Betty skrifaði:
Haak 1 half stokje in elk van de volgende 2-3-2-1 lossen, Is t mogelijk om dit uit te leggen want ik snap dit niet. Dank je wel.
03.12.2024 - 16:17DROPS Design svaraði:
Dag Betty,
De reeks getallen refereert naar de maten, dus het eerste getal geldt voor de kleinste maat, het tweede getal voor de volgende maat, enzovoort. Stel dat je de kleinste maat aan het maken bent dan neem je het eerste getal en haak je dus 1 half stokje in elk van de volgende 2 lossen. Dus 1 half stokje in de eerst van die 2 lossen en 1 half stokje in de tweede van die 2 lossen.
04.12.2024 - 20:14
Evi skrifaði:
Mijn cirkel is af maar begrijp niet goed wat ik nadien moet doen. Eerst 1 toer met halve stokjes of moet ik daar al meerderen?
01.11.2024 - 13:22DROPS Design svaraði:
Dag Evi,
Nee, na het sluiten van de 4 lossen tot een ring haak je de eerste toer en dit zijn 12 stokjes om de ring. Je steekt de haaknaald daarbij dus steeds in het gat van de ring.
03.11.2024 - 11:44
Elisabeth Salbu skrifaði:
Finner ikke svar på om jeg kan erstatte Drops merino ekstra fin med big merino. Kan jeg bruke 2 eller 3 tråder for å hekle luen?
08.10.2018 - 23:18DROPS Design svaraði:
Hei Elisabeth. Big Merino (garn gruppe C) er et tykkere garn enn Merino Extra Fine (Garngruppe B), og de har derfor forskjellig heklefasthet. Jeg er redd Big Merino nok er for tykt til at du kan oppnå den angitte heklefastheten til Merino Extra Fine. Når det er sagt er dette settet heklet i Eskimo (Garngruppe E), så du vil nok kunne oppnå heklefatsheten til dette settet ved å bruke 2 tråder Big Merino - men lag en prøvelapp så du er sikker. God fornøyesle
09.10.2018 - 08:23
Angelique skrifaði:
Bonjour, je ne réalise donc plus d'augmentation pour tout le reste de l'ouvrage ? merci
26.09.2018 - 08:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Angélique, une fois que vous avez vos 42 demi-brides, continuez en point texturé jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 17 cm et terminez par 4 tours de mailles serrées. Bon crochet!
26.09.2018 - 13:27
Angeluque skrifaði:
Je ne comprends pas. Je termine le cercle, j ai donc 40 mailles. Je dois faire un tour en demi bride . Je dois faire combien d augmentation , pour taille 3/4, si je comprends bien je dois arriver à 42 mailles en fin de tour ? Merci d avance
25.09.2018 - 19:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Angeluque, à la fin du cercle, vous avez 40 ms, puis vous crochetez 1 tour de demi-brides en augmentant 2 m à intervalles réguliers = vous avez maintenant 42 demi-brides. Vous trouverez ici comment répartir des augmentations. Bon crochet!
26.09.2018 - 07:42
Crispin#crispinset |
|
|
|
Hekluð húfa og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Snow með áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 30-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju í stað 1 fastalykkju. Hver umferð með fastalykkjum endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Hver umferð með hálfum stuðlum byrjar með 2 loftlykkjum í stað 1 hálfum stuðli. Hver umferð með hálfum stuðlum endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju sem hekluð var í byrjun umferðar. Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum í stað 1 stuðli. Hver umferð með stuðlum endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju sem hekluð var í byrjun umferðar. LEIÐBEININGAR: Þegar lykkjur eru heklaðar í aftari lykkjubogann er auðvelt að lenda í því að herða á lykkjunum. Þá verður heklfestan ekki rétt. Til þess að koma í veg fyrir þetta er mikilvægt að þegar þræðinum er brugðið um heklunálina þá sé hann alveg dreginn í gegnum lykkjuna áður en heklað er áfram, þannig að það herðist ekki á þræðinum. HRINGUR (á við um húfu): Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 8 með litnum ljós grár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 12 hálfa stuðla um hringinn. Heklið síðan áfram í aftari lykkjubogann. UMFERÐ 2: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta hálfa stuðulinn, 2 fastalykkjur í næsta hálfa stuðul*, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 3: * Heklið 1 stuðul í fyrstu fastalykkju, 2 stuðlar í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 27 stuðlar í umferð. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur í umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í sömu lykkju. ÁFERÐAMYNSTUR: UMFERÐ 1: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum hálfum stuðli. UMFERÐ 2: 1 stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju. UMFERÐ 3: 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. UMFERÐ 4: 1 hálfur stuðull í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju. LITASKIPTI: Til þess að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er hekluð keðjulykkja í lok umferðar áður en byrjað er á nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í loftlykkjuna sem var hekluð í byrjun umferðar, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálna með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR! HÚFA: Heklið með heklunál 8 og litnum ljós grár og heklið HRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Eftir hringinn er næsta umferð hekluð þannig: Heklið 1 hálfan stuðul í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju og aukið jafnframt út um 0-2-4-6 hálfa stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 40-42-44-46 hálfir stuðlar. Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-19-20 cm skiptið yfir í litinn milligrár – lesið LITASKIPTI. Heklið 4 umferðir með fastalykkjum (heklið í aftari lykkjubogana). Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 20-21-23-24 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Heklið 47-52-55-58 loftlykkjur með heklunál 9 með litnum milligrár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: Heklið 2 loftlykkjur (jafngilda 1 hálfum stuðli), heklið 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 2-3-2-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulukkju í 2. loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar = 36-40-42-44 hálfir stuðlar í umferð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR! Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með mynstur hringinn þar til stykkið mælist ca 12-14-16-18 cm á hæðina – endið eftir eina umferð með fastalykkjum. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crispinset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.