DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-13
DROPS Design: Mynstur nr z-781
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst ca 172 cm.
Hæð fyrir miðju ca 67 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350 g litur 2917, turkos

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PRJÓNAMERKI:
Prjónamerkin eru notuð til að auðveldara er að sjá hvar mynstureiningarnar fyrir miðju byrja og enda. Í útskýringum eru notuð 2 prjónamerki, þú getur notað prjónamerki til að aðgreina allar mynstureiningarnar ef þér finnst það betra. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 5 prjónamerki með Alpaca á hringprjóna 3. Prjónið og aukið út þannig (fyrsta umferð er frá réttu):
UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 9 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur og uppsláttinn slétt.

Prjónið eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 1 lykkju, A.2 yfir 4 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 65 lykkjur í umferð.

Prjónið eftir mynsturteikningu A.1 til A7 frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.4 yfir 14 l, setjið eitt PRJÓNAMERKI – sjá útskýringu að ofan, A.5 yfir 2 lykkjur, A.6 er endurtekið yfir næstu 28 lykkjur (= 2 sinnum á breidd), A.7 yfir 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki til viðbótar, A.4 yfir 14 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 121 lykkjur í umferð. Haldið áfram að prjóna mynsturteikninguna með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu til viðbótar af A.4 við hlið á A.1 og A.3, nú er pláss fyrir 2 mynstureiningar af A.6 á milli A.5 og A.7). Endurtakið mynsturteikningu á hæðina þannig:
2. skipti: A.1, A.4 x 2, A.5, A.6 x 4, A7, A.4 x 2, A.3 = 177 lykkjur.
3. skipti: A.1, A.4 x 3, A.5, A.6 x 6, A.7, A.4 x 3, A.3 = 233 lykkjur.
4. skipti: A.1, A.4 x 4, A.5, A.6 x 8, A.7, A.4 x 4, A.3 = 289 lykkjur.
5. skipti: A.1, A.4 x 5, A.5, A.6 x 10, A.7, A.4 x 5, A.3 = 345 lykkjur.
6. skipti: A.1, A.4 x 6, A5, A.6 x 12, A.7, A.4 x 6, A.3 = 401 lykkjur.
ATH! Nú á að prjóna mynsturteikninguna í 1 skipti í lokin til viðbótar á hæðina, en í síðustu umferð frá réttu á ekki að gera 2 síðustu uppslættina í mynstri A.5 og A.7 (sjá ör í mynsturteikningu).
7. skipti: A.1, A.4 x 7, A5, A.6 x 14, A.7, A.4 x 7, A.3 = 453 lykkjur.

Prjónið eftir mynsturteikningu A.8 til A.11 frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.8 yfir 3 lykkjur, A.9 yfir 12 lykkjur,A.10 er endurtekið yfir næstu 98 lykkjur (yfir A.4) alls 7 sinnum, hér er prjónamerki, haldið áfram að endurtaka A.10 yfir næstu 224 lykkjur (yfir A.5, A.6 og A.7) alls 16 sinum, hér er seinna prjónamerkið, haldið áfram með að endurtakið A.10 yfir næstu 98 lykkjur (yfir allar mynstureiningar af A.4) alls 7 sinnum, prjónið A.9 yfir 12 lykkjur, prjónið A.11 yfir 4 lykkjur og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATH! Lykkjur eru auknar út í öllu mynstrinu.
Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina (síðasta umferð er frá réttu og eftir þessa umferð eru 613 lykkjur og uppslættir í umferð).

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af í næstu umferð þannig (= ranga): Fellið af þegar prjónað er brugðið og sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverjum uppslætti frá fyrri umferð.
Uppslættir eru felldir af eins og venjuleg lykkja.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman.
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Bente Nielsen wrote:

Ich verstehe nicht, wie die zusätzlichen Umschläge in der Abkettreihe abgekettet werden sollen. Wird der zusätzliche Umschlag über die letzte Masche gezogen?

04.04.2024 - 10:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nielsen, die Umschläge werden wie die anderen Maschen bzw wie "normal" abgekettet, siehe dieses Video wo wir zeigen, wie man mut Umschläge abkettet. Viel Spaß beim Stricken!

04.04.2024 - 12:52

country flag Lena Ekdahl wrote:

Hej, undrar om det är ett omslag på var sida om den aviga maskan i diagram A9 varv 1. 1r omsl 1a omsl lyft 5r tills omsl 1a omsl. ELLER: 1r omsl 1a lyft 5r tills 1a omsl. Hoppas ni förstår vad jag menar. Ett jätte fint mönster. Tack på förhand. Mvh Lena Ekdahl.

09.08.2022 - 15:46

DROPS Design answered:

Hej Lena, ja du har 1 omslag på varje sida om avigmaskan (i varje sida) på första varvet i A.9 :)

11.08.2022 - 09:24

country flag Yolande wrote:

Bonjour, avez vous ce patron écrit? j'ai de la difficulté à suivre une grille Merci Yolande

25.07.2022 - 20:01

DROPS Design answered:

Bonjour Yolande, nous n'avons pas ce patron ecrit. Consultez une de nos lecon ICI. Si vous avez des questions,. n'hesitez pas a nous contacter. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS qui saura vous conseiller et vous renseigner. Bon tricot!

25.07.2022 - 20:33

country flag Dorianne wrote:

Hallo! Ich bin nicht sicher, ob bei dem Diagramm die Rückreihen links oder rechts gestrickt werden. Ob das Muster auf der Vorderseite kraus rechts oder glatt rechts erscheint. Vielen Dank für ihre Hilfe.

12.05.2022 - 07:23

DROPS Design answered:

Liebe Dorianne, die Diagramme zeigen alle Reihen, die Hin- sowie die Rückreihen; die weisse Kästchen werden glatt rechts gestrickt, aber die mit dem Punktchen sind glatt linke Maschen. Viel Spaß beim stricken!

12.05.2022 - 09:12

country flag Harriet Vaanholt wrote:

Hallo, ik wil deze sjaal graag maken als cadeau maar hij moet breder, zeker 200 cm. Kan ik dan bij de patronen A.1, A.4, A.5, A.7, A.4, en A.3 deze serie inplaats van 7x in de hoogte herhalen dit 8x doen en dan bij de volgende serie het gemeerde aantal steken evenredig verdelen over de paroontjes? Dank u voor uw reactie.

06.09.2020 - 11:17

DROPS Design answered:

Dag Harriet,

Je kan inderdaad het patroon blijven herhalen. De sjaal wordt dan niet allen breder maar ook hoger.

11.09.2020 - 13:56

country flag Sylvia wrote:

Dankeschön, aber ich meinte die Umschläge bei der 7. Wiederholung: "BITTE BEACHTEN: Wenn die Diagramme beim letzten Mal gestrickt in der Höhe gestrickt werden, in der letzten Hin-Reihe die beiden äußersten Umschläge A.5 und A.7 NICHT arbeiten (siehe Pfeil im Diagramm)." Was mache ich mit den Umschlägen?

27.08.2019 - 09:28

DROPS Design answered:

Lydia, oh ja entschuldigung, bei dieser Reihe machen Sie einfach diese Umschläge nicht (= keine Zunahme am Anfang A.5 und am Ende A.7 bei der letzten Hinreihe). Viel Spaß beim stricken!

27.08.2019 - 12:36

country flag Sylvia wrote:

Liebes Drops Team, was bedeutet es, wenn ich die Umschläge nicht bearbeite? Werden die einfach fallen gelassen?

27.08.2019 - 07:10

DROPS Design answered:

Dear Sylvia, ich misverstehe vielleicht Ihre Frage, aber hier werden alle Umschläge gestrickt (= Zunahmen oder Lochmuster). Welche Umschläge meinen Sie hier?

27.08.2019 - 09:16

country flag Sus wrote:

Jeg vil meget gerne strikke dette sjal, men jeg vil udelade mønsterstrikningen og kun strikke glatstrikning. Jeg har svært ved at gennemskue, hvor ofte der skal være udtagninger for at opnå den smukke facon på sjalet. Vil I hjælpe med dette. På forhånd tak.

24.03.2019 - 09:17

DROPS Design answered:

Hei Sus. Du kan følge diagrammene, men strikk glattstrikk over alle maskene i steden for hullmønster. Da kan du følge økningene slik de er i diagrammene, altså de kastene som ikke er med i hullmønsteret. Da får du den samme fassongen på sjalet. God fornøyelse

28.03.2019 - 09:41

country flag Christine Vadnais wrote:

Je trouve ce châle magnifique mais je ne suis pas capable de suivre les diagrammes, peux-t-on avoir le patron écrit s\\\'il vous plaît?

26.08.2018 - 04:21

country flag Theresa wrote:

Exclusiver Schnitt,endlich- !Klasse Zunahme---,damit wird bei diesem Modell eine zu lange Spitze vermieden,wenn man .wie bei anderen Entwürfen an den 2 Seiten nur jeweils 1 Masche zunimmt.Danke für das schöne Design.

03.04.2018 - 15:36