Andrea Stolpe skrifaði:
Also die anderen Anleitung lassen sich alle problemlos ausdrucken. Ich hab mehrere Drucker, und auf jedem druckt es nur die erste Seite. In der Druckvorschau zeigt es auch nur die erste Seite an :(
19.07.2018 - 11:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Stolpe, können Sie uns bitte sagen, welchen Browser/Betriebsystem Sie benutzen?
19.07.2018 - 14:40
Andrea Stolpe skrifaði:
Hallo, guten morgen. Ich würde mir die Anleitung gerne ausdrucken, aber es funktioniert nur die erste Seite. Mache ich da was falsch oder hat noch jemand das Problem? Liebe Grüße Andrea
19.07.2018 - 09:28DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, wir haben gerade diese Anleitung gedruckt und es hat funktionniert, beachten Sie die Einstellungen Ihrer Drucker, damit alle Seiten ausgedruckt werden. Viel Spaß beim stricken!
19.07.2018 - 09:38
Doreen skrifaði:
Hallo. Wenn ich mit der Jacke beginne und in Runden stricke, habe ich ja in der Mitte ein Loch, das ist aber nirgends zu sehen. Verschließe ich das am Ende?
22.10.2017 - 19:55DROPS Design svaraði:
Liebe Doreen, ja genau, am Ende verschließen Sie dieses Loch. Viel Spaß beim stricken!
23.10.2017 - 11:52
Don't Leaf Me Behind#dontleafmebehindjacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð ferningspeysa með gatamynstri úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-32 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, (prjónamerki), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/hringprjóna með byrjun frá miðju aftan á baki. Fellt er af fyrir handvegi, síðan heldur ferningurinn áfram út að fullri lengd. Síðan er prjnað áfram fram og til baka út í hvora hlið við miðju framan á peysu, en án útaukninga. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 8-8-8-8 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Cotton Merino. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum í umferð – lesið MYNSTUR að ofan. Skiptið yfir á hringprjón þegar aukið hefur verið nægilega út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í umferð. Setjið 4 prjónamerki án þess að prjóna þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið í byrjun umferðar, setjið annað prjónamerki eftir 32 lykkjur, setjið þriðja prjónamerkið eftir 32 lykkjur og setjið fjórða prjónamerkið eftir 32 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 60 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 240 lykkjur í umferð). Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið * A.2 (= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 56 lykkjurnar (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 88 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 352 lykkjur í umferð). Haldið svona áfram með mynstur – í hvert skipti sem mynsturteikning er endurtekin á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli A.2 og A.4 (= 8 fleiri mynstureiningar í umferð). Þegar ferningurinn mælist ca 36-38-40-42 x 36-38-40-42 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð án þess að slá uppá prjóninn) fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 38-42-44-46 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 38-42-44-46 lykkjur eru eftir á undan fjórða prjónamerkinu, fellið af næstu 38-42-44-46 lykkjur fyrir handveg, prjónið fram að fyrsta prjónamerki. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 38-42-44-46 lykkjur yfir handveg og lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Haldið áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað alls 3-4-4-4 sinnum á hæðina (nú er eftir 1-½-1-1 mynstureining á hæðina til loka á ferningnum). Prjónið nú fyrstu 22-10-22-22 umferðirnar eins og áður. Prjónið næstu umferð í mynstri, en hoppið yfir fyrstu 2 umferðir í A.2 og hoppið yfir síðasta uppsláttinn í A.4. Næsta umferð í mynstri er prjónuð þannig: ATH: Hoppið yfir 2 fyrstu rúðurnar í A.2 og hoppið yfir síðustu rúðuna í A.4 – Prjónið frá fyrsta og öðru prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= vinstra framstykki), prjónið að þriðja prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= neðri kantur), prjónið að fjórða prjónamerki og setjið 141-155-169-169 lykkjur á þráð (= hægra framstykki), prjónið að fyrsta prjónamerki = 141-155-169-169 lykkjur í umferð (= kantur í hálsi). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir þessar lykkjur. Fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan. Setjið 141-155-169-169 lykkjur af neðri kanti á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur, fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Setjið 141-155-169-169 lykkjur á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: Prjónið upp 3 lykkjur í hlið á garðaprjóni frá kanti í hálsi, prjónið A.5 (= 7 lykkjur) – lesið MYNSTUR að ofan, prjónið A:6 (= 14 lykkjur) alls 9-9-11-11 sinnum á breidd, prjónið A.7 (= 8 lykkjur) og prjónið upp 3 lykkjur í hlið á garðaprjóni frá neðri kanti = 147-161-175-175 lykkjur. Þær 3 lykkjur í hvorri hlið eru síðan prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.5/A.6/A.7 hefur verið prjónað 2-2-2-2 sinnum á hæðina, prjónið fyrstu 0-0-0-12 umferðir í mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Setjið 141-155-169-169 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið eins og vinstra framstykki, en í fyrstu umferð er byrjað með að prjóna upp lykkjur í hlið á garðaprjóni frá neðri kanti og endað er með að prjóna upp lykkjur í hlið á garðaprjóni frá kanti í hálsmáli. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 75-85-89-93 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Cotton Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, látið prjónamerkið fylgja áfram með = mitt undir ermi. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 30-35-37-39 lykkjur slétt, mynsturteikning A.8 (= 15 lykkjur), prjónið 30-35-37-39 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2½-2½ cm millibili alls 14-17-18-19 sinnum = 47-51-53-55 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-54-54 cm – stillið af eftir 12. eða 24. umferð í mynstri, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Lokið gati frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan, þræðið upp og niður í lykkjurnar, herðið að og festið vel. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dontleafmebehindjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.