Susanne Pedersen skrifaði:
Kan man strikke strømper af Paris??
13.01.2019 - 11:32DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Vi har ingen oppskrifter på strikkede tøfler i Paris, men du kan bruke oppskrifter for garn i gruppe C - da disse har samme strikkefasthet som Paris. Lag deg likevl en strikkeprøve så du er sikker på at srtikkefastheten blir overholdt. Du kan filtrere søket etter garngrupper slik at du kun får opp de oppskriftene med garn i gruppe C. Vær obs på at bomullsgarn ikke er like varmt som ull, og at garnet er noe stivere og tyngre. God fornøyelse
16.01.2019 - 14:19
Sonia B. skrifaði:
Bonjour, dans INFO CROCHET = Remplacer la 1ère maille serrée au début de chaque tour/rang de mailles serrées par 1 maille en l'air et terminer le tour par 1 maille coulée dans la 3ème maille en l'air. Ne devrait-on pas plutôt terminer par une maille coulée dans la 1e maille en l'air (et non dans la 3e m.l.)? Merci.
21.05.2018 - 06:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Sonia B., si tout à fait, la correction a été faite, merci! Bon crochet!
22.05.2018 - 09:01
Silje Todal Valdok skrifaði:
Håper virkelig disse kommer som oppskrift for disse er perfekte som sommergave til båtfolket
13.12.2017 - 00:56
Happy Sailor#happysailor |
|
![]() |
![]() |
Hekluð tátilja með röndum úr DROPS Paris. Stærð 35-43.
DROPS 189-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu fastalykkju alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í hverri umferð með stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju. Fyrsta fastalykkjan í hverri umferð með fastalykkjum er skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. MYNSTUR: 2 umferðir með fastalykkjum, 1 umferð með stuðlum. Endurtakið þessar 3 umferðir. RENDUR: * Heklið 2 umferðir með fastalykkjum og 1 umferð með stuðlum með litnum dökk beige, heklið 2 umferðir með fastalykkjum og 1 umferð með stuðlum með litnum bensínblár *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá tá að hæl. TÁTILJA: Heklið 5 loftlykkjur með litnum bensínblár með heklunál 4 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um loftlykkjuhringinn – byrjun á umferð = mitt undir fæti. UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 3 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en aukið út um 4-6-10 fastalykkjur jafnt yfir = 34-36-40 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju. Haldið áfram með MYNSTUR og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 10-11-13 cm, endið eftir 2 umferðir með fastalykkjum, klippið frá. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju lykkja í umferð, þ.e.a.s. 17-18-20 fastalykkjur. Haldið áfram með stykkið með tánna að þér og teljið út 4 lykkjur til vinstri á undan prjónamerki, byrjið hér að hekla frá réttu með stuðlum. Heklið þar til eftir eru alls 6 fastalykkjur í umferð (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki mitt ofan á fæti), snúið = 28-30-34 stuðlar. Haldið áfram með mynstur eins og áður – heklið 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul, síðan fastalykkjur þar til 1 stuðull er eftir í umferð, snúið. Heklið síðan fram og til baka yfir þær 26-28-32 lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist alls ca 21-23-26 cm – stillið af að næsta umferð sem á að hekla sé umferð með stuðlum. Næsta umferð er hekluð þannig: 1 stuðull í hverja af fyrstu 11-12-14 fastalykkjum, heklið síðan næstu 4 lykkjur saman 2 og 2 – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, heklið síðan 1 stuðul af síðustu 11-12-14 fastalykkjum. Klippið frá. Leggið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman kant í kant fyrir miðju að aftan. KANTUR: Heklið kant í kringum opið á tátiljunni með litnum bensínblár þannig: Um fyrstu röndina á eftir skiptingu er rönd með litnum dökk beige. UMFERÐ 1: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju mitt ofan á fæti, 1 fastalykkja í horni á undan fyrstu rönd með litnum dökk beige, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir rönd með litnum dökk beige, 1 fastalykkja í skiptingunni á milli 2 næstu lita randa, 2 fastalykkjur í rönd með bensínblár, 1 fastalykkja í skiptingunni á milli 2 næstu lita randa *, endurtakið frá þar til eftir eru ein rönd með litnum dökk beige, 2 loftlykkjur, hoppið yfir rönd með litnum dökk beige, 1 fastalykkja í horni á undan fastalykkjum ofan á fæti, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Um fyrstu rönd á eftir skiptingu er rönd með litnum bensínblár: UMFERÐ 1: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju mitt ofan á fæti, 1 fastalykkja í horni, * 2 fastalykkjur í rönd með litnum bensínblár, 1 fastalykkja í skiptingu á milli 2 næstu lita randa, 2 loftlykkjur, hoppið yfir rönd með litnum dökk beige, 1 fastalykkja í skiptingu á milli 2 næstu lita randa , * endurtakið frá þar til eftir er ein rönd með litnum bensínblár, heklið 2 fastalykkjur í rönd með litnum bensínblár, 1 fastalykkja á undan fastalykkjum ofan á fæti, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið aðra tátilju á sama hátt. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 2 metra með litnum sinnep. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í fyrstu umferð sem var hekluð með litnum bensínblár í kringum op á tátiljunni og hnýtið hnút við miðju að aftan. Gerið það sama á hinni tátiljunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #happysailor eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.