Khairieh Amr skrifaði:
I am making the small size. I found if the edge stitches for the leg are 2 in the beginning and 1 at the end (rather than 1 beginning and 2 end) then the lace design would work better. I love your designs, unfortunately cannot get your yarns here in Jordan :(
24.07.2018 - 18:40
Monika Kubičinová skrifaði:
Prosím Vás, ráda háčkuji a pletu. Můžu si své výrobky podle Vašich vzorů nafotit a dát na facebookový profil? Na výrobky nedávám visačky a když nějaký daruji nebo prodám, musím někde uvést, že jsem to upletla nebo uháčkovala podle Vašeho vzoru? Děkuji moc za odpověď. Monika Kubičinová
12.11.2017 - 15:15DROPS Design svaraði:
Milá Moniko, jsme moc rádi, že se vám naše modely líbí! Své výrobky klidně foťte a vystavujte! Na Facebooku a Instagramu k nim prosím do komentáře připište, podle jakého modelu a ppř. z jaké příze jste pletla/háčkovala a přidejte tag #dropsfan - díky tomu vaše kousky uvidí i další příznivci DROPS. Že je model upletený podle návrhu DROPS design by mělo být rovněž uvedeno u věcí na prodej (na visačce či v prodejním inzerátu, stačí tato stručná informace). Děkujeme a těšíme se na vaše fotky! Hana
13.11.2017 - 07:27
Nathalie Sauvain skrifaði:
La quantité de laine prescrite n'est pas correcte - il faut 3 à 4 pelottes pas deux.
23.09.2017 - 13:55
Patricia skrifaði:
Pourrais je avoir une vidéo svp merci
24.08.2017 - 22:09
Patricia skrifaði:
Très joli comme point. Je voudrais savoir combien fais le tour de la cheville car je trouve que c'est grand à ce niveau et j'ai bien peur que cela retombe !!!
23.08.2017 - 01:03
Mary's Place#marysplaceslippers |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaðar tátiljur með gatamynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35-42.
DROPS 178-51 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10,1. í þessu dæmi þá er prjónuð 9. hver og 10. hver lykkja saman, eða aukið er út á eftir 10. hverri lykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir kantlykkju/prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki/kantlykkju þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki/kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Öll tátiljan er prjónuð fram og til baka á hringprjón og saumuð saman við miðju að aftan og mitt undir il í lokin. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 53-53-63 lykkjur á hringprjón 4 með Nepal. Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1A yfir næstu 50-50-60 lykkjur (= 5 mynstureiningar að ofan, prjónið A.1A yfir næstu 50-50-60 lykkjur (= 5 mynstureiningar 10-10-12 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2-0-6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 51-53-57 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-20 cm, en endið þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. FÓTUR: Prjónið fyrstu 19-19-20 lykkjur í umferð eins og áður og setjið þær síðan á þráð, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn, prjónið næstu 13-15-17 lykkjur brugðið (= efri partur), fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn, prjónið síðustu 19-19-20 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð = 15-17-19 lykkjur á prjóni. Klippið frá þráðinn sem prjónað er með. Prjónið fram og til baka yfir 15-17-19 lykkjur á efri parti þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-3 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 11 lykkjur), 1-2-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til efri parturinn mælist 7-8½-10 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjur á prjóni brugðið saman = 13-15-17 lykkjur eftir á prjóni. Setjið lykkjur á þráð og klippið síðan þráðinn frá sem prjónað var með. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 19-19-20 lykkjur af þræði í hægri hlið á stykki, prjónið upp 13-16-19 lykkjur meðfram hlið á efri parti (prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni), prjónið sléttar lykkjur yfir 13-15-17 lykkjur framan á efri hluta, prjónið upp 13-16-19 lykkjur meðfram annarri hlið á efri hluta og prjónið sléttar lykkjur yfir 19-19-20 lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykki = 77-85-95 lykkjur á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þar sem auknar eru út 11 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 88-96-106 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki á milli miðju 2 lykkjur framan á tá. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka til loka. Þegar stykkið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju á eftir kantlykkju í byrjun umferðar, hvoru megin við prjónamerki framan og á undan kantlykkju í lok umferðar – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) þar til stykkið mælist ca 5-5-6 cm – fellið af þær lykkjur sem eftir eru. FRÁGANGUR: Saumið saum við miðju að aftan og haldið áfram með sauminn undir fæti – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marysplaceslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.