Ricarda Klein skrifaði:
Hallo und guten Tag ich habe eine Frage zum Diagramm. Wie sind die eingerückten 2 Zeilen in oberen Viertel zu verstehen ?
01.06.2018 - 16:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Klein, am Anfang der Reihe, stricken Sie die erste Masche aber diese Masche wird dann mit der letzten Maschen im letzten Rapport gestrickt. Am ende jedes Rapport, wird die letzte Maschen zusammen mit der ersten Maschen vom nächsten Rapport gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
01.06.2018 - 16:54
Kari skrifaði:
Jeg har kommet til rad 35 i diagrammet A1a og jeg ser at alt forflytter seg med en maske, men hva gjør jeg med den første masken? Jeg kan ikke strikke kun 2 m rett for da forflytter motivet seg. Skal jeg strikke 3 masker eller hvordan gjør jeg det for å få det til å stemme ?
18.05.2018 - 10:31DROPS Design svaraði:
Hei Kari. Hvis du ser på den siste masken i A.1a på samme omgang ser du at det er en felling som strekker seg 1 maske inn i neste rapport av A.1a. Det er denne fellingen som ser ut som en mangelende maske på starten av rapporten – men første maske blir altså strikket som en del av fellingen på forrige rapport. Strikk den alle første masken på omgangern rett, fortsett diagrammet som vanlig (2 rett, kast, felling), og når du kommer til slutten av omgangen vil omgangens første maske inngå i fellingen til den siste rapporten av A.1a. God fornøyelse.
25.05.2018 - 10:48
Aurelie skrifaði:
Bonjour, je crois que je ne comprends pas bien le début du diagramme. Puisque le pull se tricote du haut en bas, dois je commencer le diagramme ( 3ème rang maille envers) ou par le bas( 3ème rang maille glissée) ? Lorsque je glisse 1 maille à l’endroit tricote la suivante et passe par dessus, je perds une maille à chaque fois? J’es Que mes questions sont assez claires. Cordialement. Merci pour ces beaux modèles.
18.03.2018 - 17:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Aurélie, les diagrammes se lisent toujours en commençant en bas à droite et de droite à gauche tous les tours. Suivez bien les symboles du diagramme tels qu'ils sont décrits, sans rien modifier. Bon tricot!
19.03.2018 - 10:56
Taormina Sweater#taorminasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri, hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-29 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu á berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 7,25. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca til skiptis 7. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt inn í mynstur svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 116-120-126-132-139-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Umferðin byrjar við miðju að aftan. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 16-24-30-36-41-36 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1= 132-144-156-168-180-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo að það myndist ekki gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1a (= 12 lykkjur hringinn yfir allar lykkjur (= 11-12-13-14-15-15 sinnum á breidd) Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í hverri umferð merktri með útauknings ör í mynsturteikningu A.1 þannig: Í hvert skipti sem aukið er út um 12 lykkjur er A.1 prjónað alls 1 sinni oftar á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 24 lykkjur er A.1 prjónað alls 2 sinnum oftar á breiddina. Í hvert skipti sem aukið er út um 36 lykkjur er A.1 prjónað alls 3 sinnum oftar á breiddina. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 156-168-180-192-204-216 lykkjur. ÚTAUKNING 2: Aukið út um 24-24-24-24-24-36 lykkjur = 180-192-204-216-228-252 lykkjur. ÚTAUKNING 3: Aukið út um 24 lykkjur = 204-216-228-240-252-276 lykkjur. ÚTAUKNING 4: Aukið út um = 228-240-252-264-276-300 lykkjur. ÚTAUKNING 5: Aukið út um 24 lykkjur = 252-264-276-288-300-324 lykkjur. ÚTAUKNING 6: Aukið út um 24 lykkjur = 276-288-300-312-324-348 lykkjur. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 14 cm frá kanti í hálsmáli. Nú er prjónað A.1b yfir A.1a og útaukningarnar halda áfram þannig: ÚTAUKNING 7: Aukið út um 12-24-24-24-24-24 lykkjur = 288-312-324-336-348-372 lykkjur. ÚTAUKNING 8: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 300-324-348-360-372-396 lykkjur. ÚTAUKNING 9: Aukið út um 12-12-24-24-24-24 lykkjur = 312-336-372-384-396-420 lykkjur. ÚTAUKNING 10: Aukið út um 12-12-12-12-24-24 lykkjur = 324-348-384-396-420-444 lykkjur. Útaukning á nú að vera lokið í stærð S, M og L, en heldur áfram í stærð XL, XXL og XXXL svo þannig: ÚTAUKNING 11: Aukið út um 12-24-24 lykkjur = 408-444-468 lykkjur. ÚTAUKNING 12: Aukið út um 12-12-24 lykkjur = 420-456-492 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 324-348-384-420-456-492 lykkjur (A.1b er nú endurtekið 27-29-32-35-38-41 sinnum á breidd). Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: (Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið). Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 88-98-106-120-132-146 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 74-76-86-90-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 44-49-53-60-66-73 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-216-232-260-284-312 lykkjur. Prjónið mynstur, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermum eru prjónaðar slétt þegar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Prjónið síðan sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 276-300-324-348-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 35-35-36-36-36-36 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá kanti í hálsi. Fellið af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 74-76-86-90-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og takið upp 1 lykkju í hverja af 10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-86-96-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið síðan A.1b yfir lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri, lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar brugðið þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið og sléttar þegar lykkjur eru prjónaðar sléttar. Þegar A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist ermin ca 7-5-4-5-3-1 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 14-15-19-20-22-23 sinnum = 56-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 33-32-31-29-28-26 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru allar lykkjur felldar af (passið uppá að fella nægilega laust af, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum). Ermin mælist ca 36-35-34-32-31-29 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #taorminasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.