Mona skrifaði:
Das ist ein sehr schöner pullover. In meinen Fingern kribbelt es schon 😊 jetzt heißt es warten auf die Anleitung
01.07.2017 - 19:50
Fulvia skrifaði:
Questo è meraviglioso😍
15.06.2017 - 21:30
Elisabeth skrifaði:
Skønne farver kan egentlig godt lide modellen måske ikke lige få stor nederst
02.06.2017 - 09:59
Between the Lines#betweenthelinessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór peysa / oversized í klukkuprjóni með v-hálsmáli og röndum. Stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 180-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MÆLING: Vegna áferðar kemur peysan til með að teygjast við notkun um ca 6-8 cm á lengdina miðað við mál í mynsturteikningu. Ermalengdin kemur til með að teygjast ca 3-5 cm. Mál í mynsturteikningu virðast því vera aðeins styttri miðað við peysu á mynd, en peysan kemur til með að teygjast í rétt mál við notkun. Öll lengdarmál eru gerð þegar flíkin liggur flöt, en athugið gjarna mál á flíkinni jafnóðum með því að halda uppi flíkinni þegar hún er mæld og prjónið að óskaðri lengd. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: 2 umferðir í klukkuprjóni gerir 1 sýnilega lykkju á hæðina. UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið (stingið inn hægri prjóni inn í lykkju á vinstra prjóni frá hægri að vinstri, þ.e.a.s. prjóninum er stungið inn aftan í lykkjuna)* , endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju (lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju (lykkjum), prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman. Endurtakið umferð 2 og 3. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: 6 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid Silk (1 þráður). 8-8-10-10-10-10 cm í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 3 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 4 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður). 6 cm í öllum stærðum í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir). 8 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 4-4-4-4-6-6 cm í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 3 cm í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður). Á eftir síðustu rönd mælist stykkið ca 60-60-62-64-66-66 cm. Prjónið síðan til loka í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir). RENDUR Á ERMI: 3 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður). 4 cm í öllum stærðum í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 1 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 2 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður). 3 cm í öllum stærðum í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir). 4 cm í öllum stærðum í litnum gulgrænn Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 2 cm í öllum stærðum í litnum turkos/grár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum gráblár Kid-Silk (1 þráður). 1 cm í öllum stærðum í litnum fjólublár/grár/blár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (1 þráður) + í litnum kóbaltblár Kid-Silk (1 þráður). Á eftir síðustu rönd mælist stykkið ca 36-36-36-34-34-32 cm. Prjónið síðan til loka í litnum sæblár Alpaca (1 þráður) + í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (2 þræðir). ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja og er prjónaður snúinn saman með 2 lykkjunum = 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjur á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur brugðið saman (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja og er prjónaður saman með 2 lykkjum = 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstri í klukkuprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Allt stykkið er prjónað með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan, þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjón í hvorri hlið. Lesið MÆLING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum. Þegar stykkið mælist 17 cm er prjónað í klukkuprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-48-50-50-52 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 7 lykkjur í umferð (uppslættir eru ekki taldir með sem lykkjur og eru prjónaðir slétt saman með hverri lykkju sem tekin hefur verið óprjónuð í fyrstu umferð, aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferð garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón, prjónið 5 lykkjur slétt, steypið 4. lykkjunni sem var prjónuð yfir 5. lykkju sem var prjónuð (= 1 lykkja færri við miðju að framan), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Setjið 29-31-33-36-39-43 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóninum. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 29-31-33-36-39-43 lykkjur sem eftir eru í klukkuprjóni, röndum, 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með sléttum lykkjum þegar fellt er af). Prjónið síðan yfir lykkjur í hægri hlið á stykki alveg eins og á vinstri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Setjið lykkjuna sem felld var af við miðju að framan yfir á vinstri prjón og prjónið þá lykkju slétt saman við næstu lykkju á vinstri prjón (þetta er gert til að sleppa við gat neðst á v-hálsmálinu), prjónið 2 lykkjur slétt, 25-27-29-32-35-39 lykkjur klukkuprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir 29-31-33-36-39-43 lykkjur í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju með garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir á eftir skiptingu og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 3 sinnum í öllum stærðum = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af). BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 63-67-71-77-83-91 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum dökk fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin merkja klauf í hliðum (bakstykki er 4 cm lengra en framstykki). Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónað klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-22-22-24-24-24 cm prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan – ATH: Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umferðir í hverri rönd og á framstykki. Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 59-63-67-73-79-87 lykkjur. Haldið áfram í klukkuprjóni, röndum og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm prjónið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur í umferð (uppslættirnir eru ekki taldir með sem lykkjur og eru prjónaðir slétt saman með hverri lykkju sem tekin hefur verið óprjónuð í fyrstu umferð, aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð frá réttu á eftir 4 umferðum í garðaprjóni eru felldar af miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Setjið 25-27-28-31-33-37 lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) á þráð eða látið þær bíða á prjóni. Haldið áfram fram og til baka yfir þær 25-27-28-31-33-37 lykkjur sem eftir eru í klukkuprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við háls að aftan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA = 24-26-27-30-32-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslættirnir eru prjónaðir saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af). Prjónið hina öxlina alveg eins. ERMI: Fitjið laust upp 23-25-25-27-27-29 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í litnum sæblár Alpaca + 2 þráðum í litnum fjólublár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið klukkuprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-9-7 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur færri). Aukið svona út með 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili alls 9-9-11-11-12-12 sinnum = 41-43-47-49-51-53 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-16-16-14-14-12 cm prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 43-42-42-40-38-36 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið til að merkja hvar ermin á að saumast í við handveg. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 1 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 44-43-43-41-39-37 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslættirnir eru prjónaðir saman við óprjónuðu lykkjurnar þegar fellt er af). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið botn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hliðarsaum á fram- og bakstykki). Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 16 cm neðst niðri á framstykki og 20 cm neðst niðri á bakstykki fyrir klauf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #betweenthelinessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.