Agnethe Markussen skrifaði:
Hei, hvordan skal jeg klare å få det til å se ut som en vitt, sto veldig vanskelig i oppskriften, er på den omg hvor man skal hoppe over masker (til tommel’n). Og ikke hekle de siste 4 maskene, men hvordan skal jeg klare å få den overgangen som skiller tommel til hånda?
08.11.2021 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hei Agnethe. Når du har økt alle maskene til tommelen og har 27 eller 31 fastmasker (avhengig av hvilken str. du hekler), skal du klippe tråden. Hopp over de første 4 eller 5 fastmaskene på omgangen (merketråden sitter i 1. maske). start med ny tråd. Hekle 1 fastmaske i hver av de neste 20-22 fastmaskene = 3 eller 4 fastmasker tilbake på omgangen. Nå hekler du i den første masken du startet i, på denne omgangen, altså det er 7 eller 9 masker det ikke hekles over. mvh DROPS Design
15.11.2021 - 08:37
Tania skrifaði:
El patrón dice vuelta 1 punto medio, vuelta 2 punto bajo y vuelta 3 punto alto, y repetir las vueltas 1-4. pero el patrón sólo habla de 3 vueltas. me puedes explicar?
27.10.2020 - 18:55DROPS Design svaraði:
Hola Tania. Tienes razón. Ha sidp una errata al publicar el patrón. VUELTA 4: Trabajar 1 punto bajo en el bucle posterior de cada punto alto.
01.11.2020 - 13:03
Francesca skrifaði:
Grazie molto chiara mi ero persa in un bicchiere d'acqua ora mi sento più sicura...
06.01.2019 - 16:52
Francesca skrifaði:
Ho comprato la lana e vorrei iniziare il berretto ma non ho capito al primo giro cosa significa 12/12 mezze maglie? Poi dice 18/18 maglie basse al secondo giro? Potete darmi dei chiarimenti vi ringrazio
06.01.2019 - 16:39DROPS Design svaraði:
Buongiorno Francesca. I numeri fanno riferimento alle maglie da lavorare a seconda della taglia. Per la taglia S/M deve considerare il primo numero , per la M/L il secondo numero. Quindi se la sua taglia è la S/M, al primo giro lavora 12 mezze maglie alte e alla fine del secondo giro deve avere 18 maglie basse. Buon lavoro!
06.01.2019 - 16:49
Earl Grey#earlgreyset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Heklaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum úr DROPS Snow.
DROPS 182-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í aðra loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju sem var hekluð í byrjun á umferð. MYNSTUR: UMFERÐ 1: 1 hálfur stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju. UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum hálfa stuðli. UMFERÐ 3: 1 stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju. UMFERÐ 4: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. Endurtakið umferð 1-4. LITASKIPTI (á við um húfu): Til þess að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit er keðjulykkjan í lok umferðar hekluð áður en byrjað er með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í loftlykkjuna sem var hekluð í byrjun á umferð, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni. HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið inn heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn (= 2 lykkjur á heklunálinni) *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). HEKLLEIÐBEININGAR (á við um vettlinga): Þegar fastalykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann er auðvelt að herða á lykkjunum, vettlingurinn verður þá lítið teygjanlegur og of þröngur. Passið uppá að fastalykkjurnar verði nægilega lausar þegar heklað er. Þ.e.a.s. þegar þræðinum er brugðið á heklunálina þegar heklaðar eru fastalykkjur, verður að draga þráðinn alveg í gegnum lykkjuna (og aðeins meira). ÚTAUKNING (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 40 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 4. í þessu dæmi er auki út um 1 lykkju á eftir 4. hverja lykkju. Aukið er út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 20 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 5. Í þessu dæmi eru heklaðar 4. og 5. hver lykkja saman eins og útskýrt er að neðan. Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálninni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 7 með litnum ljós grár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 12-12 hálfa stuðla um hringinn. Heklið síðan í hverri umferð í aftari lykkjubogann. UMFERÐ 2: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta hálfa stuðul, 2 fastalykkjur í næsta hálfa stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18-18 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í fyrstu fastalykkju, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 27-27 stuðlar í umferð. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40-40 fastalykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir hringinn er heklað áfram með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 10-13 hálfa stuðla jafnt yfir í fyrstu umferð – lesið ÚTAUKNING = 50-53 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist ca 19-20 cm er skipt yfir í litinn milligrár – lesið LITASKIPTI. Heklið 4 umferðir með fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann). Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 23-24 cm ofan frá og niður. Gerið einn stóran dúsk ca 9 cm með báðum litum og festið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HÁLSSKJÓL: Heklið 56 loftlykkjur laust með heklunál 8 með litnum milligrár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umferð með 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju. Heklið MYNSTUR hringinn með byrjun frá 2. umferð í mynstri – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 6. umferð er fækkað um 4 fastalykkjur jafnt yfir í umferð með því að hekla 13. og 14. fastalykkju saman – lesið HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN = 52 fastalykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn þar til stykkið mælist ca 26 cm á hæð – endið eftir eina umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. Fyrst er heklað stroff með mynstri, síðan er afgangur af vettlingi heklaður með fastalykkjum í aftari lykkjubogann. VINSTRI VETTLINGUR STROFF: Heklið 21-23 aðeins lausar loftlykkjur með heklunál 6 með litnum ljós grár Snow og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umferð með 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju. Heklið MYNSTUR í hring með byrjun frá 2. umferð í mynstri – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 5 cm er stroffið klárt – endið eftir eina umferð með fastalykkjum. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! VETTLINGUR: Heklið í hring með 1 fastalykkju í hverja fastaalykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið í aftari lykkjubogann (þetta á síðan við allan vettlinginn). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar hekluð hefur verið 1 umferð með fastalykkjum á eftir prjónamerki er aukið út um 1 fastalykkju fyrir þumal hvoru megin við fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar – aukið er út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu fastalykkju. Aukið svona út hvoru megin við þessa fyrstu lykkju í annarri hverri umferð alls 3-4 sinnum = 27-31 fastalykkjur í umferð (7-9 af þessum lykkjum eru þumallykkjur). Klippið frá. Næsta umferð er hekluð þannig: Hoppið yfir fyrstu 4-5 fastalykkjur í umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 20-22 fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann) = 3-4 fastalykkjur eftir í umferð. Haldið nú áfram að næstu umferð án þess að hekla yfir 3-4 síðustu fastalykkjur í umferð. ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu lykkju í umferð og fyrstu lykkju í næstu umferð, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Heklið 1 fastalykkju í hverja af 20-22 fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogann) þar til stykkið mælist 18-20 cm frá prjónamerki. Fækkið nú lykkjum þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (í aftari lykkjubogann) og fækkið JAFNFRAMT um 4-5 fastalykkjur jafnt yfir - lesið LEIÐBEININGAR = 16-17 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og fækkið JAFNFRAMT um 4-5 fastalykkjur jafnt yfir = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman = 6 fastalykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið upp og niður í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: = 7-9 lykkjur. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (heklið í aftari lykkjubogann), að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur nákvæmlega í skiptingunni á milli þumals og vettlings = 9-11 fastalykkjur í umferð. Heklið 4-5 umferðir til og með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Í næstu umferð eru heklaðar 2 og 2 fastalykkjur saman þar til 1 fastalykkja er eftir í umferð, heklið síðustu fastalykkjuna = 5-6 fastalykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. SNÚRA: Klippið 2 þræði í litnum milligrár ca 120 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Gerið 2 litla dúskar ca 2-3 cm að þvermáli. Saumið 1 dúsk á annan endann á snúrunni. Þræðið snúruna upp og niður í á milli lykkja í skiptingunni á milli stroffs og vettlings (snúran á að byrja og enda á ytri hlið á vettling þannig að dúskarnir komi ekki inn í lófann). Saumið niður hinn dúskinn í hinn endann á snúrunni. HÆGRI VETTLINGUR: Heklið stroff og vettling alveg eins og vinstri vettlingur, en þegar auka á út fyrir þumal er aukið út hvoru megin við síðustu lykkju í lok umferðar (í stað hvoru megin við fyrstu lykkju í byrjun á umferð). Afgangur af vettling og þumal er heklað eins og vinstri vettlingur. Gerið snúru með dúskum alveg eins og á vinstri vettlingi. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlgreyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.