Ghazaleh skrifaði:
Hi. Could you please help me that how I can change the yoke. It is wide for me and I want a narrower neck line. I have this problem with your some other patterns too. Thank you so much.
13.10.2018 - 14:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ghazaleh, we unfortunatelay cannot adjust every pattern to every single request. Please contact the store where you bought the yarn for any individual assistance. Happy knitting!
15.10.2018 - 08:41
Helle Jensen skrifaði:
Mangler virkelig gule og brændte farver ,orange, i begge kvaliteter
19.05.2018 - 01:03
Gitte skrifaði:
Er der planer om at der kommer kid Silk i gule,sennep, karry og orange farver? Der er slet nogen af de farver i sortimentet Pft for svar Hilsen Gitte
27.02.2018 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, Tak for dine ønsker, dem skal vi lade gå videre, så krydser vi fingre for at vi kan få nogle nye fine farver hjem :)
06.03.2018 - 14:38
Billaudel Nathalie skrifaði:
Ce gilet figure déjà sur ma liste de projets !
27.12.2017 - 10:08
Chrissie skrifaði:
So eine schöne, leichte Jacke fehlt mir noch
20.12.2017 - 22:57
Roussy skrifaði:
Modèle très pratique a avoir dans sa garde robe
15.12.2017 - 22:49
Pavla Michaličková skrifaði:
V jednoduchosti je krása
15.12.2017 - 06:55
Sailor's Luck Cardigan#sailorsluckcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu og röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk.
DROPS 191-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. RENDUR: 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði gráblár Kid-Silk. 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði natur Kid-Silk. 11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Nord og 1 þræði gráblár Kid-Silk. Prjónið síðan með 1 þræði natur Nord og 1 þræði natur Kid-Silk til loka. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 16 lykkjur í garðaprjóni í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 3 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í garðaprjóni í kraga mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4 næstu með ca 11-11-11-12-12-12 cm millibili (= í skiptingu á milli hverra randar + 1 hnappagat 11-11-11-12-12-12 cm á eftir síðustu rönd). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-95-98-101-107-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í litnum natur Nord og 1 þræði í lintum natur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – munið eftir HNAPPAGAT! Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 4-13-18-19-17-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 96-108-116-120-124-128 lykkjur. Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-8-10-11-12-13 lykkjur í sléttprjóni (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-16-20-22-24-26 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur, garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkju garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-8-10-11-12-13 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokin (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-30-32 sinnum = 264-292-316-336-364-384 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð á stykkið að mælast 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður (án þess að auka út fleiri lykkjur) þar til stykkið hefur náð réttu máli. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 41-45-47-51-55-59 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið þær 41-45-47-51-55-59 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-210-230-250 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan og yfir þær 10-9-7-8-8-9 lykkjur sem eftir eru á framstykki/bakstykki (frá þar sem mynstureining í garðaprjóni í laskalínu), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverri einingu með garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 1 lykkju í hverri einingu með garðaprjóni með því að prjóna 2 ystu lykkjur í hverri mynstureiningu með garðaprjóni í hliðum á peysu slétt saman (= 1 lykkja færri í hverri einingu með garðaprjóni í hvorri hlið, alls 4 lykkjur færri í umferð). ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjurnar í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni (þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkju og fækkað er um 4 lykkjur í annarri hverri umferð). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8-8-9-9-7-7 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 182-198-210-226-250-270 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca 6.-5.-3.-3.-2.-2. hverri umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur. Ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailorsluckcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.