Eva Anderström skrifaði:
Hur många maskor lägger jag upp för S/M? 42 maskor stämmer inte överens med mönstrets 14. Mvh Eva
14.11.2023 - 09:32DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Du lägger upp 42 m för storlek S/M (3 x 14 m = 42 m). Mvh DROPS Design
16.11.2023 - 10:16
Pauline skrifaði:
Hei, hva mener dere med 3 ganger rundt på omgangen?
06.11.2022 - 21:15DROPS Design svaraði:
Hei Pauline, Dette betyr at du gjentar mønsteret (A.1) 3 ganger i bredden på omgangen. God fornøyelse!
07.11.2022 - 07:45
Sigrid skrifaði:
Jeg bruker pinne 3, men får veldig store hull ved fellingene. Er deres pulsvanter tette og fine, eller er det noe størrelse på dem også? På bildet ser det jo helt tett ut.
12.12.2021 - 20:26DROPS Design svaraði:
Hei Sigrid. Tenker du på der det skal strikkes 4 masker sammen? Gjør som det står under diagramforklaringen og evnt stram litt i tråden slik at det ikke blir "hull". Evnt se videoen til pulsvantene for å se om du gjøre det riktig Hvordan strikke pulsvantene i DROPS 190-33 mvh DROPS Design
14.12.2021 - 10:58
Beatrice skrifaði:
Sehr schöne Pulswärmer und eine leicht verständliche Anleitung. Ich habe die Originalwolle im Handarbeitsgeschäft gekauft und empfehle auch die Originalwolle zu nehmen. Ein wunderbar weiches, warmes Garn, was sich sehr schön stricken läßt. Ich habe dieses Modell schon in verschiedenen Farben verstrickt und bin sehr zufrieden. Ein Dankeschön für die vielen Gratismodelle.
07.01.2021 - 20:31
Pia skrifaði:
Jag hade uppskattat en video till hur man maskar av utan montering - det verkar fiffigt men jag får det inte att bli snyggt!
29.12.2020 - 08:26DROPS Design svaraði:
Hej Pia, vi skriver det på ønskelisten over videoer :)
07.01.2021 - 13:43
Jeanette Kvinlaug skrifaði:
Hva er avfelling med eller uten montering? Hva er forskjellen i praksis?
14.11.2019 - 14:03DROPS Design svaraði:
Hei Jeanette. Avfelling uten montering feller du av samtidig som du "strikker fast" kanten, men Avfelling med montering feller du av og deretter syr du fast kanten (mer vanlig for mange). God Fornøyelse!
18.11.2019 - 14:03
Geline#gelinewristwarmers |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaðar handstúkur með öldumynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 190-33 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 42 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 9. og 10. hver lykkja og 10. og 11. hver lykkja slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HANDSTÚKA: Fitjið upp 42-48 lykkjur á sokkaprjóna 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið A.1 (= 14-16 lykkjur – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) 3 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA (jafnt yfir) = 38-42 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-14 cm. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan fyrstu 6 umferðir í mynsturteikningu A.1. Að neðan er útskýrt með tveimur mismunandi aðferðum hvernig fella á af. Önnur er með frágangi og hin án frágangs. Veldu þá affellingu sem passar best fyrir þig: AFFELLING ÁN FRÁGANGS: Brjótið uppá gataumferðina (þ.e.a.s. 4. umferð í A.1) þannig að rangan liggi að röngu og fellið af þannig: Setjið fyrstu lykkjuna frá fyrstu umferð í A.1 á vinstri prjón, prjónið þessa lykkju og næstu lykkju á vinstri prjón slétt saman og fellið þær af. Setjið aðra lykkju frá fyrstu umferð í A.1 á vinstri prjón, prjónið þessa lykkju og næstu lykkju á vinstri prjóni slétt saman og fellið þær af. Haldið svona áfram út með því að prjóna eina lykkju frá fyrstu umferð í A.1 saman við næstu lykkju á vinstri prjóni slétt saman og fellið af. ATH: Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. AFFELLING MEÐ FRÁGANGI: Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Brjótið uppá gataumferð (þ.e.a.s. 4. umferð í A.1) á bakhlið á handstúku þannig að rangan liggi að röngu. Saumið eina og eina lykkju frá affellingarkanti að einni og einni lykkju í fyrstu umferð í A.1. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gelinewristwarmers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.