Patricia skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas diminuer 1 maille envers dans toutes les sections 3 mailles envers. Pourriez vous mettre une vidéo svp merci d'avance ?
30.11.2017 - 21:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, vous tricotez d'abord en côtes 1 m end, 3 m env (vu sur l'endroit). Pour diminuer 1 m env dans chacune des sections 3 m env, tricotez 1 rang ainsi: *1 m end, 2 m ens à l'env, 1 m env*, et répétez de *-* = il reste 2 m env dans chacune des sections 3 m env. Bon tricot!
01.12.2017 - 09:09
Patricia skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas diminuer 1 maille envers dans toutes les sections 3 mailles envers. Pourriez vous mettre une vidéo svp merci d'avance ?
30.11.2017 - 21:41Alice skrifaði:
Never mind my question about provisional cast on -- I see the pattern begins at the ends, not the back. Sorry!
26.10.2017 - 20:27
Alice skrifaði:
Would a provisional cast on work with this pattern?
26.10.2017 - 16:44DROPS Design svaraði:
Dear Alice, it wouldn't since the cast on edge is the end of the scarf - but you can slip sts at the end of 1st piece on another needle/st holder/thread and graft both pieces together to avoid a seam. Happy knitting!
27.10.2017 - 09:54
Natividad skrifaði:
Estoy haciendo la estola drop calados y estoy bloqueada porque hice la primera vuelta revés la segunda bien no se como son las del reves
23.09.2017 - 20:58DROPS Design svaraði:
Hola Natividad. Las siguientes filas por el lado revés se trabajan como se presentan los puntos, aparte de los puntos del borde a cada lado, que se trabajan en punto musgo.
24.09.2017 - 18:04
Marion skrifaði:
Prachtig, mooi afwisselend patroon!
10.06.2017 - 05:30
Dreamy Daffodil#dreamydaffodilshawl |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri og stroffi úr DROPS Alaska.
DROPS 180-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í tveimur eins stykkjum sem síðar eru saumuð saman í miðju. SJAL: Fitjið upp 155 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm eru allar 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu) fækkað til 2 lykkjur brugðið = 118 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm eru allar 2 lykkjur brugðið fækkað til 1 lykkja brugðið (ATH: fækkað er í fyrstu og síðustu einingu með brugðnum lykkjum = 19 lykkjur færri) = 99 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm eru þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru fækkað til 1 lykkja brugðið (= 18 lykkjur færri) = 81 lykkja. Þegar stroffið mælist 5 cm – passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1a (= 7 lykkjur), A.1b (= 12 lykkjur) 5 sinnum á breidd, A.1c (= 8 lykkjur), 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 4 heilar mynstureiningar A.1a til A.1c á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 5 lykkjur eru efitir á prjóni, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman = 1 lykkja færri (þetta er gert til að mynstrið gangi upp í lykkjufjölda), prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 80 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 1 lykkju í lok síðustu umferðar (þetta er gert til að mynstrið gangi upp í lykkjufjölda) = 79 lykkjur. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3a (= 3 lykkjur), A.3b (= 6 lykkjur) 11 sinnum á breidd, A.3c (= 4 lykkjur), 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Endurtakið mynstureiningu A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 53 cm – passið uppá að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og fækkið jafnframt um 1 lykkju (þetta er gert til að mynstrið gangi upp í lykkjufjölda), 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 78 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til A.2 er hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið 2 umferðir í sléttprjóni með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fækkað er um 1 lykkju í lok síðustu umferðar (þetta er gert til að mynstrið gangi upp í lykkjufjölda = 77 lykkjur. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 (= 10 lykkjur) 7 sinnum á breidd, 1 lykkja sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 4 mynstureiningar á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og aukið jafnframt út um 1 lykkju í fyrstu umferð (þetta er gert til að mynstrið gangi upp í lykkjufjölda), 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 78 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturin verði stífur er hægt að nota grófari prjóna þegar fellt er af eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Stykkið mælist ca 78 cm. Prjónið annað stykki alveg eins. Saumið saman bæði stykkin innan við affellingarkantinn þannig að það verða 8 umferðir garðaprjón mitt á sjali. Saumið lykkjurnar saman eina og eina og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreamydaffodilshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.