DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 184-28
DROPS Design: Mynstur fl-016
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 g litur 03, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir kanta með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 7 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 7 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 7 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 7 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 5 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, A.4 (= 9 lykkjur), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum til enda á klauf, síðan er stykkið prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, þá er haldið áfram fram og til baka á hringprjón í stykkjum til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón til enda á klauf, síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 109-119-129-141-155-169 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm (endið eftir 1 umferð slétt frá röngu). Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 109-119-129-141-155-169 lykkjur og prjónið garðaprjón eins og á bakstykki í 6 cm (endið eftir 1 umferð slétt frá röngu). Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er undir FRAM- OG BAKSTYKKI:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 109-119-129-141-155-169 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn, prjónið 109-119-129-141-155-169 lykkjur frá bakstykki slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1A yfir fyrstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur (= 8-9-10-11-11-12 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.2 (= 19 lykkjur), 23-27-31-37-51-59 lykkjur í sléttprjóni, A.3 (= 19 lykkjur), A.1B yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur (= 8-9-10-11-11-12 mynstureiningar með 3 lykkjum), A.1C (= 1 lykkja), A.1A yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur, A.2 (= 19 lykkjur), 23-27-31-37-51-59 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 19 lykkjur), A.1B yfir næstu 24-27-30-33-33-36 lykkjur og endið með A.1C (= 1 lykkjur).
Haldið svona áfram með mynstur (A.2 og A.3 kemur á ská eins og þríhyrningur út í hvorri hlið og það verður meira og meira sléttprjón við miðju að framan og við miðju að aftan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar eftir eru alls 9 lykkjur með áferðamynstri í hvorri hlið á fram- og bakstykki er sett 1 prjónamerki í miðju á þessum 9 lykkjum í hvorri hlið – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Nú er A.4 prjónað yfir miðju 9 lykkjur í hvorri hlið, aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 35-36-37-39-40-41 cm fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg, þ.e.a.s. fellið af lykkju með prjónamerki í. Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 109-119-129-141-155-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (mynstur í hvorri hlið heldur áfram eins og áður) og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 111-121-131-143-157-171 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.5A (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5B (= 4 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-59-61-63 cm fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni, A.5 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Að auki er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í byrjun á 2 næstu umferðum frá hálsi = 41-46-50-56-62-69 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 54-56-58-61-63-65 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
= 109-119-129-141-155-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (mynstur í hvorri hlið heldur áfram eins og áður) og fitjið JAFNFRAMT upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 111-121-131-143-157-171 lykkjur. Prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni og A.5A/A.5B í hvorri hlið – JAFNFRAMT eru 7 miðju lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu eftir 4 umferðir í garðaprjón þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.5A (= 4 lykkjur), 47-52-57-63-70-77 lykkjur í sléttprjóni, setjið þessar 52-57-62-68-75-82 lykkjur á þráð eða látið þær hvíla á prjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5B (= 4 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.5B (= 4 lykkjur) og brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni við miðju að framan, þessar 7 lykkjur eru prjónaðar slétt.
Haldið svona áfram fram og til baka með 7 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan, sléttprjón, A.5B og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-6-7-7 sinum, í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum og síðan í 6. hverri umferð 2 sinnum í öllum stærðum = 48-53-57-63-69-76 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-61-63-65 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Í næstu umferð (ranga), fellið af fyrstu 41-46-50-56-62-69 fyrir öxl, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af = 7 lykkjur eftir á prjóni, prjónið þessar lykkjur slétt. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 7 lykkjur þar til kantur í garðaprjóni mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm frá öxl og fellið af (= kantur í hálsi).
Setjið til baka lykkjur í annarri hlið á stykki á hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (prjónið upp á bakhlið á lykkjum).
Prjónið fram og til baka alveg eins í hinni hliðinni, en haldið áfram með A.5A við handveg og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á undan 7 kantlykkjum við miðju að framan (frá réttu). Þegar stykkið mælist 54-56-58-61-63-65 cm og prjónuð hefur verið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 41-46-50-56-62-69 lykkjur = 7 lykkjur eftir á prjóni, prjónið þessar lykkjur slétt. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 7 lykkjur þar til kantur í garðaprjóni mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm frá öxl og fellið af (= kantur í hálsi).

ERMI:
Fitjið upp 51-53-55-57-59-61 lykkjur á hringprjón 2,5 með Flora. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 6 cm. Prjónið síðan stykkið í hring, þ.e.a.s. skiptið lykkjunum upp á sokkaprjón 3 – byrjun umferðar, þ.e.a.s. op í kanti með garðaprjóni = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn með A.4 yfir miðju 9 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í A.4 og látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 19-21-22-24-25-26 sinnum, í S: Í 7. hverri umferð, í M og L: Í 6. hverri umferð, í XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð, í XXXL: Í 4. hverri umferð = 89-95-99-105-109-113 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-50-49-47-45-44 cm fellið af allar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón mitt ofan á öxl. Saumið saman kant í hálsmáli við miðju að aftan (saumurinn á að snúa inn að röngu). Saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Ellen wrote:

Hva menes med 9 masker steukturmønster? Betyr det 9 masker med midtmasken under ermet?

05.01.2023 - 18:29

DROPS Design answered:

Hei Ellen. Mønstret du strikker / diagrammer = strukturmønster, og når det gjenstår totalt 9 masker med strukturmønster i hver side på bolen settes det 1 merketråd i den midterste av disse 9 maskene i hver side – la merketrådene følge med videre oppover. Detter er da under ermet ja. mvh DROPS Design

06.01.2023 - 14:03

country flag Petra Stammkötter wrote:

Ich verstehe leider die Diagramme im Rumpfteil nicht. Sind hier nun lediglich jede zweite Runde, also 1, 3, 5 usw. Eingezeichnet oder ist jede Runde eingezeichnet? Mir erschließt sich das nicht und ich finde die Bezeichnung Hin+und Rückreihen sehr irreführend

28.08.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stammkötter, beide Hin- und Rückreihe sind im Diagram gezeichnet; Hinreihen lesen Sie rechts nach links und Rückreihen lesen Sie links nach rechts. A.1A (als Beispiel) stricken Sie so: 1. Reihe (Hinreihe): 3 M rechts, 2. Reihe (RückReihe): 1 M links, 2 M re. So bekommen Sie ein RippenMuster: 2 M kraus rechts, 1 Masche glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!

29.08.2022 - 09:03

country flag Karen Bondy wrote:

After you complete the 10 rows of pattern A1A and B do you switch to stockinette for those stitches or do you stay in pattern?

11.06.2020 - 19:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bondy, after you have worked the 10 rows of A.1A and A.1B repeat these rows in height until there are 9 sts remaining in pattern (due to A.2 and A.3) to work A.4. Happy knitting!

12.06.2020 - 07:47

country flag JR wrote:

I'm having trouble with knowing where to start the 9 stitch pattern under the arm in the pattern A.2 and A.3 as I am not seeing a place where 9 stitches would be left in the "texture"?

14.12.2019 - 01:01

DROPS Design answered:

Dear JR, when working A.2 and A.3 on body, the lace/texture pattern will goes diagonally = there will be more stocking stitch in the middle of front/back piece and less stitches worked in texture pattern between the yarn overs (see end of A.2 and beg of A.3 in diagram). When only 9 stitches in texture pattern remain in each side, you then work A.4 over these 9 stitches (= starting and ending with the lace pattern as before + texture as before). Happy knitting!

16.12.2019 - 07:50

country flag JR wrote:

I am just having some trouble understanding the below section: When 9 stitches in textured pattern remain in each side of body, insert 1 marker thread in the middle of these 9 stitches in each side . Now work A.4 over the middle 9 stitches in each side. And do I continue these 9 stitches until said measurement is reached?

10.12.2019 - 20:22

DROPS Design answered:

Dear JR, yes, you continue working A.4 over these 9 stitches on each side undtil piece measures 35-36-37-39-40-41 cm and now cast off the stitch with the marker thread on each side and continue each piece separately. Happy knitting!

11.12.2019 - 08:18

country flag Karen Bondy wrote:

Beautiful. I can't wait to start

03.08.2019 - 19:36

country flag Kuntz wrote:

Bonjour je ne comprend pas se que deviennent les 33 mailles de A1A et les 33 mailles de A1B. Vu que A2 et A3 on toujours 19 mailles chacun ?

26.07.2019 - 12:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kuntz! Continuer le point fantaisie, les diagrammes A.2 et A.3 vont partir en diagonale sur les côtés comme des triangles, et on aura plus de mailles jersey au milieu devant et au milieu dos. Le nombre totale de mailles est le meme. Bon tricot!

27.07.2019 - 00:02

country flag Maartje Van Onselen wrote:

Hoe brei ik een kantsteek?

20.05.2019 - 19:07

DROPS Design answered:

Dag Maartje,

Een kantsteek brei je in ribbelsteek, dus zowel de heengaande als de teruggaande naald recht.

22.05.2019 - 13:01

country flag ANNE B wrote:

MERCI il me semblait bien que A2 et A3 mangeaient les autres diagrammes!!!!! Bravo et merci pour cette prompte bienveillance à répondre,

30.04.2019 - 10:11

country flag ANNE B wrote:

Merci de votre prompte réponse, mais désolée ne vois pas comment arriver à ces 9 mailles? Où sont elles? Faut il répéter A1A et A1B pour obtenir même hauteur que diagrammes A2 et A3? Merci

29.04.2019 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Anne B, vous allez continuer A.2 et A.3 pour continuer les diagonales ajourées, le nombre de mailles entre A.2 et A.3 (= A.1, A.1B et A.1C) vont progressivement diminuer, "mangées" par A.2 et A.3, quand il restera 9 mailles en point texturé de chaque côté, tricotez alors A.4 sur ces 9 m. Bon tricot!

30.04.2019 - 09:48