Pia Olsen skrifaði:
Hej. Jeg kan kun se diagram forklaringen, men ikke hverken diagrammet eller tegnene, der passer til forklaringerne, og så er det jo svært at hækle fåret
04.06.2023 - 16:29DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Sjekk om nettleseren din har lastet ned alt. Det skal være 7 diagram + 1 tegning til denne oppskriften. Alt er OK hos oss. Det er også laget 2 videoer som viser hvordan disse er heklet, scroll nederst på siden. Mvh DROPS Design
05.06.2023 - 08:01
REINE MARIE skrifaði:
Je vais essayer de passer le fil de coton dans le point mousse des pattes ,je pense que ça devrait marcher voilà je vous dirai si j'ai réussi .
21.04.2023 - 12:01
REINE MARIE skrifaði:
Bonjour ,merci de votre réponse ça c'est ce que je fais mais comme les pattes n 'ont pas beaucoup d'épaisseur alors cette astuce est pas la meilleure . Je vais essayer autre chose pour le moment je vois pas trop comment faire ,en tout cas je vous remercie de votre réponse .Bonne journée .
21.04.2023 - 11:47
REINE MARIE skrifaði:
Bonsoir , je fais les pattes de ce mignon petit mouton mais comment arrêter les fils car en les montant au rang (3 ) alors ça ne fait pas joli et tout part car j'ai fais un noeud pour arrêter les fils . Merci de votre réponse .
20.04.2023 - 21:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Reine Marie, dans cette vidéo, nous montrons comment rentrer des fils de coton dans un ouvrage au crochet, ceci devrait pouvoir vous aider. Votre magasin a fort probablement d'autres astuces qu'il partagera volontiers avec vous, même par mail ou téléphone. Bon crochet!
21.04.2023 - 08:05
Jeanne Kalcevic skrifaði:
So very cute and easy to make thank-you
13.01.2023 - 19:19
Ilona Hessner skrifaði:
Mit Drops Andes habe ich wunderschöne Schals und Stirnbänder gestrickt. Da ich Reste hatte, kam ich auf die Idee, den Wollstrang zu teilen. Die Farben passen zu den Rocking Sheeps - für zwei dürfte es auf jeden Fall reichen. Danke Lanade - die Anleitungen sind einfach SPITZE!
07.11.2018 - 23:28
Ilona Dorn skrifaði:
Guten Tag, meine Frage bezieht sich nicht auf das Schaf. Ich wollte nur fragen, ob der Osterkalender nicht weiter geht. Ich habe jetzt immer wieder probiert, aber ich sehe nur die ersten vier Tage. Freundliche Grüße, Ilona
19.03.2018 - 20:05DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Dorn, es sind ja nur 4 Anleitung in dem Osterkalender, in dem Osterworkshop finden Sie aber viel mehr Modellen. Viel Spaß beim stricken!
20.03.2018 - 08:47
Monika Opočenská skrifaði:
Dobrý den, všimla jsem si, že se vloudila malá chybička a část textu (popisy symbolů) je v angličtině. Můžete to opravit, moc prosím? Určitě chci tu roztomilou ovečku vyrobit :-) Děkuji Monika
15.03.2018 - 11:08DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Moniko, díky za upozornění - opraveno! Ať se vám hezky háčkuje! Hana
16.03.2018 - 06:46
Rocking Sheep#dropsrockingsheep |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar kindur úr DROPS Paris. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1424 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Svæði merkt með gráum lit hefur þegar verið heklað, það sýnir bara hvernig næsta umferð er hekluð í lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KINDUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er höfuðið heklað með eyru og topp, fætur eru heklaðir hvor fyrir sig og síðan eru öll stykkin hekluð saman. Dindill er heklaður og haldið er áfram á bakhlið á búk. Að lokum er framhliðin og bakhliðin hekluð saman með ullarreifis kanti í kringum kindina. HÖFUÐ MEÐ EYRU OG TOPP (A.1): Stykkið er heklað í hring frá miðju á höfði og út. Höfuð og eyru eru heklað með litnumdökk grár og toppurinn er heklaður með litnum natur. Byrjið með heklunál 4 með litnum dökk grár. Heklið A.1, þegar þráðurinn er klipptur frá er skipt yfir í litninn natur þegar byrjað er á toppnum. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið, klippið frá og festið enda. Saumið augu og nef um 3. umferðina þannig: Saumið 2 franska hnúta fyrir augu – sjá mynsturteikningu A.8 og saumið 2 spor fyrir munn með litnum natur – sjá mynd. Geymið stykkið. FÓTUR (A.2): Heklið 1 fót eftir mynsturteikningu A.2 með litnum dökk grár. Klippið frá og festið enda. Heklið annan fót til viðbótar á sama hátt og geymið stykkið, stykkin eru hekluð saman við afganginn síðar. FÆTUR HEKLAÐIR SAMAN (A.3): Heklið nú umferð með litnum dökk grár á bakhlið á höfði jafnframt eru fæturnir festir í þessari umferð þannig: Heklið A.3 í aftari lykkjubogana á 3. umferð af A.1 með litnum dökk grár – lesið MYNSTUR, jafnframt er hvor fótur festur jafnóðum – sjá svartan ferning í A.3 fyrir staðsetningu. FRAMHLIÐ Á BÚK (A.4): Heklið A.4 með litnum natur um síðustu umferð í A.3, klippið síðan frá og festið enda. Geymið stykkið. BAKHLIÐ Á BÚK MEÐ DINDIL (A.5/A.6): Heklið fyrst dindil, síðan er búkurinn heklaður áfram í kringum dindil með litnum natur þannig: Byrjið með heklunál 4. Heklið A.5 (= dindill), heklið síðan A.6 í og í kringum fyrstu lykkju á dindli, með dindil í miðju. Haldið áfram þar til A.6 er lokið. Klippið frá og festið enda. ULLARREIFI Í KRINGUM KIND (A.7): Heklið nú framhlið og bakhlið saman með litnum natur þannig: Leggið framhlið og bakhlið saman – ranga á móti röngu. Ef óskað er eftir að setja smá fyllingu er það gert með vatti núna. Heklið síðan frá framhlið með byrjun frá loftlykkju mitt ofan á toppi á framhlið/bakhlið á búk þannig: Heklið A.7 í gegnum bæði lögin – umferðin byrjar við demants tákn. ATH: Heklið frá framhlið á fæti, fætur eiga að hanga út þar sem merkt er með svörtum ferning í mynsturteikningu. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsrockingsheep eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1424
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.