Marta skrifaði:
Hallo! Ich habe jetzt das Vorderteil gestrickt und es ist an den Seiten durch das Lochmuster sehr unregelmäßig. Ist das trotzdem richtig? Außerdem ist mein Teil in der Höhe an einer Seite länger. Habe ich was falsch gemacht? Herzlichen Dank und lieben Gruß aus Deutschland Marta
19.07.2017 - 12:49DROPS Design svaraði:
Liebe Marta, am besten Ihr Strickstück Ihr DROPS Laden zeigen (auch per mail), so können Sie eine bessere Antwort bekommen, prüfen Sie mal, daß die verkürzten Reihen auf beiden Seiten korrekt sind, damit beide Seiten genau so lang sind. Viel Spaß beim stricken!
20.07.2017 - 09:16
Marie skrifaði:
Bonjour! N'y aurait-il pas une erreur dans le nombre de rangs indiqués pour l 'échantillon en point mousse: " échantillon de 21 mailles et 42 rangs au point mousse ", le 42 me parait peu probable ? Merci.
26.06.2017 - 07:19
Rebecca skrifaði:
Could you please tell me if the pattern from the front bottom is triangular? I don't want to continue knitting if I'm wrong! It would have been helpful to have a photo of the entire finished jumper but as the model is seated, I don't know what the bottom is supposed to look like. Many thanks, Rebecca
05.05.2017 - 21:45DROPS Design svaraði:
Hi Rebecca, Yes, there will be a triangular shape at the bottom of the front and back pieces. Kind regards, Deirdre
08.05.2017 - 09:05
Birgit skrifaði:
Kan det være feil i oppskriften her? På side 2 etter andra økt med forkortede pinner står det at man skal strikke 7 riller i størrelse L mens M har 1 og XL har 3 riller. Jeg strikket etter mønsteret og er ferdig med forstykket, men den er jo over 10 cm for lang. Jeg mistenker at det skal være 2 riller og ikke 7, altså jeg har 10 riller for mye. Kommentar?
28.04.2017 - 08:30DROPS Design svaraði:
Hej Birgit, opskriften stemmer, så hvis du følger den og strikkefastheden, får du målene som på måleskitsen. God fornøjelse!
19.09.2017 - 08:21
Jorunn Gjøslien skrifaði:
Det hadde vært fint med bilde av genseren, hele. Når du strikker forkortede pinner og øker med 5, skal du strikke helt tilbake eller over 10?
25.04.2017 - 09:03DROPS Design svaraði:
Hei Jorunn, Du skal bare strikke tilbake over 10, øker 4-4-5-5-5 masker mer på hver pinne fra vrangen og tilbake over disse maskene i tillegg. Håper dette hjelper. Mvh, Deirdre
26.04.2017 - 08:28
Simone skrifaði:
Jubbii, jeg var bange for at denne opskrift ville gå i glemmebogen da den ikke var blandt forårsnyhederne :) Glæder mig til at strikke den :)
23.02.2017 - 10:04
Afternoon Stroll#afternoonstrollsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Peysa með stuttum umferðum og gatamynstri, prjónuð neðan frá og upp, úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-14 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat MÆLING: Vegna þyngdar á garninu og garðaprjóni þá kemur flíkin til með að teygjast við notkun. Mál á lengd í mynsturteikningu er styttri en tilbúna flíkin þegar hún er notuð. Mælið stykkið þegar það liggur flatt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki eru prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 104-112-120-135-145-160 lykkjur á hringprjón 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4-4-5-5-5-5 lykkjur, snúið við og herðið á þræði svo ekki myndist gat. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-10-10-10-10 lykkjur, snúið við, herðið á þræði svo ekki myndist gat. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 8-8-10-10-10-10 lykkjur. Endurtakið umferð 3 og 4, en í hvert skipti sem prjónað er frá réttu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur fleiri en í fyrri umferð, að lokum eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur = 104-112-120-135-145-160 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan mynsturteikningu A.1 frá réttu þannig: Prjónið A.1a (= 2 lykkjur), prjónið A.1b þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið A.1c (= 2 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4-4-5-5-5-5 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið 8-8-10-10-10-10 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 8-8-10-10-10-10 lykkjur. Endurtakið umferð 4 og 5 en í hvert skipti sem prjónað er frá röngu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð, áður en í lokin eru prjónaðar yfir allar lykkjur frá röngu. Prjónið 2-2-14-6-6-2 umferðir garðaprjón. Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-4-5-5-5-5 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið til baka yfir 100-108-115-130-140-155 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið þar til eftir eru 8-8-10-10-10-10 lykkjur á prjóni, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið til baka yfir 96-104-110-125-135-150 lykkjur. Endurtakið umferð 4 og 5 en í hvert skipti sem prjónað er frá röngu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur færri en frá fyrri umferð, að lokum eru prjónaðar 4-4-5-5-5-5 lykkjur frá röngu. Prjónið til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur, klippið frá. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur (1. umferð = frá réttu) = 104-112-120-135-145-160 lykkjur. Prjónið síðan mynsturteikningu A.2 frá réttu þannig: Prjónið A.2a (= 2 lykkjur), endurtakið A.2b þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið A.2c (= 2 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.2 hefur verið prjónuð til loka 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 4-4-5-5-5-5 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 8-8-10-10-10-10 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 8-8-10-10-10-10 lykkjur. Endurtakið umferð 3 og 4 en í hvert skipti sem prjónað er frá réttu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð, að lokum er prjónað yfir allar lykkjur. Prjónið 2-2-14-6-6-2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur = 104-112-120-135-145-160 lykkjur. Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið þar til eftir eru 4-4-5-5-5-5 lykkjur á prjóni, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið til baka yfir 100-108-115-130-140-155 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 8-8-10-10-10-10 lykkjur á prjóni, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið til baka yfir 96-104-110-125-135-150 lykkjur. Endurtakið umferð 3 og 4 en í hvert skipti sem prjónað er frá réttu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur færri en í fyrri umferð, að lokum eru prjónaðar 4-4-5-5-5-5 lykkjur frá réttu. Prjónið til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið síðan mynsturteikningu A.1 frá réttu þannig: Prjónið A.1a (= 2 lykkjur), endurtakið A.1b þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið A.1c (= 2 lykkjur). Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru endurteknar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið síðan garðaprjón og stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur (= 104-112-120-135-145-160 lykkjur). UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4-4-5-5-5-5 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið 8-8-10-10-10-10 lykkjur, snúið við og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur til baka yfir 8-8-10-10-10-10 lykkjur. Endurtakið umferð 4 og 5, en í hvert skipti þegar prjónað er frá röngu er prjónað yfir 4-4-5-5-5-5 lykkjur fleiri en frá fyrri umferð, að lokum er prjónað yfir allar lykkjur frá röngu. Stykkið mælist ca 53-56-56-57-60-62 cm. Prjónið síðan stykkið til loka í garðaprjóni. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 28-28-28-29-29-32 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af hvoru megin við hálsmál í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið síðan af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 34-38-42-49-54-60 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með garðaprjón þar til stykkið mælist ca 8-8-9-10-10-10 cm frá prjónamerki á þræði. Stykkið mælist ca 61-64-65-67-70-72 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxlum (merkir handveg). BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til allar stuttar umferðir hafa verið gerðar til loka. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 59-62-63-65-68-70 cm. Fellið af miðju 34-34-34-35-35-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 34-38-42-49-54-60 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar prjónaðar hafa verið 2 cm frá síðustu affellingu fyrir hálsmáli. Stykkið mælist ca 61-64-65-67-70-72 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið– 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl = merkir handveg. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.3 yfir allar lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8-9-6-6-9-6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-7.-7.-6.-5.-5. hverri umferð alls 14-15-16-17-18-19 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-44-43-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma upp að prjónamerki – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við affellingarkant á ermum og í ystu lykkjuna meðfram handveg. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 90-102 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta hringprjóna 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #afternoonstrollsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.