Fran Miller skrifaði:
I am starting this sweater and want clarification on the ribbing. Is the purl row just done for the first row? So knit 5, (knit 2,purl 2) to last 7 stitches, knit last 7 stitches is done every row?
24.10.2017 - 22:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Miller, you will K every row the first 5 sts and the last 5 sts on row, all remaining sts between these will be worked K2/P2, ie from RS you will finish with K7 and from WS you will start with K5 (= front band), then work K over K and P over P for the rib, and finish with K5 (= front band). Happy knitting!
25.10.2017 - 08:44Judi skrifaði:
When it states continue in pattern when knitting up from the body are the sections on either side of A-1 in stocking stitch - in other words when on the wrong side do you purl the knit, and knit the purl ?
15.10.2017 - 18:19DROPS Design svaraði:
Dear Judi, you are right, it means you continue as you've knitted before, so, where you have knitted the pattern A.1, you continue with A.1, where you have knitted stockinette before, you continue with knit on the RS and purl on the WS, etc. Happy Knitting!
15.10.2017 - 22:55
Karolien skrifaði:
Hallo, Kan ik ipv. de mouwen helemaal recht breien ook het kantpatroon in de mouwen breien? Of klopt de breedte en de lengte dan niet meer? Alvast bedankt voor het antwoord.
09.10.2017 - 18:06DROPS Design svaraði:
Hallo Karolien, Leuk idee! Dit zou prima kunnen over de middelste 24 of 28 steken van de mouwen. De mouw blijft daardoor wel ongeveer even breed in dit kantpatroon.
11.10.2017 - 21:55
Tone Windi Fredriksen skrifaði:
Hei. Jeg vil gjerne strikke denne nydelige jakken. Men jeg finner ikke noe mål på hver str, og da er det vanskelig å finne rett str. Noen gode råd? Mvh Windi Fredriksen.
21.09.2017 - 13:17DROPS Design svaraði:
Hej Tone, jo nederst i opskriften finder du en måleskitse med jakkens mål. Du ganger brystmålet med 2 for at få omkredsen. God fornøjelse!
21.09.2017 - 14:41
Elvia McCormack skrifaði:
Good morning. This is a beautiful pattern and I plan to start on it soon. I had a few questions please. (1) Is this pattern worked semi in one piece to a certain point, then stitches separated for the back, left and right front and (2) how much yarn do i need please in number of skeins? Thank you!
30.07.2017 - 16:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McCormack, body is worked in one piece from bottom to armholes, then work separately back piece then each front piece. You will find the total amount of yarn required under tab "Materials", ie for example in size S you need: 350 g DROPS Air/50 g a ball Air = 7 balls Air in size S - calculate number of balls in your size the same way. Happy knitting!
31.07.2017 - 10:59
Carmen skrifaði:
Una chaqueta muy bonita, me gusta todo,el color y la lana elegida.
19.06.2017 - 21:24
Kirsten Asmussen skrifaði:
Vil jeg gerne strikke til min datter!
19.06.2017 - 20:31
SonjaBuhr skrifaði:
Heerlijk herfstvest, erg mooi
05.06.2017 - 22:06
Lotus Jacket#lotusjacket |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og stroffi. Stærð S - XXXL. Peysan er prjónuð úr DROPS Air.
DROPS 179-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynstur fyrir rétta stærð. ÚRTAKA (á við um hlið): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 16, 25, 34, 43, 52 og 61 cm M: 16, 25, 34, 43, 53 og 63 cm L: 16, 25, 35, 45, 55 og 65 cm XL: 16, 24, 32, 40, 49, 58 og 67 cm XXL: 16, 24, 33, 42, 51, 60 og 69 cm XXXL: 16, 26, 35, 44, 53, 62 og 71 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp við handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-220-232-252-272-296 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff þannig – frá réttu: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 34-38-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir = 170-182-194-210-226-246 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 24-24-24-28-28-28 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 25-31-37-37-45-55 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 25-31-37-37-45-55 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 45-48-51-55-59-64 lykkjur inn frá miðju að framan (bakstykki = 80-86-92-100-108-118 lykkjur). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum = 4 lykkjur færri, LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 12-12-13-13-14-14 cm millibili alls 4 sinnum = 154-166-178-194-210-230 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið garðaprjón yfir 14 lykkjur í hvorri hlið = 7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkjum í hlið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir lykkjur í hlið er næsta umferð prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 37-40-43-47-51-56 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið 64-70-76-84-92-102 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 37-40-43-47-51-56 lykkjur. Prjónið síðan hvert stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 64-70-76-84-92-102 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið eru nú prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-21-23-27-30-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (aðrar lykkjur í A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni) og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 37-40-43-47-51-56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið við handveg eru prjónaðar í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGÖTUM. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Setjið nú fyrstu 15-15-16-16-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-21-23-27-30-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (aðrar lykkjur í A.1 eru prjónaðar með sléttprjóni) og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra, nema gagnstætt. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Fitjið upp 40-40-44-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 5 cm, síðan er skipt yfir á sokkaprjón 6, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN, sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 6-6-8-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 34-34-36-38-40-40 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 12-13-14-14-15-16 sinnum = 58-60-64-66-70-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 3 sinnum = 34-36-40-42-46-48 lykkjur. Ermin mælist ca 52-51-50-48-47-44 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 80-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjóna 5 með Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka, síðan er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lotusjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.