Xóchitl Cano Martínez skrifaði:
Me súper encantó, muchas gracias por compartir, saludos desde Veracruz México
13.10.2024 - 02:38
Emily Cull skrifaði:
Hello, I am attempting short rows for the first time with this hat pattern. Below the patern there are 2 videos for short row techniques- with & without a wrap- and I am not sure which to use here? Also, does it matter if I begin my short rows on a knit or a purl row?
04.01.2021 - 14:25DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cull, the short rows are worked in garter stitch, this means you will knit both from the right side and from the wrong side - you can use one of the both techniques, do not hesitate to try both on a sample to choose your favorite one. Happy knitting!
05.01.2021 - 10:41
Catherine Woodward skrifaði:
What a brilliant pattern. I have a small head and very fine silky hair. Most hats I’ve made tend to keep falling over my face. This one however, despite feeling quite loose, stays in place because of its shaping. It’s really quite ingenious.
25.01.2019 - 11:00
Heidrun#heidrunset |
|
![]() |
![]() |
Sett með: Prjónaðri húfu og hálsklút með stuttum umferðum og garðaprjóni úr DROPS Andes.
DROPS 182-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um húfu): Fækkið lykkjum á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, stuttar umferðir eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón áður en þær eru prjónaðar í hring, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Öll húfan er prjónuð í garðaprjóni, neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið upp 52-56 lykkjur á hringprjón 8 með Andes. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka þannig: Prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 7-8 lykkjur eru á undan prjónamerki við miðju að aftan. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 7-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki við miðju að aftan. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 9-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu þar til 9-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 11-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til 11-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka og snúið þegar eftir eru 2 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til 6-8 lykkjur eru eftir við miðju að framan. Þegar snúið hefur við í síðasta skipti er haldið áfram með sléttum lykkjum frá röngu að prjónamerki við miðju að aftan. Húfan mælist nú ca 4 cm við miðju að aftan og 11 cm við miðju að framan. Snúið stykkinu þannig að nú sé prjónað í hring frá réttu. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (herðið aðeins á þræði svo að uppslátturinn verði ekki of laus) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkjur brugðið, sleppið uppslættinum af prjóni *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið nú garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan (þar sem stykkið er styst) prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-0 lykkjur jafnt yfir (prjónið ca 16. og 17. hverja lykkju slétt saman í S/M) = 49-56 lykkjur. Setjið nú 7-8 prjónamerki í stykkið með 7-7 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Haldið áfram í sléttprjón og fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki í næstu umferð með sléttum lykkjum – LESIÐ ÚRTAKA (= 7-8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum í báðum stærðum = 14-16 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð með sléttum lykkjum eru allar lykkjur prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 = 7-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 22 lykkjur á prjón 9 með Andes. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan garðaprjón með stuttum umferðum þannig: Prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út umferðina. Snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka og snúið þegar eftir er 1 lykkja fleiri í hverri umferð frá réttu þar til ekki eru fleiri lykkjur til að prjóna yfir. Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Prjónið nú 1 umferð slétt frá röngu yfir fyrstu lykkjuna. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 2 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir báðar lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð frá röngu þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til hálsklúturinn mælist ca 157 cm. Prjónið nú stuttar umferðir þannig: Prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til eftir er 1 lykkja á prjóni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út umferðina. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá röngu út umferðina. Haldið áfram fram og til baka og snúið þegar eftir er 1 lykkja fleiri í hverri umferð frá réttu þar til ekki eru fleiri lykkjur til að prjóna yfir. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Nú er prjónuð 1 umferð slétt frá röngu yfir fyrstu lykkju. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu til baka. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 2 lykkjur slétt frá röngu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir báðar lykkjurnar. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð frá röngu þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Hálsklúturinn mælist ca 180 cm. DÚSKAR: Gerið 8 dúska ca 5 cm að þvermáli hvern. Festið 4 dúska í hvora skammhlið á hálsklútnum. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heidrunset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.