Lucille skrifaði:
I dont understand the bottom part when i have worked 66 dc in both front and back then they ask to chain 6 in both and then i dont understand the rest. Could you kindly explain to me. Where do i slip stitch in 3rd chain? Is it in the front or back?
28.05.2017 - 15:48
Christel skrifaði:
Je ne connais pas la technique pour crocheter alternativement en rond sur l'endroit et sur l'envers. Comment fait on?
09.04.2017 - 08:37DROPS Design svaraði:
Chere Cristel! Vous tournez l'ouvrage quand le tour est fini, ensuite vous continuer dans l'autre direction. C'est tres facile. Bon tricot!
10.04.2017 - 23:34
Grousset skrifaði:
Bonjour, je fais le modèle Top au crochet avec point ajouré et franges, en DROPS Muskat. Je ne comprends les augmentations dés le début du tricot "3 augmentations par rang" ?? on ne peut qu'augmenter un nombre pair par rang "continuer en brides et les augmentations de la même façon jusqu'à ce que 11-12-13-14-15-16 rangs avec des augmentations aient été crochetés au total (on augmente 3 brides tous les rangs). On a maintenant 66-71-74-79-82-87 brides. Merci
25.03.2017 - 22:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Grousset, dans les diagrammes A.1 et A.3 on augmente 3 B par rang: en début de rang on a 5 ml (qui ne remplacent pas la 1ère m - cf INFO CROCHET) et 2 B (= 1 augmentation) et en fin de rang, on a 3 B dans la dernière B (= 2 augmentations), on augmente ainsi 3 B par rang. Bon crochet!
27.03.2017 - 09:06
Laurie skrifaði:
Would love this pattern very nice
17.01.2017 - 21:39
Arma Bakker skrifaði:
Super leuke top in boho- style! Ik hoop dat hij er straks bij zit!
06.01.2017 - 15:26
Jane skrifaði:
Love it!
16.12.2016 - 10:23
Lauren McRoberts skrifaði:
One of my favorites. Love the fringe. Please include!
14.12.2016 - 16:19
Hawaiian Breeze#hawaiianbreezetop |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur með gatamynstri og kögri úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum í A.1 og A.3 eru heklaðar 5 loftlykkjur til að snúa við með. Þessar 5 loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls. Þegar heklað er í hring er skipt út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrst er framstykkið og bakstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig, síðan er heklað í hring yfir bæði stykkin. FRAMSTYKKI: Heklið 42-44-44-47-47-49 lausar loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Snúið og heklið þannig: Heklið 1 fastalykkju í aðra loftlykkju frá heklunálinni (= 1 fastalykkja + 1 loftlykkja til að snúa við með), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 0-2-2-0-0-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 7-7-7-8-8-8 sinnum til viðbótar = 33-35-35-37-37-39 fastalykkjur. Snúið við og heklið mynstur þannig: Byrjið frá umferð 2. Heklið A.1 yfir fyrstu 5 fastalykkjurnar, A.2 yfir næstu 24-26-26-28-28-30 fastalykkjur, A.3 yfir þær 4 fastalykkjur sem eftir eru – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynsturteikning A.1 til A.3 hefur verið hekluð til loka á hæðina er haldið áfram með stuðla og útaukningu á sama hátt þar til heklaðar hafa verið alls 11-12-13-14-15-16 umferðir með útaukningu (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð). Nú eru 66-71-74-79-82-87 stuðlar í umferð. Geymið stykkið. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið nú stykkin tvö saman þannig: Snúið og heklið 1 stuðul í hvern af 66-71-74-79-82-87 stuðlum frá bakstykki, heklið 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern af 66-71-74-79-82-87 stuðlum frá framstykki, heklið 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Heklið nú stykkið í hring, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju = 144-166-172-190-212-234 stuðlar. Þegar heklað er í hring er snúið við eftir hverja umferð þannig að heklað er í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin verði alveg eins á toppnum. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-12-12-16-24-30 loftlykkjur. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út með 3-3-3-3-4-4 cm millibili alls 4 sinnum = 160-182-188-206-228-250 stuðlar. Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-17-18 cm er hekluð 1 umferð þar sem aukið er út um 3-5-5-5-1-3 stuðla jafnt yfir = 163-187-193-211-229-253 stuðlar, síðan er heklað þannig: Heklið A.4 yfir fyrsta stuðul í umferð, endurtakið síðan A.5 yfir þá stuðla sem eftir eru. A.4 sýnir byrjun og lok umferðar. Snúið ekki, allar umferðir eru heklaðar frá réttu! Klippið frá og festið enda þegar A.4 og A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm alls. SNÚRA: Heklið 2 lausar snúrur þannig: Heklið loftlykkjur með Muskat með heklunál 4 þar til snúran mælist 100 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju, en til passið uppá að keðjulykkjurnar verði ekki heklaðar fastar en loftlykkjurnar. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra snúru til viðbótar á sama hátt. Þræðið snúruna í gegn í annarri hlið á framstykki, á milli annars og þriðja stuðuls frá kanti í fyrstu umferð með stuðlum. Þræðið snúruna í gegn í annarri hlið á bakstykki alveg eins og hnýtið hnút á öxl. Endurtakið á hinni hliðinni á toppnum. KÖGUR: Klippið 4 þræði ca 20 cm. Leggið þá saman tvöfalt, þræðið lykkjuna frá réttu á milli 2 stuðla neðst á fram- og bakstykki. Dragið síðan endana í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Festið kögur með ca 2 cm millibili neðst niðri á toppnum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hawaiianbreezetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.