DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sailor's Luck

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með laskalínu og röndum prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 191-2
DROPS Design: Mynstur z-816
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-75 g litur 08, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Alpaca 100, DROPS Kid-Silk 01, 04.
B) DROPS Alpaca 100, DROPS Kid-Silk 01, 18.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5.
Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 20. og 21. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

RENDUR:
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði gráblár Kid-Silk.
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk.
11-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði gráblár Kid-Silk.
Prjónið síðan með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk til loka.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 16 lykkjur í garðaprjóni í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Umferðin byrjar við miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 82-85-88-91-97-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði natur Alpaca og 1 þræði natur Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 4-13-18-19-17-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING- (jafnt yfir) = 86-98-106-110-114-118 lykkjur.
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónað er mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: 5-8-10-11-12-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10-16-20-22-24-26 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 lykkjur garðaprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-8-10-11-12-13 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).
Fyrsta útaukningin fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 21-23-25-27-30-32 sinnum = 254-282-306-326-354-374 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar fyrir laskalínu á stykkið að mælast 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður. Ef stykkið er styttra en þetta er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið hefur náð réttu máli (án þess að auka út fleiri lykkjur).

Næsta umferð er prjónuð þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-80-84-92-100-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-61-69-71-77-79 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 36-40-42-46-50-54 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 156-172-184-200-220-240 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið garðaprjón yfir 10-9-7-8-8-9 lykkjur sem eftir eru á framstykki/bakstykki (frá mynstureiningu í garðaprjóni í laskalínu), JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn í ytri hlið í hverri einingu í garðaprjóni við miðju að framan og miðju að aftan (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð) og fækkað er um 1 lykkju í hverri einingu í garðaprjóni með því að prjóna 2 ystu lykkjur í hverri mynstureiningu í garðaprjóni í hliðum á peysu slétt saman (= 1 lykkja færri í hverri einingu í garðaprjóni í hvorri hlið, alls 4 lykkjur færri í umferð).
ATH: Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjur í garðaprjóni koma smá saman að hverfa og það verða fleiri lykkjur í sléttprjóni (þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkju og fækkað er um 4 lykkjur í annarri hverri umferð. Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 8-8-9-9-7-7 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur.
Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 55-61-69-71-77-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 61-67-77-79-87-91 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað í garðaprjóni alveg eins og á fram- og bakstykki (lykkjufjöldinn er sá sami). Þegar allar lykkjur í garðaprjóni eru horfnar er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í ca 6.-5.-3.-3.-2.-2. hverri umferð alls 12-13-18-18-20-22 sinnum = 37-41-41-43-47-47 lykkjur.
Haldið síðan áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 37-35-34-32-30-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur. Ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2018
Leiðrétting á lykkjufjölda í síðasta hluta á berustykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.03.2018
ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðnir svo að ekki myndast göt. Prjónið síðan nýju lykkjurnar með sléttprjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2018
Leiðrétting á litanúmeri fyrir DROPS Alpaca natur, litur nr 100

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Isabel Pérez wrote:

No entiendo las disminuciones de la manga.

05.01.2024 - 16:57

DROPS Design answered:

Hola Isabel, primero disminuyes las secciones de punto musgo como en el cuerpo: disminuir 1 punto en cada sección de punto musgo trabajando juntos los 2 puntos más externos de la sección de punto musgo (= 1 punto disminuido en cada sección de punto musgo ). Se mantiene el número de puntos, pero se disminuye con 2pjd en el punto musgo y se aumenta con hebras en el punto jersey. Una vez se ha quitado la sección en punto musgo, disminuir bajo cada manga como dice en TIP PARA LAS DISMINUCIONES: 3 puntos antes del marcapuntos - 2pjd, 1 derecho, marcapuntos, 1 derecho y disminución simple. Repetir cada 2 a 6 vueltas (dependiendo de la talla) las veces que se indica.

07.01.2024 - 23:14

country flag Manou35 wrote:

Bonjour, Depuis des années je tricote KID SILK fil que j'aimais beaucoup car très belle qualité, or depuis plus de 6 mois je me suis aperçue, que la, qualité était TOTALEMENT différente et à mon grand regret, d'ailleurs. J'anime un club tricot au seine de ma ville et je m'aperçois des deceptions de nos tricoteuses, le fil est beaucoup plus fin et très peu poilé. Quand on le tricote en fil simple agrémenté d'un glitter celui-ci est totalement transparent . Je suis désolée

22.12.2023 - 14:51

country flag Else Møller Davidsen wrote:

B.davidsen August 11, 9:43 GMT Jeg har et spørgsmål angående opskriften : Sailor's Lick. Hvordan kommer jeg videre efter 1. udtagning til raglan er færdig? 10 Ret @ 16 ret @ 1 ret @ 16ret @ 20 ret @ 16 ret @ 1 ret @ 16 ret @ 10 ret -- 114 masker Hvor skal jeg tage ud derefter ? Hvor skal man strikke ret strikning ? Venlig hilsen Else Davidsen

16.08.2023 - 14:58

DROPS Design answered:

Hej Else, jo de 16 masker i hver raglanovergang strikkes i retstrik (hver 2.omg vrang) og de andre masker strikkes i glatstrik. Du tager ud ved at lave et omslag på hver side af alle 4 overgange = ialt 8 omslag :)

18.08.2023 - 10:34

country flag Melanie wrote:

Guten Tag, Ich habe 2 Fragen: 1. Stricke ich die unter den Ärmeln neu aufgenommenen Maschen kraus rechts? 2. Wenn ich in jeder 2. Runde zur hinteren und vorderen Mitte jeweils 1 Masche zunehme und zu den Seiten 2 Maschen zusammenstricke, dann sind das nur 2 Maschen pro Reihe. Sie schreiben aber etwas von 4 Maschen. Wo ist hier mein Fehler? Viele Grüße Melanie

14.02.2023 - 22:56

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die neu aufgenommenen Maschen stricken Sie glatt rechts, man wird dann die Krausrechts gestricken Maschen vom Raglan abnehmen: vor diesen Maschen (am Anfang Vorder-/Rückenteil) / nach diesen Maschen (am Ende Vorder-/Rückenteil) 1 Umschlag (= der wird glatt rechts gestrickt) und die 2 letzten krausrechte Maschen (unter die Ärmel) zusammenstricken, so wiederholt mal 4 Mal (2 Mal an jede Seite, damit die krausrechte Maschen unter die Ärmel abgenommen werden, und die Anzahl von glattrechts gestrickten Maschen wird dann durch die Umschläge zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

15.02.2023 - 10:02

country flag Tascha Andersen wrote:

Hej.. Har slået de 88 masker op i halsen som svarer til den str jeg skal bruge.. Har strikket de første omgange ret men min hals bliver rund og ikke bådformet som på billedet… Hvordan får jeg den bådformet ?? Svarer 1 omg ret og 1 omg vrang til en retpind ?? Hilsen Tascha

22.05.2022 - 00:14

DROPS Design answered:

Hei Tascha. Om du bare har strikket noen omganger til halsen er det vanskelig å se at den skal bli ovalformet og ikke rundt. Du må strikke lengre. Når det i oppskriften står: strikk 6 omgange retstrik, strikkes det 12 omganger (1 omgang ret og 1 omgang vrang x 6). mvh DROPS Design

23.05.2022 - 09:59

country flag Marina wrote:

Finns det någon möjlighet att få detta i ett mönster för barn 2-4 år?

14.03.2022 - 13:44

DROPS Design answered:

Hej Marina, de her er strikket på samme måde, vælg en af disse og vælg striber og farver ifølge dametröjan: Tröjor till barn - 17 maskor - raglan - uppifrån och ner

15.03.2022 - 14:53

country flag Gun Wessling wrote:

Jag vill köpa bara mönster, hur gör jag det?

11.11.2021 - 08:25

DROPS Design answered:

Hej Gun. Du kan skriva ut mönstret helt gratis direkt här på hemsidan. Har du inte möjlighet att skriva ut det själv kan du kontakta en av våra återförsäljare för att höra om de kan hjälpa dig (de kan ta en mindre kostnad för själva utskriften). Mvh DROPS Design

11.11.2021 - 11:42

country flag Kirsten wrote:

Hello, if I wanted to use 1 strand of Group C yarn instead of two strands of Group A yarn, how many grams would I need of each color (say I used two colors, one white and one blue like in the pictures)?

19.09.2021 - 19:41

DROPS Design answered:

Dear Kirsten, you can check the following lesson to see the amount you'd need when changing yarns: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19. Happy knitting!

19.09.2021 - 22:46

country flag Agathe C wrote:

Bonjour, Au moment où on isole les manches, on repartit les portions de raglan entre les manches et les demi dos et entre les manches et le devant ? Soit demi dos + 8m raglan, puis 8m raglan + manche+ 8 mailles raglan, puis 8 m raglan + devant + 8 m raglan puis 8m raglan + manche + 8m raglan, et enfin 8m raglan + demi dos ? Je ne sais pas si ma question et claire...merci pour votre aide !

15.09.2021 - 17:17

DROPS Design answered:

Bonjour Agathe, tout dépend de votre taille, mais effectivement, une partie des mailles point mousse des raglans va être affectée aux demi-dos/au devant et l'autre aux manches. Si votre nombre de mailles est bien exacte à la fin des augmentations du raglan, suivez bien le nombre de mailles lors de la répartition pour la division. Bon tricot!

16.09.2021 - 07:49

country flag Lina wrote:

Joli modèle, facile, mais il y a un souci avec la longueur des manches .. pour la taille XXL 29 cm, ce serai pas l'inverse 36 cm?? Je l'ai essayé cet apm, il me manque pratiquement 10 cm ... (36-34-34-32-30-29 cm copies des longueurs données dans le texte) Merci pour une correction .. Lina

31.05.2021 - 19:15

DROPS Design answered:

Bonjour Lina, les mesures sont justes ainsi, les manches sont plus courtes dans les grandes tailles car l'empiècement est plus long, mais naturellement, vous pouvez ajuster à la longueur souhaitée après avoir essayé le pull; tricotez jusqu'à ce qu'il reste 5 cm avant la longueur finale souhaitée et tricotez la bordure point mousse avec les aiguilles 4,5. Bon tricot!

01.06.2021 - 08:36