DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wind Down

Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-1
DROPS Design: Mynstur me-104
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-500-550-650 g litur 15, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermum. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndist gat (útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig – frá miðju að aftan: Prjónið 8-9-10-11-12-13 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 11 lykkjur), 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 16-18-20-22-24-26 lykkjur sléttprjón (= framstykki), A.1, 6 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 8-9-10-11-12-13 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum:

AUKIÐ SVONA ÚT Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út í hverri umferð 0-0-0-3-5-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 22-25-28-31-33-35 sinnum og í 4. hverri umferð 2-2-1-0-0-0 sinnum (alls 24-27-29-34-38-42 sinnum).

AUKIÐ SVONA ÚT Á ERMI:
Aukið út í annarri hverri umferð 18-23-28-30-28-28 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-3-1-1-4-5 sinnum (alls 22-26-29-31-32-33 sinnum).
Eftir allar útaukningar eru 272-304-328-360-384-408 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 18-20-21-23-25-27 cm frá miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-42-45-51-56-61 lykkjur, setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= fyrir ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur, setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= fyrir ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið mitt í 8-8-10-10-12-14 nýju lykkjur sem fitjaðar voru upp. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum (= 4 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út með 4½ cm millibili alls 6 ggr = 192-208-224-248-272-296 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón, fellið síðan af. Peysan mælist alls ca 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Setjið til baka lykkjurnar af þræði á stutta hringprjóna/sokkaprjóna, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýju lykkjunum undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið A.2 yfir miðju 6 lykkjurnar undir ermi, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við A.2, fækkið lykkjum með 2½-1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-17-18-18-19 sinnum, fellið af með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 46-48-50-52-56-58 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 þar til ermin mælist 30-28-28-26-25-23 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis), prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Wind Down

Katja, Germany

Wind Down

AutumnFeral, United States

Wind Down

Enni / Tänkimäätein, Finland

Wind Down

Florence, France

Wind Down

Miss Jasmin, Germany

Wind Down

tamurin, Japan

Wind Down

lafely, France

Wind Down

Alyona, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (230)

country flag Andrea Tapia Gutierrez wrote:

Buenos días, las instrucciones están disponibles en español? Hermoso patrón Gracias

17.04.2024 - 14:53

country flag Sylvie wrote:

Bonjour A la séparation du corps et des manches, quelque soit la taille, le motif a1 se retrouve bien en attente avec les mailles des manches ? Ou pour une taille XXL combien de mailles faut il avant le montage des mailles supplémentaires ? J'ai compté 112 mailles pour le devant et idem pour le dos. C'est ça ? Merci de votre aide. Amicalement

06.04.2024 - 15:39

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, lors de la séparation, la moitié des mailles de A.1 va appartenir au dos/devant et l'autre moitié aux manches; si vous avez bien 384 mailles, les 56 premières mailes = 12 m du demi-dos + (5+33 augmentations) + 6 m de A.1 = demi-dos à tricoter avant la manche. Les 5 dernières mailles de A.1 + (28+4 augm) + 6 m + (28+4 augm) + les 5 premières m de A.1=80 m en attente pour la manche. Pour le devant de la même façon: les 6 dernières mailles de A.1 et les 5 premières mailles du A.1 suivant. Bon tricot!

08.04.2024 - 07:54

country flag Pat wrote:

I don’t see any directions for finishing the neck. Please help!

19.03.2024 - 23:18

DROPS Design answered:

Dear Pat, this is a top down sweater, there is no finishing at the neck edge. After casting on, you start the patterning, thus leaving a kind of a "raw" edge (the cast-on row). If this bothers you, you can knit two or four rounds of garter stitch before you start the pattern. Happy Knitting!

20.03.2024 - 01:10

country flag Sylvie wrote:

Je suis un peu perdue dans toutes les augmentations de l'empiècement. pour la taille XL, sur le premier rang je compte 4 aug (une à chaque transition dos/devant après un A1 ? ou c'est 8 ? merci

05.03.2024 - 16:40

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, vous allez augmenter alternativement 4 et 8 mailles ainsi: 4 mailles quand vous augmentez pour le devant/le dos tous les tours mais que vous devez augmenter tous les 2 tours pour les manches, et 8 mailles quand vous devez augmenter tous les 2 tours pour les manches/et le dos/le devant; et ainsi de suite, autrement dit, vous augmentez à un rythme différent sur les manches et le dos/le devant, en suivant bien l'ordre indiqué pour votre taille. Bon tricot!

06.03.2024 - 08:03

country flag Moni wrote:

Liebes Team, welche Art von abketten ist am Arm die Beste.

11.05.2023 - 12:09

DROPS Design answered:

Liebe Moni, in diesem Video zeigen wir 3 Methode, um die Maschen abzuketten, sicher finden Sie damit Ihre Lieblingsmethode. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2023 - 16:40

country flag Moni wrote:

Ich wollte nur wissen,, ob die bisherigen Zunahmen in den kurzen Abständen der a Linie schaden. Ob ich ab jetzt die Abstände vergrößerst soll - die OW 224 Maschen sind ideal.

02.05.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Liebe Moni, wenn Sie mehr Maschen als vorgesehen möchten dann sollen Sie die neuen Abständen je nach Wunsch umrechnen, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, gerne kann Ihnen aber Ihr DROPS Händler - auch per Telefon oder per E-Mail - weiterhelfen; Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

03.05.2023 - 07:44

country flag Moni wrote:

Würden Sie mir bitte meine Anfrage bearbeiten- der Pulli muss bis 10.5. fertig gestellt sein. VG

02.05.2023 - 14:20

DROPS Design answered:

Hier unten finden Sie den Anwort - hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

02.05.2023 - 14:51

country flag Moni wrote:

Guten Morgen, kann man die Zunahmen im Rumpf (M) auch in kürzeren Abständen vornehmen. Ich habe jetzt begonnen und in 7 cm bereits 3 x Maschen zugenommen. Ich würde jetzt die Abstände für die Zunahmen etwas vergrößern, oder soll ich in dem Abstand weiter zunehmen, also alle 2-3 cm? Für die Oberweite wäre es sicher besser aber ich weiß nicht, ob der Schnitt dann nicht mehr gut aussieht. Vielen Dank für die Bearbeitung. Moni

02.05.2023 - 09:59

DROPS Design answered:

Liebe Moni, wenn aber Ihre Maschenprobe in der Höhe ( 28 Reihen glatt rechts = 10 cm) stimmt, dann brauchen Sie nichts zu ändern um die Maßnahmen wie in der Skizze zu bekommen; sonnst sollen Sie je nach Ihrer Reihenanzahl in der Höhe umrechnen, wie oft die Zunahmen verändert werden sollen; Viel Spaß beim stricken!

02.05.2023 - 14:46

country flag Moni wrote:

Hallo, eine Frage zu den Raglanzunahmen: sind rechts/links-geneigte Zunahmen aus dem Querfaden bei diesem Modell auch schön? Ist die Raglanzunahmen immer unmittelbar vor der linken Masche oder ist die Zunahme immer vor der letzten rechten Masche? Bitte um eine schnelle Antwort, da ich bereits am Stricken bin.Vielen Dank

28.04.2023 - 09:42

DROPS Design answered:

Liebe Moni, die Zunahmen bei diesem Modell werden einfach mit Umschlag rechts verschränkt gestrickt, aber gerne könne Sie die Raglanzunahmen anders stricken. Diese Raglanzunahmen enstehen immer vor oder/und nach A.1, dh vor der linken Masche bzw 1. Masche in A.1 und/oder nach der linken Masche bzw letzte Masche in A.1. Viel Spaß beim stricken!

28.04.2023 - 10:58

country flag Sina wrote:

Ist es sinnvoll Maschenanschlag XL und die Raglanzunahme in L zu stricken? Funktioniert das?

26.04.2023 - 13:56

DROPS Design answered:

Liebe Sina, dann sollen Sie mal umrechnen, ob Sie die richtigen Maßnahmen bekommen, da die Maschenanzahl in beiden Grösse unterschiedlich ist. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2023 - 14:00