Mireille skrifaði:
Bonjour. Pour la partie DOS pouvez-vous m’expliquer comment monter une maille lisière à la fin des 2 rangs suivants ? Et aussi les 2 rangs suivants, ce sont les 2ème et 3ème rang ?
24.08.2024 - 21:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Mireille, procédez comme indiqué dans cette vidéo ou bien dans cette leçon à la fin des 2 rangs suivants, autrement dit à la fin d'un rang sur l'endroit puis à la fin du rang suivant sur l'envers. Bon tricot!
26.08.2024 - 07:55
Mireille skrifaði:
Bonjour, j’aimerai faire ce pull, j’aime beaucoup ce grand décolleté mais plusieurs personnes se sont retrouvés avec un col trop étroit. Cela a t-il été corrigé dans les instructions ?
09.05.2024 - 07:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mireille, la dernière correction faite date de mars 2024, et concerne les tailles M à XXXL - si vous avez imprimé les explications auparavant; n'hésitez pas à les imprimer à nouveau. Bon tricot!
10.05.2024 - 08:22
Laubeova Kristyna skrifaði:
This sweater is definitely not what’s on picture. V- neck is much higher !
19.11.2023 - 17:12
Karin Almström skrifaði:
Hej, fick svar att det stämmer med 125 g till Flamenco i Stl S men det är ju ORIMLIGT! skulle alltså 5 garnnystan räcka till en långärmad tröja? Ringde två slumpmässigt utvalda återförsäljare och frågade om åtgång till en långärmad V-ringad tröja i stl S och fick svaret av båda 8-9 nystan. Vad gäller?
10.11.2023 - 11:57
Karin Almström skrifaði:
Hej, stämmer verkligen den angivna garnåtgången 125 g för flamenco i storlek S?
06.11.2023 - 11:43DROPS Design svaraði:
Hej Karin, ja det stemmer :)
09.11.2023 - 15:05
Sophia skrifaði:
Picture shows nothing like garter stich. Your descriptions are becoming very lousy, I can\'t trust them anymore.
14.01.2023 - 23:30
Irene skrifaði:
Bij de rechterkant van het voorpand moet ik een afgekante steek midden voor op de linkernaald zetten. Hoe werkt dat? Ik kan er niets over vinden. Bij voorbaat dank voor jullie reactie!
27.06.2022 - 12:08DROPS Design svaraði:
Dag Irene,
Het is de bedoeling dat je de afgekante steek (dus de afgekante steek die gelijk naast de eerste steek van de eerste steek op de linker naald zit) op de linker naald zet en deze gelijk samen breit met de eerste steek.
12.07.2022 - 21:25
Gitte Meisner skrifaði:
Hej Jeg bøvler med ærmet på denne. Kan det passe at der skal slås 38 masker op til ærmer. Det passer jo ikke med rib 2 ret/2 vrang. Kan slet ikke få det til at passe…
08.01.2022 - 13:25DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, det har du ret i, det skal slåes 40 masker op i de 2 største størrelser og der skal kun tages 4 og 6 masker ud i de 2 størrelser - tak for info :)
13.01.2022 - 12:24
Barbara skrifaði:
It’s a nice sweater, however, the knitted piece looks completely different than the picture. It’s see through (the pictured sweater looks like it was knit with 2 strands), the neckline is a lot higher and the amount of yarn used is also more (I had to order 2 extra balls of yarn to finish it, which I found very annoying since I always have almost a whole ball left when I follow your patterns). Maybe this pattern should be checked and corrected if I’m not the only one who noticed these.
02.12.2021 - 12:42
Chiki skrifaði:
Hallo, klopt het dat het patroon met 1 draad gebreid wordt. Op de foto lijkt het dicht gebreid. Bij mij is het met naald 5,5 te doorzichtig ondanks dat ik strak brei. Hoe kan ik het breien dat je er niet doorheen kan kijken. Ik hoor het graag.\r\nGroet, Chiki
12.09.2021 - 01:41
Flamenco#flamencosweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð aðsniðin peysa með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 187-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 176 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,9. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): * Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið að næsta prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 4 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur færri í umferð). ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): * Prjónið að fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki, prjónið að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Fækkið fyrir hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-188-204-224-248-268 lykkjur á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 30-30-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: * Prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 33-39-45-53-63-71 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, prjónið 10 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinum. Fækkið nú um 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm = 130-142-154-170-190-206 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-23-23 cm aukið út 1 lykkju við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm = 146-158-170-186-206-222 lykkjur. Setjið 2 ný prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 73-79-85-93-103-111 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið við nýju prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 25-25-27-27-29-31 lykkjur, aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af miðju 15-15-17-17-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 30-33-35-39-43-46 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram yfir 30-33-35-39-43-46 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við hálsmál að aftan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – lesið ÚRTAKA-2 = 29-32-34-38-42-45 lykkjur á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af – lesið AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 73-79-85-93-103-111 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón eins og áður og fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu 2 umferða = 75-81-87-95-105-113 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-40-41-42 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 11 lykkjur í umferð, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 37-40-43-47-52-56 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið 1. lykkju yfir 2. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 36-39-42-46-51-55 lykkjur slétt. Setji 37-40-43-47-52-56 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 37-40-43-47-52-56 lykkjur sem eftir eru með 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6-6-7-7 sinnum og eftir það í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-3-4 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og í vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkju sem var felld af við miðju að framan á vinstri prjón og prjónið lykkjuna slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist "hak" neðst í v-hálsmálinu), prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 31-34-37-41-46-50 lykkjur í sléttprjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 37-40-43-47-52-56 lykkjur með 5 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið – þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8-8-9-9-10-11 sinnum = 29-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið síðan laust af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3-5-3-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 35-37-39-42-44-46 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 35-37-39-42-44-46 lykkjur (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju) = 70-74-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón, uppslátturinn er prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat. Þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3½-3 cm millibili alls 8-8-9-10-10-11 sinnum = 54-58-60-64-68-70 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 50-50-49-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flamencosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.