Maryse skrifaði:
Voilà de belles soirées en perspectives....et pour le tricoter et pour le porter !
30.12.2016 - 08:37
Ingun skrifaði:
Der perfekte Mantel für einen Spaziergang mit meinen Hunden. :)
25.12.2016 - 10:02
Andrea skrifaði:
Genau das Richtige für einen Spaziergang am Meer. Kjempebra, se ut veldig fint
15.12.2016 - 18:12
Elisabeth skrifaði:
Til en kold sommeraften vil den være rigtig lækker
14.12.2016 - 15:04
Driftwood#driftwoodcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa í garðaprjóni með röndum og hettu úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. MÁL: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of löng þegar hún er mátuð miðað við mál í mynsturteikningu. Þetta er mikilvægt þar sem áferðin gerir það að flíkin teygist á lengdina. ÚRTAKA: Fækkið lykkjun innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Öll úrtaka er gerð frá réttu! ÚTAUKNING-1 (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur), mínus 16 kantlykkjur í hvorri hlið að framan og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 1,6. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca til skiptis hverja og aðra hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-68-74-78 lykkjur á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn. Takið frá annan þráðinn og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm – LESIÐ MÁL, prjónið RENDUR eins og útskýrt er í A.1. JAFNFRAMT þegar lykkjufjöldinn mælist 24 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 7-7-7-8-8-8 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 42-46-50-56-62-66 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum natur til loka. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm – munið eftir MÁL, fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 1-1-0-1-2-2 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-3-3-4 sinnum = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 81-84-87-90-93-96 cm. Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 83-86-89-92-95-98 cm – munið eftir MÁL og fellið af með 2 þráðum (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 43-45-47-50-53-55 lykkjur (meðtaldar 16 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum ljós sægrænn. Takið frá annað þráðinn og prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm prjónið rendur eins og útskýrt er í A.1 á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum byrjar úrtaka í hlið og fækkið lykkjum á sama hátt og á bakstykki = 37-39-41-44-47-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá hlið á sama hátt og á bakstykki = 34-35-36-36-37-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm setjið ystu 17-17-18-18-19-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 13-14-14-14-14-15 lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 83-86-89-92-95-98 cm – munið eftir MÁL og fellið af með 2 þráðum í litnum natur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki, en með úrtöku í gangstæðri hlið. ERMI: Fitjið upp 20-22-22-24-24-26 lykkjur á hringprjóna 9 með 2 þráðum í litnum natur. Takið frá annan þráðinn og prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 5-5-4-3½-3-3 cm millibili alls 8-8-9-10-11-11 sinnum = 36-38-40-44-46-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-47-46-45-44-43 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-5-6-7 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-54-54-55-55-55 cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru með 2 þráðum í litnum natur. Öll ermin mælist ca 55-55-55-56-56-56 cm ofan frá og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir ca 20 cm neðst niðri í hvorri hlið á fram- og bakstykki fyrir klauf. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 56 til 68 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á böndum við miðju að framan) á hringprjóna 9 með litnum natur. Prjónið garðaprjón fram og til baka og aukið JAFNFRAMT úr jafnt yfir til 80-82-84-86-88-90 lykkjur í fyrstu umferð – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út yfir ystu 16 lykkjur í hvorri hlið). Þegar hettan mælist 35-35-36-36-37-37 cm fellið laust af með 2 þræði natur. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið hana saman efst uppi með lykkjuspori. SNÚRA: Peysan er með 4 snúrubönd, 2 stykki með 2 þráðum í litnum natur og 2 stykki með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum ljós sægrænn. 1 snúruband = klippið 2 þræði ca 2,8 metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna aftur saman þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda (snúrubandið á að vera ca 1 meter þegar það er tilbúið, klippið e.t.v. í rétta lengd). Festið eitt snúruband í litnum natur + í litnum sægrænn á utanverða peysuna í vinstri hlið ca 2 cm undir handveg (mátið e.t.v. peysuna og staðsetjið snúrubandið eftir hvað passar). Hitt snúrubandið er fest yst á hægra framstykki ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl og niður. Festið eitt snúruband í litnum natur ca 2 cm undir handveg á innanverðir peysu í hægri hlið. Festið annað snúruband í litnum natur er fest yst á vinstra framstykki ca 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl og niður. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #driftwoodcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.