DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 30-15

#lillelisaset

DROPS Design: Mynstur me-034-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Í alls settið þarf ca 150-150-150 g DROPS Merino Extra Fine.
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 52/54 - 54/56 cm

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokk B)
100-100-100 gr litur 33, bleikur

HÁLSSKJÓL:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir Garnflokki B)
100-100-100 gr litur 33, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 112-112-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og prjónið þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), 6 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 14-14-15 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað alveg eins með A.2 yfir hvert mynstur A.1 = 126-126-135 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm fækkið um 1 lykkju í byrjun hverrar einingar með brugðið, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 112-112-120 lykkjur. Haldið áfram með úrtöku með 1 cm millibili, en fækkið lykkjum til skiptis í lokin og í byrjun á hverri einingu með brugðið einingu alls 5 sinnum = 56-56-60 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 28-28-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan allar lykkjur aftur slétt saman 2 og 2 = 14-14-15 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 21-22-23 cm á hæðina.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 4-6 cm að þvermáli og festið dúskinn efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 88-96-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11-12-13 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og prjónið þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), 6 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 11-12-13 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað alveg eins með A.2 yfir hvert mynstur A.1 = 99-108-117 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-16 cm aukið út um 1 lykkju í byrjun hverrar einingar með brugðið, aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð svo ekki myndist gat. Haldið áfram með útaukningu í 3. hverri umferð, en aukið út til skiptis í lokin og í byrjun hverrar einingar með brugðið alls 5 sinnum = 154-168-182 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-24 cm prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur, fellið síðan af með sléttum lykkjum.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðst niðri á hálsskjóli með heklunál 3,5 með Merino Extra Fine þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið fram ca 1½ cm, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

Mynstur

slétt = slétt
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar
engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
Diagram for DROPS Children 30-15

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (85)

country flag Marita skrifaði:

Skal det strikkes A1 og A2 annenhver gang, eller er det A1 en gang, så videre med bare A2?

21.09.2018 - 15:44

DROPS Design svaraði:

Hei Marita, A.1 skal strikkes bare en gang, deretter A.2 over A.1 videre. God fornøyelse!

24.09.2018 - 08:01

country flag Fre skrifaði:

Wa tis de bonenmaat van maat 1/12 jaar?

04.09.2018 - 18:13

DROPS Design svaraði:

Dag Fre, Bedoel je de bovenwijdte voor maat 12? Op basis van het aantal steken en de stekenverhouding kom ik op een wijdte aan de onderkant van de halswarmer van ongeveer 86 cm rondom voor de grootste maat. Aan de bovenkant is dat ongeveer 49 cm.

05.09.2018 - 09:01

country flag Fre skrifaði:

Is deze er in volwassen matenook? ik zoek dit patroon maar danb vor vrouw maat 36 en man L

01.09.2018 - 22:42

DROPS Design svaraði:

Dag Fre, Van specifiek dit patroon is geen versie voor volwassenen, maar als je zoekt op de zoektermen 'kabels', 'muts' en 'halswarmer' vind je misschien een vergelijkbaar patroon.

06.09.2018 - 11:14

country flag Joyce Sierhuis skrifaði:

Hoe brei ik de eenvoudige kabel op rondbreinaald op de video zie ik dat het patroon heen en terug gebreid wordt dank voor uw antwoord groetJS

02.03.2018 - 20:51

DROPS Design svaraði:

Hallo Joyce, Voor het kabeltje kun je steeds het telpatroon volgen; in op de eerste naald van A.1 1 steek recht afhalen, 2 recht in de volgende steek en de afgehaalde steek overhalen. De 2e toer: 1 recht, 1 omslag, 1 recht. De derde en vierde toer brei je recht. Daarna ga je verder met A.2 in de hoogte boven A.1

04.03.2018 - 17:07

country flag Nicole Lallemand skrifaði:

Bonjour Merci de votre réponse et je suis contente de terminer ce magnifique chapeau de laine Merci et Bonne Journée

25.01.2018 - 15:13

country flag Nicole Lallemand skrifaði:

Re-Bonjour Mon problème est toujours présent . Quand j'ai fait A.1 ET A.2 en hauteur c'est a la suite de ça . Je recommence le A,1 glisse 1 m tricote 2x la même m et je passe la m glisser par dessus et la M . tricoter .La M suivante qui reste je fais quoi : je la tricote comment ? c'est vie a vie la fausse torsade . Merci

23.01.2018 - 21:17

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Lallemand, une fois que vous avez tricoté 1 x A.1 en hauteur, vous continuez en suivant A.2, c'est-à-dire que vous répétez A.2 en hauteur (A.1 ne se tricote qu'une seule fois, au tout début). Bon tricot!

25.01.2018 - 08:55

country flag Nicole Lallemand skrifaði:

Bonjour , j'aimerais avoir votre opinion svp Merci Pour A.1= j'ai fais 1m.end, je glisse la maille suivante,je tricote 2 fois la maille suivante et je passe la glisser par dessus la maille tricoter et je termine par 6 Mailles envers 2ieme Rang: 1 m.end , 1 jeté,1m.end , et 6 m. envers 3 ieme Rang : 2 mailles end, et 6 m.envers 4ieme Rang : 2 mailles end et 6 m.envers Est-ce bien ça qu'il faut faire ? Merci infiniment

21.01.2018 - 04:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Lallemand, A.1 se tricote sur 2 mailles ainsi: on glisse la 1ère m à l'end, on tricote 2 fois la m suivante (alternativement dans le brin avant et le brin arrière = 1 augmentation) puis on passe la m glissée par-dessus les 2 m tricotées = il reste 2 m. Au 2ème tour, tricotez 1 m end, 1 jeté, 1 m end = 3 m. Au 3ème et 4ème tour, tricotez les 3 m à l'end. (toujours avec 6 m env entre chaque A.1). Bon tricot!

22.01.2018 - 10:53

country flag Joyce Sierhuis skrifaði:

Klopt het dat A1 en A2 hetzelfde gebreid worden? ik ben een beginnend breister en heb wel de video A2 gezien maar niet die van A1 ik kom er niet helemaal uit

14.01.2018 - 14:53

DROPS Design svaraði:

Hoi Joyce, In A.1 zie je in de eerste naald een ander symbooltje staan, namelijk een licht zwart ingekleurd driehoekje dat zwart is ingekleurd. Dit betekent: 1 steek recht afhalen, 2 steken recht in de volgende steek, haal de afgehaalde steek over de 2 steken Bij A.2 staat een ander symbool in de eerste naald en deze is ook uitgelged bij het telpatroon. In A.2 wordt dus op een andere manier geminderd in de eerste naald, waardoor je een ander stekenbeeld hebt.

15.01.2018 - 19:54

country flag Joyce Sierhuis skrifaði:

Hoe brei ik dit patroon met rondbreinaald kom er niet uit zo ook de dropswinkel niet.

11.01.2018 - 14:50

DROPS Design svaraði:

Hallo Joyce, Je zet het aantal benodigde steken op en breit dan verder in de rondte. Als het aantal steken minder wordt kun je evt. verder gaan met een kleinere rondbreinaald. Bij het patroon staan ook een aantal video's (tabblad video, bovenaan het patroon). In deze video is bijvoorbeeld uitgelegd hoe je opzet en tricotsteek breit op de rondbreinaald.

17.01.2018 - 11:41

Pauline skrifaði:

Why is it stressed about the knitting tension? What do you mean by that?

09.01.2018 - 04:34

DROPS Design svaraði:

Dear Pauline, every person knits slightly differently. Keeping knitting/crochet tension is important, so the finishing item would be the right size, so it would fit properly. There are items, like blankets and /or shwals where it is somewhat less important, but with pieces like sweaters, hats ands such it is very important that the tension is kept, otherwise the number of stitches should be recalculated. When making gauge swatches you can also see how the yarn behaves (it is best to wash and block the swatches), and try outhow wtitch patterns worked. Happy crafting!

09.01.2018 - 07:36