DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Flora yarn
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 186-11

#butterflyqueenjacket

DROPS Design: Mynstur fl-033
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-400 g litur 20, ferskja

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um A.4):
Fyrsta fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju.
Fyrsti þríbrugðni stuðull í byrjun á umferð er skipt út fyrir 5 loftlykkjur.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkjubogi, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga + 1 loftlykkjuboga (= 1 mynstureining færri), haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir er 1 loftlykkjubogi + 1 fastalykkja frá fyrri umferð, hoppið yfir þessar lykkjur og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu loftlykkju í byrjun á fyrri umferð (= 1 mynstureining færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju aftan á baki og út eins og ferningur, síðan er heklað áfram fram og til baka á framstykki. Ermar eru heklaðar fram og til baka út frá fram- og bakstykki, síðan er saumað saman undir ermum.

PEYSA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Flora og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1b alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.1a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1b. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1a og A.1b er lokið er klippt frá og næsta umferð byrjar umloftlykkjuboga á milli síðustu stuðlahópa sem voru heklaðir og þráðurinn er festur með 1 keðjulykkju í þennan loftlykkjuboga.
Heklið nú áfram hringinn eftir mynsturteikningu A.2 þannig: * Heklið A.2b, endurtakið A.2c alls 6 sinnum á breidd, A.2d *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.2a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2b/c/d. Þegar öll mynsturteikning A.2a og A.2b hefur verið hekluð til loka mælist ferningurinn ca 36 x 36 cm. Nú eru 4 horn loftlykkjubogar (1 stuðull + 6 loftlykkjur + 1 stuðull) og 14 loftlykkjubogar meðfram hvorri hlið á ferning. LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!

Heklið nú þannig: * Heklið A.3b um hornboga, endurtakið A.3c þar til eftir er 1 loftlykkjubogi á undan horni, heklið A.3d um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 4 sinnum í umferð – mynsturteikning A.3a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.3b/c/d.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm x 36-38-40-42-44-46 cm er heklaður handvegur þannig: Heklið A.3 eins og áður fram að fyrsta horni, heklið um loftlykkjuboga í horni eins og áður. Nú eru heklaðar loftlykkjur fram að miðju á næstu hlið (þ.e.a.s. mitt á milli fyrsta og annars horns) þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/fastalykkju sem hoppað er yfir. Síðan er mynstur heklað eins og áður fram að miðju á milli 3. og 4. horns. Nú eru heklaðar loftlykkjur fram að 4. horni þannig: Heklið 1 loftlykkju fyrir hverja loftlykkju/fastalykkju sem hoppað var yfir, heklið um loftlykkjuboga í horni og síðan út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er heklað A.3 eins og áður aftur yfir allar lykkjur og síðan út umferðina eins og áður (þ.e.a.s. að mynstrið passi yfir handveg þannig að umferðin verði rétt).
Haldið áfram með A.3 hringinn (endurtakið 9 umferð á hæðina) þar til ferningur mælist 68-70-72-74-76-78 cm x 68-70-72-74-76-78 cm (þ.e.a.s. ca 16 cm frá handveg í öllum stærðum) – passið uppá að endað sé eftir umferð með stuðlahópum. Klippið frá og setjið 1 prjónamerki í stykkið (á milli fyrsta og annars horns).

FRAMSTYKKI:
Heklað er fram og til baka á milli fyrsta og annars horns. ATH! Framstykkin eru hekluð án útaukningar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.4a um hornið, endurtakið A.4b þar til eftir er 1 loftlykkjubogi á undan horni, heklið A.4c um þennan loftlykkjuboga og um hornið. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu og endurtakið A.4 á hæðina þar til umferð með stuðlahópum hefur verið hekluð alls 2 sinnum á hæðina, síðan eru einungis endurteknar umferðir með loftlykkjubogum þar til stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm frá prjónamerki, heklið síðan umferðir með stuðlahópum 1 sinni í öllum stærðum. Stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins í hinni hlið á stykki (þ.e.a.s. heklið fram og til baka á milli þriðja og fjórða horns.

ERMI:
Ermin er hekluð beint út frá handveg á fram- og bakstykki. Heklað er fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman í lokin. Byrjið mitt undir ermi og heklið þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.4a um fyrsta loftlykkjubogann, endurtakið A.4b alls 15-16-17-18-19-20 sinnum á breidd (stillið af að það verði jöfn skipting á A.4b meðfram handveg, þ.e.a.s. það verður annað hvort að hekla 2 loftlykkjuboga um sama loftlykkjuboga eða hoppa yfir 1 loftlykkjuboga), heklið A.4c um síðustu 2 loftlykkjubogana.
Haldið áfram með A.4 fram og til baka – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm (stillið af að næsta umferð sé hekluð með loftlykkjum/fastalykkjum) fækkið um 1 mynstureiningu á hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-8-8-6-6-6 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 12-13-14-15-16-17 loftlykkjubogar með 6 loftlykkjum eftir síðustu úrtöku. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 28 cm í öllum stærðum – endið eftir eina umferð með loftlykkjubogum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins í hinni hliðinni á stykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman sauma undir ermum, saumið í ystu lykkju og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.06.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1b, A.2c er endurtekið 6 sinnum (áður 7 sinnum). Það eru 14 loftlykkjubogar meðfram hvorri hlið á ferning (áður 15)
Yfirfarið á vefsvæði: 10.02.2020
Mynsturútskýring hefur verið endurrituð

Mynstur

fastalykkja í lykkju = fastalykkja í lykkju
fastalykkja um loftlykkjuboga = fastalykkja um loftlykkjuboga
3 loftlykkjur = 3 loftlykkjur
4 loftlykkjur = 4 loftlykkjur
6 loftlykkjur = 6 loftlykkjur
5 loftlykkjur = 5 loftlykkjur
8 loftlykkjur = 8 loftlykkjur
14 loftlykkjur = 14 loftlykkjur
8 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í tvíbrugðinn stuðul, 18 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í tvíbrugðinn stuðul, 8 loftlykkjur = 8 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í tvíbrugðinn stuðul, 18 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í tvíbrugðinn stuðul, 8 loftlykkjur
stuðull um loftlykkjuboga = stuðull um loftlykkjuboga
STUÐLAHÓPUR: Heklið um loftlykkjuboga þannig: 3 stuðlar, 4 loftlykkjur, 3 stuðlar = STUÐLAHÓPUR: Heklið um loftlykkjuboga þannig: 3 stuðlar, 4 loftlykkjur, 3 stuðlar
2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla um loftlykkjuhring, en bíðið með að bregða þræðinum uppá heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni = 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla um loftlykkjuhring, en bíðið með að bregða þræðinum uppá heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir það er hekluð ein keðjulykkja fram að fyrsta loftlykkjuboga = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir það er hekluð ein keðjulykkja fram að fyrsta loftlykkjuboga
umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir það eru heklaðar keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir það eru heklaðar keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga
umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. Næsta umferð byrjar um loftlykkjuboga á milli síðasta stuðlahóp sem var heklaður - festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkjuboga = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda. Næsta umferð byrjar um loftlykkjuboga á milli síðasta stuðlahóp sem var heklaður - festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkjuboga
4 loftlykkjur, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju - sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér = 4 loftlykkjur, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju - sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
7 loftlykkjur = 7 loftlykkjur
14 loftlykkjur = 14 loftlykkjur
2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um 18-loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur = 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um 18-loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur
8 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í fyrstu loftlykkju = 8 loftlykkjur, 1 hálfur stuðull í fyrstu loftlykkju
tvíbrugðinn stuðull í fastalykkju = tvíbrugðinn stuðull í fastalykkju
þríbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga = þríbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjaðu í næstu umferð! = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjaðu í næstu umferð!
keðjulykkja í loftlykkjuboga sem örin vísar að = keðjulykkja í loftlykkjuboga sem örin vísar að
sýnir hvernig umferðin heldur áfram = sýnir hvernig umferðin heldur áfram
1 loftlykkja = 1 loftlykkja
Diagram for DROPS 186-11
Diagram for DROPS 186-11
Diagram for DROPS 186-11
Diagram for DROPS 186-11
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #butterflyqueenjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Connie Bach skrifaði:

Nederst i opskriften ? Små videoer der er urelevante i denne opskrift ! Jeg finder intet der fortæller om hvordan man skal gøre Intet på YouTube feks. ?

11.04.2023 - 15:46

DROPS Design svaraði:

Hej Connie, < tegnet betyder 3 luftmasker uanset hvordan det vender. Vi skriver en video på ønskelisten og håber at vi kan få den lagt ud så hurtigt som muligt :)

13.04.2023 - 12:00

country flag Connie Bach skrifaði:

Mega svær at følge den her opskrift ! Findes der dog ikke en video et sted, hvor man lige kan få lidt hjælp ? Diagrammerne er jo totalt uforståelige og runderne virker forkerte !

11.04.2023 - 13:03

DROPS Design svaraði:

Hej Connie, jo vi har en video, du finder den nederst i opskriften, her kan du helt sikkert se hvordan det skal se ud :)

11.04.2023 - 15:33

country flag Irene skrifaði:

Just to let you know, I can confirm that I made a mistake when working the pattern and now understand where I have gone wrong. There is no need for you to respond but I thank you for all the lovely patterns produced. Many thanks

12.02.2023 - 18:33

country flag Irene skrifaði:

Hello, I have completed the butterfly up to the end of diagram 2 A2b/c/d, but my work is not lying flat when I lay it on a flat surface, it is forming a dish shape. /will this correct itself as I proceed or have I done something wrong please.

12.02.2023 - 17:33

DROPS Design svaraði:

Dear Irene, if the center is higher or risen compared to the rest of the garment when laying flat, then there is an issue with gauge; the center was worked more tightly than the rest of the garment. You could try to correct this by blocking the garment (wet it slightly, and let it dry and block it). Happy crocheting!

13.02.2023 - 00:27

country flag Irene skrifaði:

Hello, I have completed the butterfly up to the end of diagram 2 A2b/c/d, but my work is not lying flat when I lay it on a flat surface, it is forming a dish shape. /will this correct itself as I proceed or have I done something wrong please.

12.02.2023 - 17:31

DROPS Design svaraði:

Dear Irene, if the center is higher or risen compared to the rest of the garment when laying flat, then there is an issue with gauge; the center was worked more tightly than the rest of the garment. You could try to correct this by blocking the garment (wet it slightly, and let it dry and block it). Happy crocheting!

13.02.2023 - 00:27

country flag Alice Hasseriis skrifaði:

Da jeg desværre ikke kan følge diagrammet 1b til Butterfly Queen længere end til omgangen der har 17 luftmasker i de 4 hjørner. Hvor fortsætter jeg der fra?? Og hvordan?. Vil være meget glad for en præcis tegning af forløbet af omgangene. Vores datter vil blive meget glad, hvis det lykkes mig at fuldføre opgaven! Mvh Alice

04.12.2022 - 20:27

DROPS Design svaraði:

Hei Alice. Litt usikker på hva du mener med 17 luftmasker da diagrammet A.1b slutter når det er 8 luftmaskebuer mellom hvert hjørne. Design avd har dessverre ikke mulighet til å lage diagrammer med beskrivelse av hver enklet maske som hekles. Men skriv en mer nøyaktig beskrivelse hvor du er i oppskriften / i diagrammet og hvilken str. hekler du etter, så skal vi hjepe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design

05.12.2022 - 14:01

country flag Martine skrifaði:

Bonjour, Je désire faire le gilet 186-11 mais j'ai un problème sur le diagramme. Que veulent dire les parenthèses dans la A1b ? Il y en a 2 petites et 6 grandes et je ne les vois pas dans le lexique. Je vous remercie par avance. Cordialement, Martine

03.12.2022 - 15:55

DROPS Design svaraði:

Bonjour Martine, elles se font toutes de la même façon, quelle que soit leur taille, autrement dit, 1 accolade correspond à 5 mailles en l'air (= 6ème symbole) et la parenthèse (5ème symbole) correspond à 6 mailles en l'air. Bon crochet!

06.12.2022 - 08:49

country flag Joyce skrifaði:

I've tried and tried and cannot make heads or tails of this. Are there written directions anywhere?

03.06.2022 - 23:18

DROPS Design svaraði:

Dear Joyce, our instructions are only available as published, there are no other versions. This version is mixed, with both charts and written instructions. If the chart is giving you trouble, you can try checking out the following lesson: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 Happy crocheting!

04.06.2022 - 18:15

country flag Theresa skrifaði:

Thank you for the answer. When do you begin to work in the treble groups on A.1b? Once you have completed all of the right half of the diagram?

24.05.2022 - 00:47

DROPS Design svaraði:

Dear Theresa, the first treble groups will be worked in A.1b on the 9th row. Happy crocheting!

24.05.2022 - 08:08

country flag Theresa skrifaði:

I can't tell where the rows are after row 6 of A.1b. On row 7, are you meant to crochet 7 chains, then 8,8,8 etc., until you have a string of 64 chains not attached to anything? Where do the rows continue after that? Any help appreciated. Very confused.

22.05.2022 - 01:36

DROPS Design svaraði:

Dear Theresa, after you have worked the 7 chains in A.1b on 7th row, work next repeat as 1st one and repat all the round. On 8th row, each repeat ends with 14 chains, then on 9th and 10th row you will work the dc-groups, ending each repeat with 5 chains, then ending with 8 chains, etc. Happy crocheting!

23.05.2022 - 08:17