnum í umferð. Í umferð með ör í mynsturteikningu er skipt yfir í litinn kórall. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 5 cm frá efst á kanti og niður. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-4-8 lykkjur jafnt yfir = 66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir prjónamerki slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur á undan prjónamerki snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-5. hverri umferð alls 6-5-5 sinnum = 54-58-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 6-7-8 cm frá eftir mynsturteikningu A.1. Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14 lykkjum á prjóni, setjið næstu 30-32-34 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni = 24-26-28 lykkjur fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 nýtt prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – lesið HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 30-32-34 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-74-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-32-34 lykkjur ofan á fæti. Prjónið síðan sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 30-32-34 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 30-32-34 lykkjum ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-9-11 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm mælt frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm eftir til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og og undir fæti. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) og 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hveri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedtopsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.