Kharmeana skrifaði:
Hoi, Ik neem aan dat de 17 st verkeerd geplaatst is bij L, denk dat dit 15 moet zijn. Bij...Als de boordsteek 8 cm meet brei dan verder als volgt: * 11-13-17-15-21-23 steken recht voor xl geldt en niet voor L klopt dit? de 17 staan nu voor de L. Groeten Mary
10.10.2017 - 12:58
Marise skrifaði:
Quand l'ouvrage mesure 46 cm (petit), tricoter ainsi (ajuster pour que ce rang soit un rang impair dans A.2)... Le rang impair arrivera à un rang où il y aura des motifs dans A2 et je dois faire des diminutions et tricoter 72 m rendu à 46 cm, est-ce que je continue comme dans le motif avec les jetés et autres pour ces mailles ou serait-ce dans un rang pair en jersey? Je vous remercie à l'avance pour votre serviabilité et rapidité à répondre! Bonne et belle journée!
02.10.2017 - 14:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Marise, vous continuez les diagrammes comme avant (= rang suivant du diagramme avec le point ajouré/torsades) et sur ce rang, vous rabattez 4 m sur chacun des 2 côtés pour les emmanchures. Le rang suivant sera sur l'envers = vous tricotez les mailles sur l'envers comme indiqué dans les diagrammes (= rang pair). Bon tricot!
02.10.2017 - 15:10
Mc skrifaði:
Merci pour la rapidité de votre réponse ! Comment savoir associer les couleurs dans 2 qualités différentes ?
25.09.2017 - 11:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mc, pour le choix d'une qualité/couleur différente, demandez conseil à votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, on saura vous conseiller. Bon tricot!
25.09.2017 - 13:28
Mc skrifaði:
Bonjour, merci de me préciser, avant que je ne fasse ma commande : ce modèle est tricoté avec 2 fils différents : Drops air et Drops kid silk ?
25.09.2017 - 10:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mc, oui tout à fait, on tricote avec les 2 qualités Air et Kid-Silk en même temps (1 fil de chaque qualité). Bon tricot!
25.09.2017 - 10:55
Victoria skrifaði:
If in the body of the pattern it said cast off the first 2 stitches then 4 stitches then 2 more stitches the math does not add up to 72. My math say 68. So please explain
31.08.2017 - 03:20DROPS Design svaraði:
Dear Victoria, you had 152 sts and dec 8 sts (2+4+2) = 144 sts remain divided in 2 = 72 sts for front and back piece. Happy knitting!
31.08.2017 - 07:42
Marianne Johansson skrifaði:
Snygg när den är nystickad men garnet blir fort "fult", så det är tråkigt 😟
04.08.2017 - 16:50
Nadine Landry skrifaði:
Comme nom: nuage confort, comfort cloud. Il a vraiment l'air confortable j'ai hâte d'avoir le patron.
31.07.2017 - 23:30
Helle Jacobsen skrifaði:
Min favorit
31.07.2017 - 16:59
OLIVON skrifaði:
Super mélange de torsades et de jours. Je l'imagine dans un fil mohair. J'ai hâte d'avoir les explications pour me lancer dans cet ouvrage. Bravo
01.07.2017 - 16:36
Marimar skrifaði:
J'adoore !
06.06.2017 - 13:59
Winter Flirt#winterflirtsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL. Peysan er prjónuð úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk.
DROPS 179-26 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð þegar prjónað er eftir A.2. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 152-160-176-184-208-216 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn þannig: STÆRÐ S - XL - XXXL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum slétt og 1 lykkju brugðið. STÆRÐ M - L - XXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjum brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist 8 cm er prjónað þannig: * 11-13-17-15-21-23 lykkjur slétt, A.1 (= 14 lykkjur), A.2 (= 26-26-26-34-34-34 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), 11-13-17-15-21-23 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm prjónið þannig (stillið af að þetta sé umferð með mynstri A.2): Fellið af 2 fyrstu lykkjur, prjónið næstu 72-76-84-88-100-104 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 4 lykkjur, prjónið næstu 72-76-84-88-100-104 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 2 lykkjur. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 72-76-84-88-100-104 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 26-26-26-30-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-24-28-28-34-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fækkið um 5 lykkjur yfir A.1/A.3 = 17-19-23-23-29-31 lykkjur á öxl. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 72-76-84-88-100-104 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (prjónið e.t.v. sléttprjón yfir miðju 18-18-18-26-26-26 lykkjur í síðustu mynstureiningu af A.2 til að koma í veg fyrir að affelling fyrir hálsmáli skemmi mynstur. Sjá ljósmynd). Setjið nú miðju 20-20-20-24-24-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 22-24-28-28-34-36 lykkjur á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fækkið um 5 lykkjur yfir A.1/A.3 = 17-19-23-23-29-31 lykkjur á öxl. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn þannig: STÆRÐ S - M - XXL - XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. STÆRÐ L - XL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið. Prjónið stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: 9-9-11-11-13-13 lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 14 lykkjur), 9-9-11-11-13-13 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 8-7-8-8-8-7 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3-2½-2½-2½ cm millibili alls 12-13-13-14-13-15 sinnum = 56-58-62-64-66-70 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 51-51-49-48-45-45 cm. Fækkið um 5 lykkjur yfir A.1 = 51-53-57-59-61-65 lykkjur. Fellið af. Prjónið aðra ermi alveg eins, en nú er prjónað A.3 í stað A.1. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 78-100 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) með einum þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á stuttan hringprjón 7. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterflirtsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.