Beverley Hall skrifaði:
I cannot work out the pattern to divide for the front legs is there a way you can clear this up for me thank you
27.05.2025 - 03:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hall, from beginning of a new round, work the first 10-16-22 sts (see size) just as before and slip them on a thread/stitch holder (stomach piece, they will be worked afterwards), P the next 2 sts together and continue working just as before until 2 sts remain and purl the last 2 sts together. Now work these 64-94-130 sts back and forth in pattern as before for back piece, and slip them on a thread. Then work the stitches between front legs back on needle and cast on 1 st on each side then work as before. Just make sure that the cable rows will be worked from RS when dividing piece. Happy knitting!
27.05.2025 - 09:34
Rachel skrifaði:
The first two back measurements are given in centimeters, and then the last measurement is given in inches. The first two need to be converted to inches. Thank you for a lovely pattern!
06.03.2025 - 04:20DROPS Design svaraði:
Dear Rachel, thanks for noticing, pattern will be fixed asap. Happy knitting!
06.03.2025 - 11:04
Luisa Mercedes skrifaði:
Hermoso me pondre manos a la obra muy bello trabajo mis engreidasvquedaran sumamente abrigadas muchas gracias yo feliz de poder hacer mi mejor prenda
11.07.2024 - 03:09
Danielle skrifaði:
Hej! Jag skulle jättegärna vilja ha fler storlekar på era hundtröjor. Min Saluki är väldigt kall av sig i detta väder (-17 grader för tillfället) och inga tröjor i butiken passar henne då hon är smal och med lång rygg. Snälla, kan inte ni göra flera storlekar (väldigt gärna vinthund) för de är så svåra att hitta i butik. Med bästa hälsningar, Danielle
21.01.2024 - 18:03
Sandy McCause skrifaði:
Is there an English translation for this adorable sweater?
02.11.2023 - 19:49DROPS Design svaraði:
Sure Mrs McCause, just click on the scroll down menu below the pictures to edit language. Happy knitting!
03.11.2023 - 06:55
Stavri skrifaði:
Where is my language, Greak?
01.01.2023 - 12:56
Petra De Jong skrifaði:
11 cm vanaf de opzetrand…. Is dat dan inclusief het halsboord van het hondentruitje of vanaf het kabelpatroon? Met vr groet, Petra.
23.11.2022 - 17:17DROPS Design svaraði:
Dag Petra,
Dit is vanaf de halsboord, dus vanaf het opzetten.
23.11.2022 - 19:41
GRETA VANTWEMBEKE skrifaði:
Graag meer uitleg in het Nederlands voor de patronen.
19.02.2022 - 20:11
Schmitt Christa skrifaði:
Bitte deutsche Anleitung
22.10.2021 - 11:47
Ginni skrifaði:
Hei! Jeg har to spørsmål, når du strikker to sammen på vrang på hver side når du deler for forben, blir dette en maske i mønsteret eller er det utenom? Og fortsetter man mønsteret på samme måte selvom du nå har 18 masker mindre ? Eller må ta vekk en del av mønsteret?
05.01.2021 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hei Ginni. Om det ikke er forklart noe annet i oppskriften, inngår denne masken i mønstret. Du fortsetter mønstret slik at det stemmer overens med det du har strikket tidligere. God Fornøyelse!
13.01.2021 - 15:29
Barking Cables#barkingcablesdogsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með köðlum úr DROPS Karisma. Stærð XS - M.
DROPS 185-33 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,5. Í þessu dæmi þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálsmáli og niður að opi fyrir framfætur. Stykkið skiptist við framfætur og stykkin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring. Í lokin er prjónað fram og til baka niður að skotti. Kantur í kringum op fyrir framfætur er prjónaður í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-80-100 lykkjur á sokkaprjón 3 með Karisma. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-6 cm (= hálsmál sem er brotið uppá tvöfalt). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 (sokkaprjón í stærð XS). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-32-54 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 76-112-154 lykkjur. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu þannig: STÆRÐ XS: Prjónið A.2 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, A.2 (= 4 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, A.3 (= 14 lykkjur), A.2 (= 4 lykkjur), A.1 (= 24 lykkjur mitt ofan á baki), A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur) og 3 lykkjur brugðið. Haldið síðan áfram með þetta mynstur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af fyrir opi fyrir framfætur eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ S: Prjónið * A.2 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.2 (= 4 lykkjur), * A.3 (= 14 lykkjur), A.2 (= 4 lykkjur) * , prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.1 (= 24 lykkjur mitt ofan á baki), * A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið síðan áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm er fellt af fyrir opi fyrir framfætur eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ M: Prjónið * A.2 (= 4 lykkju), 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, A.2 (= 4 lykkjur), * A.3 (= 14 lykkjur), A.2 (= 4 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 3 sinum, A.1 (= 24 lykkjur mitt ofan á baki), * A.2 (= 4 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Haldið síðan áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm er fellt af fyrir opi fyrir framfætur eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 8-11-14 cm (frá uppfitjunarkanti) skiptist stykkið upp við fætur að framan, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 10-16-22 lykkjur og setjið lykkjur á þráð (= magastykki), prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið áfram yfir bak þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 64-94-130 lykkjur (= bakstykki). BAKSTYKKI: Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir þessar lykkjur í 6-8-10 cm (stykkið mælist alls 14-19-24 cm) – endið eftir að prjónuð hefur verið ein umferð frá röngu. Setjið 64-94-130 lykkjur á þræði. MAGASTYKKI. Setjið til baka 10-16-22 lykkjur frá magastykki á prjóninn. Fitjið upp 1 lykkju í hvorri hlið = 12-18-24 lykkjur. Prjónið síðan mynstur fram og til baka með 1 lykkju brugðið í hvorri hlið þar til prjónaðir hafa verið 6-8-10 cm (endið eftir að prjónuð hefur verið 1 umferð frá röngu). BAK- OG MAGASTYKKI: Setjið aftur allar lykkjur á sama hringprjón/sokkaprjón = 76-112-154 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring. Þegar stykkið mælist alls 20-27-32 cm fellið af miðju 12-20-28 lykkjur mitt undir maga og stykkið er síðan prjónað fram og til baka = 64-92-126 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4 sinnum, 1 lykkja 2-3-4 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 32-50-74 lykkjur eftir í umferð. Stykkið mælist ca 26-35-42 cm. FRÁGANGUR: Prjónið upp lykkjur í kringum affellingarkant á hringprjón 3 þannig að það verða alls ca 84-108-140 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2-3-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #barkingcablesdogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.